Málfríður - 15.12.1985, Blaðsíða 25

Málfríður - 15.12.1985, Blaðsíða 25
Námsstefna á Akureyri — Hugleiðing - Dagana 14. og 15. september s.l. var haldin á Akureyri námsstefna um stöðu tungumálakennslunnar í íslenska skólakerfinu. Á þessa námsstefnu voru bæði grunn- og framhaldsskólakennarar boðaðir og þar með var brotið blað í samskipt- um tungumálakennara hér á landi. Ekki var það síður óvenjulegt og kom manni þægilega á óvart að þurfa ekki að sækja alla „menn- ingu“ suður, og sýndu kennarar sunnan heiða aðdáunarverða sam- stöðu þegar þeir fjölmenntu hingað norður á rútubílum og gaf það námsstefnunni býsna hressandi blæ. Pað hefur löngum verið áhyggju- efni tungumálakennara í grunnskól- unum að vita tæpast hvaða kröfur framhaldsskólakennararnir gera til kunnáttu nemendanna þegar þeir fara frá okkur (við höfum að vísu alltaf haft það fyrir satt, að krakk- arnir kunnaof lítið). Fundur eins og þessi getur komið að ótrúlega miklu gagni þar sem kennarar á bæði grunn- og fram- haldsskólastigum setjast santan, ræða tnálin og hlusta hver á annan, og er ekki laust við að eftir þessa námsstefnu finnist manni bilið milli skólastiganna ekki eins geigvænlegt og áður. Það er hægt að brúa það og þarna var fyrsta skrefið tekið. Á meðan á námsstefnunni stóð var framnri bókasýning á bæöi dönskunt og enskum bókum og var það til mikillar fvrirmyndar, og þar voru einnig upplýsingar um efni bókanna og gerði það manni auð- veldara að velja fyrir nemendur sína. Við viljum vona að þessi fundur verði ekki bara ,,bóla“, hcldur verði framhald á þessu. Prátt fyrir mörg góð og fróðleg erindi var ýmsum spurningum ósvarað svo sem hvað börnin eiga að kunna í málfræði og fleira og vonum við að svör fáist næsta haust. Fað er staðreynd að eftir svona fund fer maöur miklu bjartsýnni og hressari til kennsl- unnar. Við kunnum forráðamönnum námsstefnunnar bestu þakkir fyrir gott framtak. Stórutjarnaskóla 15.10.1985 Kolbrún Bjarnadóttir Þórhallur Bragason INTERNATIONAL ASSOCIATION OFTEACHERS OF ENGLISH ASA FOREIGN LANGUAGE To be held atthe Metropole Hotel, Brighton, Sussex, England. 1 — 4 April 1986 20th International Conference Upplýsingar veitir Félag enskukennara Pósthólf 2122 127 Rvík. 25

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.