Málfríður - 15.12.1985, Side 17
Aðeins með sameiginlegu starfi og
málefnalegri umræðu verður þessu
marki náð að mati höfundar.
Hvernig værí unnt að breyta þýsku-
kennslu eða bæta hana?
Fyrst ætti að reyna að draga (stór-
lega) úr námsefni og fara yfir hinar
ýmsu námsbækur með það markmið
í huga að finna afmarkað námsefni
með málfræðiatriðum og orðaforða,
þar sem stefnt skal að því að nem-
endur nái valdi á þessum atriðum.
Við val á lestrarefni skal taka mið af
málkunnáttustigi og áhugamálum
nemenda, en ekki metnaði skólans.
Textar ættu að vera af viðráðanlegri
þyngd og lengd, gefa tilefni og
hvetja til munnlegrar málnotkunar.
Ef til vill væri með hliðsjón af ofan-
greindu unnt að útbúa áætlanir um
lesefni og lista bæði yfir bókmenntir
og bækur með fróðleik um land og
þjóð.
Varðandi kennsluaðferðir ætti að
reyna að semja æfingar sem auka
enn frekar áhuga nemenda, gefa
þeim reglulega kost á að finna að
þeir ráði við verkefnin, og kalla fram
og efla skjót og frjó viðbrögð meðal
þeirra. Þessar æfingar þurfa alls ekki
að vera yfirborðskenndar, heldur
geta þær beinlínis eflt hið skipulega
ferli málanámsins. Með fjölbreyti-
legum gerðum æfinga er unnt að
vinna lengur og betur með texta.
Æfingar sem eru miðaðar við þekk-
ingu, getu og áhugamál nemend-
anna eru oft árangursríkari en þær
æfingar sem eru settar saman út frá
uppbyggingu (Struktur) námsefnis-
ins.
Tungumálakennsla af þessu tagi
krefst að sjálfsögðu undirbúnings af
hálfu kennarans. Og hér blasir við
afar mikill vandi. Mörgum kennur-
um stendur þessi tími ekki til boða,
þar sem þeir af ýmsum ástæðum
neyðast til að kenna langtum meira
en kennsluskylda þeirra býður. Þess
vegna verður við val á lestrarefni að
leita í auknum mæli eftir einstökum
textum og/eða textabókum sem
hafa að geyma æfingar af hinum
ýmsu ofangreindu formgerðum.
Sem dæmi um þetta má nefna
kennslubókina „Miteinander 1 —4“.
Það dylst engum að þessum hug-
leiðingum verður ekki komið í
framkvæmd á einni nóttu. Þeim er
ætlað að vekja menn til umhugsun-
ar, vera tillögur sem helgast af því að
hverjum og einum sé í sjálfsvald sett
hvað hann vill af þeim nýta, ef til vill
sem skref í „rétta átt“.
Georg Föhrweisser hefur starfaö á
vegum Gocthc-Institut síðan 1984.
Samvinnubankinn er ávallt
skammt undan
Samvinnubankinn starfrækir útibú í öllum landsfjórðungum.
Húsavik
Kopasker
Sauðarkrokur
Svalbaröseyri
Akranea
Grundarfjorður
Krokafjarðamea
Patrekafjoröur
Egilaataöir
Stoövarljoröur
Vopnafjoröur
Hafnarfjorður
Keflavik
Reykjavik
Selfoaa
Vlk
Leitið ekki langt yfir skammt, leitið til Samvinnubankans.
Samvinnubankinn
17