Málfríður - 15.12.1985, Side 5
Auður Hauksdóttir
Auður Torfadóttir
Elísabet Siemsen
Herdís Vigfúsdóttir
Avarp formanna
Þann 17. okt. s.l. voru formlega
stofnuð Samtök tungumálakennara
á íslandi — STÍL. Að stofnuninni
stóðu: Félag dönskukennara, Félag
enskukennara, Félag frönskukenn-
ara og Félag þýskukennara. Hug-
myndin um faglega samvinnu
tungumálakennara og hugsanleg
samtök þeirra hefur oft borið á
góma. Bent hefur verið á að tungu-
málakennarar eigi margt sameigin-
legt þó þeir kenni ólík tungumál, og
mætti þar nefna kennslufræðina.
Kennslufræði erlendra mála er orð-
in sjálfstæð vísindagrein við marga
erlenda háskóla og verið er að
vinna að margvíslegum rannsókn-
um á þessu sviði. Hér á landi hefur
þessi umræða verið í lágmarki, en
vonir standa til að samtökin geti
beitt sér fyrir því að staða tungu-
málakennslunnar hér verði tekin til
endurskoðunar, er leitt geti til
árangursríkara starfs.
Það sem ýtti hvað mest undir
stofnun þessara samtaka nú var
nauðsyn þess að tungumálakenn-
arar á íslandi fengju eigið málgagn
er gæti orðið vettvangur faglegrar
umræðu, en það liggur í augum
uppi að hvert einstakt félag hefur
ekki fjárhagslegt bolmagn til að
standa að slíkri útgáfu. Stjórnir fé-
Iaganna hafa orðið varar við vax-
andi óánægju félagsmanna utan
höfuðborgarsvæðisins sem telja sig
afskipta og utan við starf félaganna.
Ekki er vafi á að útgáfa tímarits mun
koma verulega til móts við þá. Von
okkar er að tímaritið geti miðlað
fróðleik og upplýsingum og jafn-
framt verið vettvangur til skoðana-
skipta fýrir þá er að samtökunum
standa. Augljóst er að gæði tíma-
ritsins eru undir því komin að kenn-
arar láti sig varða efni þess og eigi
frumkvæði að því að vekja athygli á
ólíkum málaflokkum. Nú þegar 1.
tölublað tímaritsins lítur dagsins ljós
viljum við þakka ritnefndinni sem
unnið hefur frábært starf.
Undanfarin ár hafa félög tungu-
málakennara haft með sér óform-
lega samvinnu. Sumarið 1980 var
haldin hér á landi samnorræn ráð-
stefna um málakennslu: „Sprog -
samfund - verden“ og stóðu að
henni öll félög tungumálakennara.
Veg og vanda af þessari myndar-
legu ráðstefnu hafði Félag dönsku-
kennara undir röggsamri stjórn
Guðrúnar Halldórsdóttur. Sumarið
1983 sóttu 12 íslenskir málakenn-
arar hliðstæða ráðstefnu í Bergen.
Félög dönsku- og enskukennara
hafa staðið að sameiginlegum
námskeiðum og fundum um að-
ferðafræði tungumála og hefur
reynslan af þessu samstarfi verið
með ágætum. I ljósi þess var
ákveðið að vinna áfram á sömu
braut og efla þannig samtakamátt
tungumálakennara.
Önnur hagsmunamál sem allir
tungumálakennarar ættu að geta
sameinast um að vinna að eru:
— menntun kennara
— bætt aðstaða til málakennslu í
íslensku skólakerfi
— gagna- og upplýsingamiðlun
— gerð kennsluefnis fyrir ís-
lenska skóla
— samstarf við hliðstæð samtök
erlendis.
Breytt heimsmynd í kjölfar tækni-
þróunar gerir sífellt meiri kröfur um
haldgóða tungumálakunnáttu.
Kennsla erlendra mála hefur verið
hálfgerð hornreka í íslenska skóla-
kerfinu, en von okkar er að kenn-
arar geti stuðlað að því í sam-
einingu að tungumálakennslan fái
þann sess sem henni ber og að í
alvöru verði unnið að því að gera
hana sem árangursríkasta.
Auður Hauksdóttir
Auður Torfadóttir
Elísabet Siemsen
Herdís Vigfúsdóttir