Málfríður - 15.12.1985, Blaðsíða 3
MÁLFRÍÐUR Tímarit samtaka
tungumálakennara
1. tbl. 1. árg. nóvember 1985
Útgefandi: Samtök tungumálakennara á íslandi
Ábyrgðarmaður: Auður Torfadóttir.
Ritnefnd: Ásmundur Guðmundsson
Fanny Ingvarsdóttir
Gerður Guðmundsdóttir
Sigþrúður Guðmundsdóttir
Stella Guðmundsdóttir
Svandís Ólafsdóttir
Uppsetning og teikningar: Filip W. Frankson
Handritalestur: Valgeir Vilhjálmsson
Prófarkalestur: María Gréta Guðjónsdóttir
Setning, prentun og bókband:
Prentsmiðjan Rún sf. Brautarholti 6, Reykjavík.
Efnisyfirlit
Ávarp formanna.................. 5
Video in the classroom — its
use and limitations, Jacqueline
Friðriksdóttir.................. 6
Myndbönd í tungumálakennslu,
Sigurlín Sveinbjamardóttir ..... 8
Hugleiðing um notkun myndbanda
í dönskukennslu á grunn-
skólastigi, Brynhildur
Ragnarsdóttir og Jóna Björg
Sætran ....................... 10
Myndbönd á fræðslumyndasafni,
Karl G. Jeppesen.............. 12
,,Að kunna rómanskt mál er
menningarleg nauðsyn" Fanny
Ingvarsdóttir ræðir við Philippe
Peyron, fulltrúa í franska
sendiráðinu ................... 14
Þýskukennsla á íslandi,
Georg Föhrweisser.............. 16
Erindi flutt á námsstefnu á
Akureyri í september 1985
Menntun kennara, Auður
Torfadóttir ................ 18
Um stöðu tungumálakennslu á
íslandi, Auður Hauksdóttir .... 19
Ný viðhorf í kennslu erlendra
tungumála, Kirsten Friðriks-
dóttir...................... 22
Námsstefna á Akureyri
- Hugleiðing Kolbrún Bjarna-
dóttir og Pórhallur Bragason .. 25
Hvað er Asse? Stefanía Harðar-
dóttir ......................... 26
Bækur
Auður Hauksdóttir
Svandís Ólafsdóttir.......... 28
Tilkynningar frá félögunum..... 29
Lög fyrir samtök kennara erlendra
mála á íslandi .............. 30
Ritstjórnarrabb
Tungumálakennarar hafa nú fengið í hendur fyrsta tölublað eigin mál-
gagns, „Málíríðar“. Málfríður þessi kennir sig við nýstofnuð samtök tungu-
málakennara á íslandi, „STÍL“, og þegar vel liggur á henni má fá hana til þess
að segja nánar frá uppruna sínum ....kemur þá í Ijós að hugmyndin að
tímaritsútgáfu allra tungumálakennara er ekki ný. Má jafnvel rekja hana allt
til ársins 1980 þegar haldin var ráðstefnan Mál-Heimur-Mannfélag, sem var
fyrsta viðleitnin til þess að ná utan um tungumálafélögin. Óformleg samvinna
hefur verið með málafélögunum síðan þá, t.d. um ráðstefnuhald og námskeið.
Og það var svo á vordögum 1985 að endanleg samstaða náðist um útgáfu á
„Málfríði“. Er það von okkar í ritnefndinni að þessi útgáfustarfsemi megi
leiða til enn markvissari samvinnu tungumálakennara í framtíðinni.
Málfríður er ung og óráðin en stuðli hún að frjórri umræðu og skoðana-
skiptum gæti þetta tímarit orðið lykilaðili að bættri tungumálakennslu í
landinu. Kennarar hvaðanæva eiga hér að geta skipst á gagnlegum upp-
lýsingum og miðlað hver öðrum fróðleik. Málfríði er ekkert óviðkomandi
þegar kennsla er annars vegar.
Undirbúningsvinna ritnefndar hófst í júní í sumar þegar nefndin kom
saman ásamt formönnum fagfélaganna. Þá var ákveðið að gefa ritnefndinni
frjálsar hendur um efni og útlit blaðsins. Formenn hafa svo aftur verið innan
handar við gerð sameiginlegrar félagaskrár og við umsóknir um styrki til
tímaritsútgáfunnar.
Fyrsti eiginlegi ritnefndarfundurinn var haldinn í Æfingadeild Kennara-
háskóla íslands þann 18. júní og þar hefur nefndin haft bækistöðvar sínar
síðan. Fundir voru strjálir í fyrstu en frá haustmánuðum hafa nefndarmenn
hist vikulega.
Samþykktir og uppástungur um efni, sem fram komu á fyrsta fundinum,
hafa reynst haldgóðar í framkvæmd og hefur tekist vel að ná inn greinum í
blaðið. I þessu fyrsta tölublaði er aðallega fjallað um myndbönd í kennslu og
Ieitað hefur verið til kennara sem reynslu hafa á því sviði. Orðið er laust um
þetta efni og væntanlega fáum við meira að heyra. Við látum ekki staðar
numið við tæknina og áætlað er að í næsta blaði verði opnuð umræða um
tölvur. I Málfríði munu birtast bókadómar, frásagnir af endurmenntunar-
námskeiðum, fréttir af Iandsbyggðinni, upplýsingar um styrki og þegar fram í
sækir fastur lesendadálkur. Áætlað er að tvö tölublöð komi út á ári, í
nóvember og mars, og upplagið verði um 1000 eintök. Auglýsingar og
félagsgjöld standa straum af kostnaði við útgáfuna.
Við væntum þess að lesendur og áskrifendur sýni blaðinu áhuga og komi
hugmyndum og/efni á framfæri.við ritnefnd. Heimilisfangið er:
Tímaritið „Málfríður“
c/o Svandís Ólafsdóttir
Æfinga- og tilraunaskóla KHÍ
v/Háteigsveg
105 Reykjavík
Með kærum kveðjum,
Ritnefnd
3