Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Blaðsíða 10
10
ustu eins lengi og það þurfti og tengsl starfs-
fólks og notenda gátu varað í nokkur ár.
Núna var hin endanlega ákvörðun hjá þjón-
ustukaupandanum og ætlast til að þjónustan
rúmaðist innan ákveðins tíma ramma.
Það er náttúrulega bara pantað úrræði í
x langan tíma ... það er líka okkar mat oft að
einstaklingurinn þurfi lengri þjónustu heldur
en Virk er tilbúið að borga fyrir.
(Bára í rýnihópi 1).
Dæmi voru um að stöðvarnar hefðu haldið
áfram að sinna einstaka notendum á eigin
kostnað eftir að starfsendurhæfingunni átti
að ljúka. Þetta átti sérstaklega við um yngsta
notendahópinn sem gjarnan glímdi við fíkni-
efnavanda.
Við höfum náð mjög góðum árangri með
þennan hóp, en við fáum ekki nægan tíma,
því þetta eru kannski krakkar sem eru að
detta út bara eftir grunnskóla ... eru svo
kannski komin inn og ná sér á strik, byrja í
framhaldsskóla og þá er tíminn búinn.
(Agnes í rýnihópi 1).
Þátttakendur töldu sumir hverjir að teikn
væru á lofti um að breytingar væru í farvatn-
inu. Sveigjanleiki væri að aukast og með góð-
um rökstuðningi samþykkti Virk oftast beiðni
um lengri tíma. Engu að síður fannst viðmæl-
endum það ákveðin sjálfræðisskerð ing að
vera háðir samþykki þjónustukaupandans
með slík atriði.
Þjónusta starfsendurhæfingarstöðva
Þemað lýsir aðkomu og starfsemi starfs-
endurhæfingarstöðvanna sjálfra og spannar
fjögur undirþemu, þ.e. „Hlutverk“, „Hug-
myndafræði og vinnulag“, „Samstarf“ og
„Árangur“.
Hlutverk
Viðmælendur útskýrðu hvernig áður fyrr
hefði verið greint skýrar á milli starfsendur-
hæfingar og atvinnulegrar endurhæfingar.
Starfsendurhæfing fól þá í sér endurhæfingu
til starfa í víðum skilningi en atvinnuleg
endurhæfing eingöngu til launaðra starfa og
náms. Með aukinni áherslu á endurkomu til
vinnu eða þátttöku í námi hafði hið opinbera
hlutverk stöðvanna þrengst og starfsendur-
hæfingunni eins og hún var áður skilgreind
þar með úthýst. Sumir töldu að stöðvarnar
ættu frekar að tileinka sér hugtakið atvinnu-
leg endurhæfing þar sem það vísaði til þeirrar
þjónustu sem verið væri að veita skv. lögum.
Þetta orð, starfsendurhæfing, er mjög blekkj
andi af því að öll dagleg störf eru störf.
Atvinnuendurhæfing sem vísar á vinnu
markað hefði verið miklu betra orð.
(Sif, einstaklingsviðtal).
Þó flestir viðmælendur legðu áherslu á að
hlutverk þeirra sem starfsmenn væri að
sinna starfsendurhæfingu í víðum skilningi
fannst sumum hin aukna áhersla á atvinnu-
tengingu vera jákvætt skref. Hins vegar
þyrfti líka að huga vel að þeim sem ekki
væru tilbúnir í slíkt og sjá þeim fyrir endur-
hæfingu við hæfi.
Hugmyndafræði og vinnulag
Þátttakendur deildu allir hugmynda-
fræðinni um heildstæða, þverfaglega og
einstaklingsmiðaða þjónustu þar sem ólík-
ar fagstéttir vinna saman að því að notend-
ur nái sem bestum árangri. Á stærri
starfsendurhæfingarstöðvum var unnið í
þverfaglegum teymum, en á þeim minni
þar sem jafnvel var einungis einn starfs-
maður átti hann í samstarfi við annað fag-
fólk á svæðinu.
Væntingar og þarfir notenda voru almennt
hafðar í fyrirrúmi, viðmælendur leituðust
við að sinna sérhverjum notanda út frá
hans forsendum og skipuleggja starfsend-
urhæfinguna í samræmi við það. Hér gátu
orðið árekstrar við áherslur Virk á vinnu-
tengingu og því áttu tómstundatengdar og
skapandi athafnir ekki upp á pallborðið.
Slík verkefni voru samt oft það sem höfðaði
mest til fólks með litla áhugahvöt.
Fólk á ekkert að vera að föndra … í glerlist
eða leir … það er ekki starfsendurhæfing á
meðan við erum að sjá bestu mætinguna í
þessi skapandi úrræði.
(Sunna, einstaklingsviðtal).
Hugmyndafræði valdeflingar bar alla jafna
á góma og viðmælendur töldu mikilvægt að
kortleggja styrkleika fólks og efla trú þeirra
á eigin getu. Sumar stöðvar nýttu einnig
nálgun hugrænnar atferlismeðferðar og
lausnamiðaða nálgun þar sem notendur
voru aðstoðaðir við að finna lausnir sem
hæfðu hverjum og einum. Sumum fannst
endurhæfingaráætlunin sem þeim var upp-
álagt að fylgja af þjónustukaupanda ekki
alltaf nægilega sniðin að notandanum.
Svo leggur sérfræðingur til að þessi
einstaklingur fari í sálfræðiviðtöl ... og svo
er eitthvað allt annað sem kemur upp ... ég
þarf að koma með mjög góðan rökstuðn
ing fyrir því að þessi aðili þurfi ekki sál
fræðiviðtöl. ... Það eru þessar svona reglur
sem mér finnst ekki vera skjólstæðings
miðaðar.
(Elín í rýnihópi 3).
Einhverjum viðmælendum fannst meira
svigrúm til að vinna einstaklingsmiðað og
efla vald fólks þegar málaflokkurinn var hjá
ríkinu. Stundum voru farnar óhefðbundnar
leiðir, t.d. þegar notanda var útveguð þjón-
usta viðskiptafræðings í stað sálfræðings
eins og boðað hafði verið.
Þannig ég keypti þetta fyrir hann og sagði
engum frá því og hann stofnaði fyrirtæki og
komst sjálfur út á vinnumarkaðinn. Þetta
var hans leið.
(Agnes í rýnihópi 1).
Áætlunin frá Virk gat falið í sér kröfu um að
notandinn væri í virkri þjónustu á stöðinni í
ákveðinn tímafjölda á viku. Það fannst við-
mælendum vera skortur á sveigjanleika og
sumir sögðust horfa í gegnum fingur sér
með slík fyrirmæli.
Samstarf
Viðmælendur töldu samstarf við Virk vera
afar mikilvægt og voru almennt ánægðir
með samstarfið við ráðgjafana sem hafði
aukist verulega frá því sem var í upphafi.
Fagfólk sumra stöðvanna sat nú stundum
rýnifundi með ráðgjöfum Virk þar sem farið
var yfir framvindu, endurhæfingaráætlun
og stöðu einstakra notenda. Samstarfið
virtist alla jafna meira og nánara á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu enda
ráðgjafarnir oft í næsta nágrenni.
Þetta er allt öðruvísi, við erum bara þarna
á milli hæða eða bjallandi á milli, þannig
að við hjálpumst rosalega mikið að. Við
fundum reglulega með notandanum og
ráðgjafa Virk, þú veist, þetta er öðruvísi
umhverfi.
(Halla í rýnihópi 3).
Samstarfi við stjórnendur og sérfræðinga
Virk var hins vegar oft ábótavant og við-
mælendur voru ósáttir við að hafa ekki
meira að segja um uppbyggingu og heildar-
skipulag starfsendurhæfingar.
Það er náttúrulega fínt að það sé búið að
búa til einhvern strúktúr í þessum mála
flokki, en hann má ekki vera bara þannig
að það sé einhver ein stofnun sem í raun
inni komi að allri hugmyndavinnu og leiti
ekkert til þeirra sem eru að vinna úti á akri
num og hafa langa starfsreynslu
(Agnes í rýnihópi 1).
Sumir viðmælendur höfðu óskað eftir sam-
starfi við Virk í upphafi þegar verið var að
leggja nýjar línur í málaflokknum, en ekki
orðið að ósk sinni.