Lögmannablaðið - 15.12.1997, Qupperneq 13
Elín Smáradóttir, hdl., Skipulagi ríkisins
Ný skipulags- og byggingarlög,
nr. 73/1997
Nú á vordögum voru sam-
þykkt á Alþingi ný
skipulags- og byggingar-
lög, nr. 73/1997, sem öðlast
munu gildi þann 1. janúar 1998.
Brýn þörf var talin orðin á end-
urskoðun skipulagslaga og
byggingarlaga. Bæði af hálfu
sveitarstjórna, sem kölluðu eft-
ir henni m.a. til þess að einfalda
meðferð mála á því sviði og til
að auka frumkvæði og ábyrgð
sveitarfélaganna í þessum
málaflokkum, en einnig af
hálfu stjórnvalda.
Aðdragandi lagasetningar
Langt er síðan undirbúningur
setningar nýrra skipulags- og bygg-
ingarlaga hófst. Árið 1989 var fyrst
lagt fram á Alþingi frumvarp til
sameiginlegra skipulags- og bygg-
ingarlaga. Það var félagsmálaráð-
herra sem lagði það frumvarp
fram, enda heyrði málaflokkurinn
þá undir ráðuneyti hans. Aður
höfðu verið lögð fram frumvörp
þar sem gert var ráð fyrir að sér-
stök lög giltu um hvorn málaflokk.
Fmmvarp það sem varð að lög-
um í vor var lagt fram til kynning-
ar á 118. löggjafarþingi veturinn
1994 -95 og síðan lítið breytt á 120.
þingi veturinn 1995-6. Það hlaut þá
ekki afgreiðslu en var lagt fram á
ný á síðasta þingi og samþykkt
með umtalsverðum breytingum frá
umhverfisnefnd Alþingis. Fmm-
varpið var unnið í umhverfisráðu-
neytinu í samvinnu við Samband
íslenskra sveitarfélaga og Skipulag
ríkisins og byggist á eldri fmm-
vörpum um sama efni.
Markmið
I lögunum nýju eru í fyrsta sinn
sett fram markmið skipulags- og
byggingarlaga. Er það til mikilla
Elíti
Smáradóttir,
hdL
bóta, þar sem hingað til hefur skort
á að fyrir liggi stefna eða mark-
miðssetning stjórnvalda sem hægt
er að byggja á varðandi mat á þeim
sjónarmiðum sem ber að leggja til
grundvallar við skipulagsgerð, sem
og við mat á lögmæti þeirra sjónar-
miða sem að baki ákvarðanatöku í
skipulags- og byggingarmálum
liggja-
Helstu markmið laganna eru:
- að þróun byggðar og landnotk-
unar á landinu öllu verði í sam-
ræmi við skipulagsáætlanir sem
hafi efnahagslegar, félagslegar
og menningarlegar þarfir lands-
manna, heilbrigði þeirra og ör-
yggi að leiðarljósi,
- að stuðla að skynsamlegri og
hagkvæmri nýtingu lands og
landgæða, tryggja varðveislu
náttúru og menningarverðmæta
og koma í veg fyrir umhverfis-
spjöll og ofnýtingu, með sjálf-
bæra þróun að leiðarljósi,
- að tryggja réttaröryggi í meðferð
skipulags- og byggingarmála
þannig að réttur einstaklinga og
lögaðila verði ekki fyrir borð
borinn þótt hagur heildarinnar
sé hafður að ieiðarljósi,
- að tryggja faglegan undirbúning
mannvirkjagerðar og virkt eftir-
lit með þvi að kröfum um ör-
yggi, endingu, útlit og hag-
kvæmni bygginga og annarra
mannvirkja sé fullnægt.
Hugtakið „sjálfbær þróun“ mun
ekki fyrr hafa komið fyrir í laga-
setningu hérlendis. Það er hins
vegar ekki skilgreint í lögunum
sjálfum og verður því að leita ann-
að um skilgreiningu.
Almennt er áhersla á umhverfis-
mál aukin í nýju lögunum og
ákveðnari reglur eru settar um
kynningarþáttinn og þátttöku al-
mennings. Þannig er til dæmis
gerð krafa um að við gerð skiþu-
lagsáætlana skuli eftir föngum leita
eftir sjónarmiðum og tillögum íbúa
og annarra þeirra sem hagsmuna
eiga að gæta um mörkun stefnu og
skipulagsmarkmið. Áður en tillaga
að aðalskipulagi er afgreidd í sveit-
arstjórn skal kynna hana, markmið
hennar og forsendur fyrir íbúum
sveitarfélagsins á almennum fundi
eða á annan fullnægjandi hátt.
Stjórn skipulags- og bygg-
ingarmála
Helstu breytingar sem felast í
nýjum lögum varða stjórn og frum-
kvæði í skipulagsmálum, sem fær-
ist nú í hendur sveitarstjórna í rík-
ara mæli en verið hefur og verka-
skipting milli ríkis og sveitarfélaga
verður skýrari. Skipulagsstjórn rík-
isins verður lögð niður og verkefni
hennar færð til sveitarfélaga og
Skipulagsstofnunar. Úrskurðarvald
í ágreiningsmálum færist frá um-
hverfisráðuneyti til úrskurðar-
nefndar skv. 8. gr., sem mun hafa
fullnaðarúrskurðarvald á stjórn-
sýslustigi. Nefndarmenn eru þrír,
tveir tilnefndir af Hæstarétti, en
einn skipar umhverfisráðherra án
tilnefningar.
Skipulagsstofnun
Embætti skipulagsstjóra ríkisins
verður lagt niður og í stað þess
kemur ný stofnun, Skipulagsstofn-
Lögmannablaöiö
13