Málfríður - 15.12.1985, Blaðsíða 26
Hvað er Asse?
ASSE er skammstöfun á Americ-
an Scandinavian Student Exchange,
en það eru skiptinemasamtök með
svipuðu sniði og verið hafa hér á
landi um árabil. Þótt ekki sé langt
um liðið síðan ASSE nam land hér-
lendis eiga samtökin sér nærri hálfr-
ar aldar sögu. Upphafið var í Sví-
þjóð þar sem forystumenn mennta-
mála beittu sér fyrir því á fjórða
áratug aldarinnar að sænskir ungl-
ingar ættu kost á námsdvöl í öðrum
Evrópulöndum. Síðar komu Banda-
ríki Norður-Ameríku til sögunnar
og síðan 1975 hafa unglingar á
Norðurlöndunum og í nokkrum
fleiri Evrópulöndum (Bretlandi,
Sviss, Pýskalandi, Hollandi og
Spáni) átt kost á námsdvöl í Banda-
ríkjunum og bandarískir unglingar
hafa á sama hátt getað komist til
Evrópu. Einnig eru möguleikar á
nemendaskiptum á milli Evrópu-
landanna innbyrðis eins og nánar
verður vikið að.
ASSE á nána samvinnu við
Menntamálaráðuneytin í Svíþjóð og
Finnlandi og Æskulýðsráð ríkisins í
Noregi, svo og bandarísk yfirvöld.
ASSE á íslandi var stofnað 1984 og
hefur þegar haft milligöngu um för
tveggja skiptinemahópa vestur um
haf. Menntamálaráðuneytið og
Menningarstofnun Bandaríkjanna á
Islandi styðja og fylgjast með starf-
semi samtakanna, sem eru rekin án
hagnaðarsjónarmiða. Þau sjónar-
mið eru að baki ASSE að með dvöl í
öðru landi á mikilvægu þroskaskeiði
eigi ungmenni þess kost að víkka
sjóndeildarhring sinn og umburðar-
lyndi gagnvart annars konar siðum
og venjum, jafnframt því að læra all-
vel erlent tungumál og auka eigin
þroska og sjálfstæði.
ASSE á íslandi hefur milligöngu
um námsdvöl í Bandaríkjunum,
Kanada og á Norðurlöndunum.
Skal fyrst vikið að dvöl vestan hafs.
Bandaríkin/Kanada.
Um er að ræða dvöl í eitt skólaár
og skólavist í ,,High-school“ en það
skólastig samsvarar í rauninni 9.
bekk og tveimur fyrstum árum
framhaldsskóla hér á landi. Yfirleitt
fara skiptinemar í síðasta eða næst-
síðasta bekk vestra. Taka þarf sex
fög yfir skólaárið. Fjögur þeirra eru
eftir frjálsu vali og er boðið upp á hin
margvíslegustu valfög. Félagslíf í
,,High-school“ er alla jafna mun líf-
legra en gerist hér á landi, þar eð
margs konar æskulýðs- og íþrótta-
starfsemi sem hérlendis er á vegum
annarra aðila ellegar er ekki fyrir
hendi fer fram á vegum skólans.
Skiptinemarnir búa hjá banda-
rískri (eða kanadískri) fjölskyldu
sem hefur boðist til að taka að sér
skiptinema. Hún t'ær enga greiðslu
fyrir og litið er á skiptinemann sem
einn af fjölskyldunni en ekki sem
gest. Þannig gefst honum kostur á
að kynnast bandarískri (eða kanad-
ískri) menningu og þjóðlífi af eigin
raun en ekki sem áhorfandi.
Trúnaðarmenn ASSE eru starf-
26