Málfríður - 15.12.1985, Blaðsíða 24

Málfríður - 15.12.1985, Blaðsíða 24
NÁMSGAGNASTOFNUN PÓSTHÓLF 5192 125 REYKJAVÍK BARN I NORDEN - athyglisverð málabók Námsgagnastofnun kynnir óvenjulega lestrar- og kennslubók. Höfundarnir skipta tugum og ritstjórarnir eru fjórir frá jafnmörgum löndum. Bókin er á sjö tungumálum. í ”Barn i Norden“ er að finna úrval texta frá öllum Norðurlöndum, Færeyjum og Grænlandi. Hver texti er á frum- málinu en hinum íslensku, finnsku og grænlensku, textum fylgja þýðingar á eitthvert hinna Norðurlandamálanna. Bókin eru ríkulega myndskreytt, byggir á aðlaðandi uppsetningu með stóru letri og er í vönduðu bandi. Henni er ætlað að kynna börnum og unglingum önnur Norðurlandamál, auka málskilning þeirra og kveikja áhuga þeirra á nágranna- og frændþjóðum. Textarnir eru margvíslegir og höfða fyrst og femst til lesenda í hópi barna og unglinga. Þessi bók ætti að koma að góðu gagni við kennslu í dönsku og íslensku enda er hún vel til þess fallin að vekja nemendur til umhugsunar um tungumál, eðli þeirra og þýðingu. ”Barn i Norden“ er gefin út af forlaginu Gyldendal í Kaupmannahöfn fyrir tilstuðlan Norðurlandaráðs. Bókin er tilbúin til afgreiðslu í gegnum úthlutunarkvóta skólanna og kostar 350 krónur. 24

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.