Málfríður - 15.12.1985, Qupperneq 13
eldri nemendum í enskunámi.
Flokkur þessi heitir VIDEO
ENGLISH og er á 8 myndbands-
spólum. A hverri spólu sem er um
það bil 30 mín. að lengd eru 20 — 25
stuttar myndir sem sýna ýmis tilvik í
daglegu lífi fólks. Myndaflokkurinn
er sérlega heppilegur til talmálsæf-
inga. Þá hefur fræðslumyndasafnið
keypt 10 stuttar stakar myndir frá
Bandaríkjunum. Myndir þessar eru
allar byggðar á bandarískum smá-
sögum og er texti þeirra allra skýr og
auðskiljanlegur. Nokkrar eldri
myndir sem hafa verið til á safninu
undanfarin ár eru enn til útláns og er
ein þeirra sem mest hefur verið
notuð, nú einnig til á myndbandi
THE WIND OF CHANGE. Rétt er
að benda á hinar mörgu mynd-
bandaleigur sem allar eru fullar af
efni á ensku, en því miður verður
það að segjast að ekki er mikið úrval
af góðu efni. Það finnast þó inn á
milli ein og ein góð mynd sem vert
væri að fá lánaða og sýna í kennsl-
unni.
Eins og fyrr segir hefur reynst
erfitt að útvega gott efni til dönsku-
kennslunnar. Engin önnur þjóð
utan Danaveldis hefur dönsku sem
skyldunámsgrein og þær tvær þjóðir
í Danaveldi sem ekki hafa dönsku
sem móðurmál, Færeyingar og
Grænlendingar, eru svo fámennar
að ekki borgar sig að framleiða sér-
stakt dönskukennsluefni á mynd-
böndum fyrir þær. Fræðslumynda-
safnið hefur reynt að fá leigðar
myndir frá Statens Filmcentral í
Kaupmannahöfn en kostnaður við
það er töluverður þannig að horfið
hefur verið frá því í bili á meðan
reyndar eru aðrar leiðir. Reynt
hefur verið að útvega myndefni sem
hægt er að kaupa og hafa í mörgum
eintökum á safninu, til þess að lána
út til skólanna. Með hjálp náms-
stjóra í dönsku hefur tekist að fá
tvær langar myndir frá Háskólabíó
og tvær aðrar hafa verið pantaðar.
Myndirnar sem Háskólabíó hefur
selt fræðslumyndasafninu eru VIL
DU SE MIN SMUKKE NAVLE?
og ISFUGLE. Þessar myndireru tilí
25 eintökum hvor og er stefnt að því
að hinar tvær sem pantaðar hafa
verið frá Háskólabíó verði til í sama
fjölda. Allar þessar myndir verða
aðeins til ótextaðar á safninu.
Námsstjóri í dönsku vinnur að
verkefnum með þessum myndum
sem væntanlega verða tilbúin til út-
láns í byrjun næsta árs. Þessum verk-
efnum er lýst hér á öðrum stað í
blaðinu. Tekist hefur að fá flokk
danskra mynda sem gerðar eru fyrir
unga nemendur í Danmörku og því
á einföldu og skýru máli. Myndirnar
eru sex talsins og fjalla allar um vatn.
Myndirnar eru heppilegar til sam-
þættingar dönskunáms og náttúru-
fræði. Myndaflokkinn Hildi ætti að
vera óþarft að kynna, en hann er til
útláns frá safninu auk þess sem hann
er til sölu í Skólavörubúðinni.
Þýska sendiráðið hefur verið
mjög viljugt að útvega þýskt efni til
safnsins. Gengið hefur verið frá til
útláns 10 fréttamyndum, ÞÝSKUR
FRÉTTASPEGILL. Með hverri
mynd fylgir texti myndanna þannig
að unnt er að kynna nemendum
efnið áður en myndirnar eru sýndar.
Einnig eru til útláns frá safninu
nokkrar langar þýskar myndir. Hér
er aðallega um að ræða gamlar
þýskar bíómyndir. Myndirnar eru
ótextaðar.
Lítið hefur enn verið gert fyrir
frönskuna. Aðeins hefur verið
keyptur einn myndaflokkur sem
ætlaður er byrjendum í frönsku. í
athugun er að kaupa myndaflokk
frá BBC sem þeir hafa framleitt fyrir
frönskukennslu í sjónvarpi.
Að lokum vil ég geta þess að það
er mjög mikilvægt við uppbyggingu
safnsins að hafa sem best samband
við kennara og heyra hvað þeim
finnst um efni það sem keypt hefur
verið til safnsins og einnig að fá
ráðleggingar við val á nýju efni.
Vinsamlega hafið samband við
deildarstjóra fræðslumyndadeildar
og látið álit ykkar í Ijós.
Karl G. Jeppesen er forstöðumaður
fræðslumyndadeildar Námsgagna-
stofnunar.
13