Iðjuþjálfinn - 01.01.2019, Blaðsíða 74
74
Guðrún Árnadóttir II-grein2019 Malþing: Box II
Hvað segja rannsóknir um gagnsemi skynörvandi meðferðarinnar Grounding
fyrir einstaklinga með vanda af geðrænum toga?
Guðrún Jóhanna Benediktsdóttir; Gunnhildur Jakobsdóttir, Helga Jóna Sigurðardóttir og Rósa
Gunnsteinsdóttir
Inngangur: Grounding er skynörvandi meðferðarform sem iðjuþjálfar á BUGL nota í vinnu með
börnum sem m.a. glíma við skynúrvinnsluvanda, þurfa að bæta líkamsvitund sína eða af
einhverju orsökum eiga erfitt með svefn og slökun. Með Grounding er leitast við að bæta
jarðtengingu og líkamsvitund með því að áreita hin ýmsu skynfæri með það að marki að draga
úr spennu og vanlíðun.
Markmið: Að kanna hvort Groundingmeðferðin hafi verið rannsökuð og hvort niðurstöður
bendi til þess að hún hafi jákvæð áhrif á líðan einstaklinga.
Aðferðir: Leitað var eftir greinum frá árinu 2000 um Grounding og skildu efni í gagnasöfnunum:
PubMed, ProQuest, Sage Journal, Cinahl, OTDBASE, OTseeker, Scopus. Helstu leitarorð:
Grounding, sensory intergration, relaxation, multisensory therapy, sensory therapy,
occupational therapy, mindfullnes, bioenergetic.
Niðurstöður: Engin ritrýnd rannsókn fannst um Grounding. Aftur á móti fannst fjöldi rannsókna
um skynörvandi meðferðir innan geðheilbrigðisþjónustu. Niðurstöður þeirra rannsókna sýndust
hafa haft jákvæð áhrif þ.e. að ýmis lífeðlisfræðileg gildi notenda eins og blóðþrýstingur,
hjartsláttur og öndunartíðni lækkuðu eftir meðferðina.
Ályktun: Þörf er á rannsóknum á gagnsemi Grounding með börnum. Niðurstöður rannsókna á
öðrum skynörvandi meðferðum benda til þess að meðferðin hafi jákvæð áhrif á líðan og hegðun
einstaklinga sem hljóta slíka íhlutun.