Lögmannablaðið - 15.12.1997, Side 13

Lögmannablaðið - 15.12.1997, Side 13
Elín Smáradóttir, hdl., Skipulagi ríkisins Ný skipulags- og byggingarlög, nr. 73/1997 Nú á vordögum voru sam- þykkt á Alþingi ný skipulags- og byggingar- lög, nr. 73/1997, sem öðlast munu gildi þann 1. janúar 1998. Brýn þörf var talin orðin á end- urskoðun skipulagslaga og byggingarlaga. Bæði af hálfu sveitarstjórna, sem kölluðu eft- ir henni m.a. til þess að einfalda meðferð mála á því sviði og til að auka frumkvæði og ábyrgð sveitarfélaganna í þessum málaflokkum, en einnig af hálfu stjórnvalda. Aðdragandi lagasetningar Langt er síðan undirbúningur setningar nýrra skipulags- og bygg- ingarlaga hófst. Árið 1989 var fyrst lagt fram á Alþingi frumvarp til sameiginlegra skipulags- og bygg- ingarlaga. Það var félagsmálaráð- herra sem lagði það frumvarp fram, enda heyrði málaflokkurinn þá undir ráðuneyti hans. Aður höfðu verið lögð fram frumvörp þar sem gert var ráð fyrir að sér- stök lög giltu um hvorn málaflokk. Fmmvarp það sem varð að lög- um í vor var lagt fram til kynning- ar á 118. löggjafarþingi veturinn 1994 -95 og síðan lítið breytt á 120. þingi veturinn 1995-6. Það hlaut þá ekki afgreiðslu en var lagt fram á ný á síðasta þingi og samþykkt með umtalsverðum breytingum frá umhverfisnefnd Alþingis. Fmm- varpið var unnið í umhverfisráðu- neytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og Skipulag ríkisins og byggist á eldri fmm- vörpum um sama efni. Markmið I lögunum nýju eru í fyrsta sinn sett fram markmið skipulags- og byggingarlaga. Er það til mikilla Elíti Smáradóttir, hdL bóta, þar sem hingað til hefur skort á að fyrir liggi stefna eða mark- miðssetning stjórnvalda sem hægt er að byggja á varðandi mat á þeim sjónarmiðum sem ber að leggja til grundvallar við skipulagsgerð, sem og við mat á lögmæti þeirra sjónar- miða sem að baki ákvarðanatöku í skipulags- og byggingarmálum liggja- Helstu markmið laganna eru: - að þróun byggðar og landnotk- unar á landinu öllu verði í sam- ræmi við skipulagsáætlanir sem hafi efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar þarfir lands- manna, heilbrigði þeirra og ör- yggi að leiðarljósi, - að stuðla að skynsamlegri og hagkvæmri nýtingu lands og landgæða, tryggja varðveislu náttúru og menningarverðmæta og koma í veg fyrir umhverfis- spjöll og ofnýtingu, með sjálf- bæra þróun að leiðarljósi, - að tryggja réttaröryggi í meðferð skipulags- og byggingarmála þannig að réttur einstaklinga og lögaðila verði ekki fyrir borð borinn þótt hagur heildarinnar sé hafður að ieiðarljósi, - að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftir- lit með þvi að kröfum um ör- yggi, endingu, útlit og hag- kvæmni bygginga og annarra mannvirkja sé fullnægt. Hugtakið „sjálfbær þróun“ mun ekki fyrr hafa komið fyrir í laga- setningu hérlendis. Það er hins vegar ekki skilgreint í lögunum sjálfum og verður því að leita ann- að um skilgreiningu. Almennt er áhersla á umhverfis- mál aukin í nýju lögunum og ákveðnari reglur eru settar um kynningarþáttinn og þátttöku al- mennings. Þannig er til dæmis gerð krafa um að við gerð skiþu- lagsáætlana skuli eftir föngum leita eftir sjónarmiðum og tillögum íbúa og annarra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta um mörkun stefnu og skipulagsmarkmið. Áður en tillaga að aðalskipulagi er afgreidd í sveit- arstjórn skal kynna hana, markmið hennar og forsendur fyrir íbúum sveitarfélagsins á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Stjórn skipulags- og bygg- ingarmála Helstu breytingar sem felast í nýjum lögum varða stjórn og frum- kvæði í skipulagsmálum, sem fær- ist nú í hendur sveitarstjórna í rík- ara mæli en verið hefur og verka- skipting milli ríkis og sveitarfélaga verður skýrari. Skipulagsstjórn rík- isins verður lögð niður og verkefni hennar færð til sveitarfélaga og Skipulagsstofnunar. Úrskurðarvald í ágreiningsmálum færist frá um- hverfisráðuneyti til úrskurðar- nefndar skv. 8. gr., sem mun hafa fullnaðarúrskurðarvald á stjórn- sýslustigi. Nefndarmenn eru þrír, tveir tilnefndir af Hæstarétti, en einn skipar umhverfisráðherra án tilnefningar. Skipulagsstofnun Embætti skipulagsstjóra ríkisins verður lagt niður og í stað þess kemur ný stofnun, Skipulagsstofn- Lögmannablaöiö 13

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.