Málfríður - 15.12.1985, Qupperneq 14

Málfríður - 15.12.1985, Qupperneq 14
„Að kunna rómanskt mál er menningarleg nauösyn Rœtt við franska sendiráðsfulltrúann, Philippe Peyron. í menningardeild franska sendi- ráðsins hafa menn á þessu ári lagt sig mjög fram um að bæta samskipti sín við frönskukennara. Sendiráðsfull- trúi hefur m.a. haft þann starfa að flytja fyrirlestra og vera með sam- ræðutíma fyrir nemendur í skólum víða um land. Tilbreyting af þessu tagi er kærkomin fyrir alla aðila og ekki spillir það neinu, að í starfið munu sjálfsagt um ókomna framtíð veljast ungir menn, sem telja mennt- un sinni og kröftum betur varið í að efla nrenningarsamskipti landa en að æfa vopnaskak. Hér er sem sagt uni að ræða menn, sem gegna her- þjónustu á þennan hátt. Manna- breytingar gætu orðið tíðar í stöðu slíks aðstoðarliðs, en sá, sem nú gegnir starfinu heitir Philippe Peyron, sagnfræðingur að mennt. Við hittum hann að máli á dögunum og spurðum hann fyrst, hver væru aðalmarkmið menningardeildar franska sendiráðsins. „Skoðanaskipti hafa verið efld“ — Utbreiðsla tungumálsins er í efsta sæti, enda þótt menningarsam- skiptin séu á mörgum öðrum svið- um. Við höfum gert okkur far um að ná til þeirra, sem sjá um að kenna franska tungu og veita innsýn í franska menningu: Meira samstarf hefur verið haft við frönskukenn- arafélagið en oft áður, t.d. við út- hlutun hinna ýmsu stvrkja. Skoð- anaskipti hafa og verið efld. Mætti nefna þessu til stuðnings febrúar- fund okkar í MH. sem haldinn var í því augnamiði að kynnast kennur- unum persónulega og heyra tillögur þeirra. Fundurinn var að því leyti árangursríkur, að margir hafa haft samband við okkur og borið fram ákveðnar óskir, svo sem um að fá aðgang að VHS-myndböndum með efni frá Frakklandi. Ég get sagt með ánægju, að 32 slík eru komin og eru til útláns hjá okkur. Þetta eru vfir- leitt stuttar litmyndir, 10-30 mín. langar og flestar frá árunum 1980 — 1982. - Tímarit og dagblöð höfum við sent í skólana og auk þess úthlutuðum við í vor talsverðu magni af bókum, sem nota skvldi sem verðlaunabækur og á bókasöfn. — Sýning á kennslubókum í frönsku var haldin í Alliance Fran- jaise í vor og var sýningin endur- tekin nú í haust. Ég tel mikilvægt, að menn a.m.k. kynni sér þær aðferðir, sem nýjastar eru í Frakklandi og reynst hafa góðar fyrir erlenda nem- endur. Um mikið úrval er að ræða og tilvalið að prófa eitthvað af því. Við eigum til yfirlit með lýsingu á helstu aðferðum, sem til greina kæmi að nota á íslandi, og er hægur vandi að nálgast það í sendiráðinu. Sú bók, sem þegar er komin í um- ferð hér og var á sýningunni, heitir „Sans Frontieres“, en Alliance Fran^aise hefur notað bókina á námskeiðum sínum með ágætum árangri. Hún hefur einnig verið tekin upp í Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Ahugafólk um frönsku og frönsk málefni hefur haft góða möguleika á að finna skemmtun við sitt hæfi, einkum eftir stofnun myndbanda- klúbbs Alliance Fran^aise. Pað vakti og verðskuldaða athygli í fyrra, þegar hœgt var að fá nýjar frétta- myndir frá Frakklandi, svo að segja beint í æð. — En hvað um aðsóknina að hinum ýmsu uppákomum? — Ég dreg enga dul á það, að hún mætti vera betri, án þess að ég vilji gera mikið úr því, - vitandi að kennarar t.d. virðast hafa lítinn tíma aflögu fyrir utan starfið. Pað væri hins vegar æskilegt að sjá meira af nemendum í fylgd kennara sinna á kvikmyndasýningum og á fyrirlestr- um, og það er hliðrað til með tíma til þess að svo megi verða. Ef til vill kemur þarna inn í vanmat á kunn- áttu nemenda. Reynslan sýnir, að þeir geta vel fylgst með sér til ánægju eftir þriggja ára frönskunám hér- lendis. Við gerðum smátilraun á þessu á fyrirlestrinum, sem haldinn var á vegum Háskóla íslands í vor til minningar um Victor Hugo. - í 14

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.