Lögmannablaðið - 15.12.1997, Side 12

Lögmannablaðið - 15.12.1997, Side 12
Lára V Júlíusdóttir, hdl. - Þórunn Guömundsdóttir, hrl. Tímarit í fóstur! Hollvinafélag lagadeildar Háskóla íslands var stofnað 16. febrúar síð- astliðinn. í fyrstu stjórn Holl- vinafélagsins voru kjörin þau Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri, sem er for- maður stjórnarinnar, Garðar Gíslason, hæstaréttardómari, Lára V. Júlíusdóttir, hdl., Tryggvi Þórhallsson, lögfræð- ingur og Þórunn Guðmunds- dóttir, hrl. Hlutverk félagsins er að efla kennslu og rannsóknir við laga- deild Háskóla íslands og auka og styrkja tengsl deildarinnar við fyrri nemendur sína og aðra þá, er bera hag hennar fyrir brjósti. Markmiði sínu á félagið meðal annars að ná með því að vera vettvangur fyrir og stuðla að umræðu um laganám, kennslu og rannsóknir í lögfræði, gera tillögur að kennsluþáttum og rannsóknarverkefnum og leita uppi stuðning við kennslu og rannsóknir í lögfræði hjá einstakl- ingum og lögaðilum. Tekjur félags- ins eru árgjöld félagsmanna og frjáls framlög. Margir lögmenn hafa nú gerst félagar í Hollvinafélaginu. Þar sem hlutverk félagsins er með- al annars að auka og styrkja tengsl deildarinnar við fyrri nemendur sína, er ákvæði um svokallað ráð- gjafaráð í 13. gr. félagsins, en það skal skipað a.m.k. 20 mönnum, sem stjórn þess tilnefnir. Hlutverk ráðsins er meðal annars að móta hugmyndir að kennsluþáttum og rannsóknarverkefnum, sem styrkja má og gera tillögur um fjáröflun fyrir félagið. Ráðgjafaráðið á að koma saman ekki sjaldnar en einu sinni á ári. Stjórn félagsins hefur þegar skipað 24 lögfræðinga í ráð- gjafaráðið, þ. á m. nokkra lög- menn. Stjórn félagsins kannaði það hjá kennurum lagadeildar hvar skór- Þórunn Guömunds- dóttir, hrL inn helst kreppir að í málefnum deildarinnar. Lagadeildin er í fjársvelti, eins og reyndar Háskól- inn allur. Sérstaklega fæst lítið fé til bókasafnsins. Bókakaup nema um kr. 1.770 á hvern laganema á ári, en það er helmingi lægra en það gerist lægst í öðrum deildum. Fjár- veiting til bókasafnsins fer fyrst og fremst í að greiða fyrir áskrift að ýmsum tímaritum og dómasöfnum. Mjög takmarkað svigrúm er til að kaupa nýjar bækur. Bókasafnið kaupir í dag um 50 tímarit og dómasöfn. Ársáskrift fyrir þessi tímarit og söfn er frá kr. 3.000 upp í rúmar kr. 50.000. Sú hugmynd vaknaði hjá stjórn félagsins að kanna það meðal fyrirtækja, lög- mannsstofa og lögmanna hvort þessir aðilar væru reiðubúnir til þess að styrkja bókasafn lagadeild- ar með því að taka tímarit í fóstur, ef svo má að orði komast, um lengri eða skemmri tíma. Viðkom- andi lögmaður, lögmannsstofa eða fyrirtæki myndi þá skrifa sig fyrir ákveðnu tímariti. Bókasafn laga- deildar sæi síðan um að greiða áskriftargjaldið og sendi svo við- komandi greiðanda reikning fyrir því. Gefendanna yrði síðan getið á sérstakri töflu á bókasafni laga- deildar. Einnig gætu lögmenn ósk- að eftir að styrkja kaup á tímarit- um, sem ekki eru keypt til safnsins í dag, en ástæða væri til, að þeirra mati, að kaupa. Eins og áður var nefnt er gjald fyrir mörg tímarit- anna ekki hátt og myndu lögmenn og/eða lögmannsstofur sennilega ekki finna mikið fyrir því að styrkja bókasafnið með þessum hætti. Sterkt og öflugt bókasafn við lagadeild Háskóla íslands kemur öllum lögfræðingum til góða og eykur gæði laganáms um leið. Nú munu sjálfsagt einhverjir lögmenn segja að það væri viti nær að lög- menn tækju að sér að efla eigið bókasafn, frekar en að vera að styrkja einhver lagabókasöfn úti í bæ. Því er til að svara að öflugt bókasafn lagadeildar Háskóla ís- lands mun styrkja lagakennslu, laganám og rannsóknir í lögfræði. Slíkt kemur öllum lögfræðingum, lögmönnum og hinum, til góða í framtíðinni. Það er von stjórnar Hollvinafé- lags lagadeildar Háskóla íslands að lögmenn muni taka vel í þessa hugmynd. Við undirritaðir stjórnar- menn i Hollvinafélagi lagadeildar Háskóla íslands munum á næst- unni hafa samband við lögmenn bréflega eða símleiðis til könnunar á því hvort áhugi sé á þessu með- al lögmanna. Lögmönnum er einnig velkomið að hafa samband við okkur að fyrra bragði og fá skrá yfir þau tímarit, sem nú eru keypt á vegum lagadeildar. Við bendum t.d. á að þær lögmanns- stofur, sem hafa lagt sig eftir sjó- réttarmálum, gætu styrkt deildina við kaup á sjóréttartímaritum, þær stofur, sem lagt hafa sig eftir mann- réttindamálum, gætu keypt tímarit um mannréttindamál o.s.frv. 12 Lögmannablaðið

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.