Málfríður - 15.12.1985, Síða 28
Bækur
Dansk.... uden problemer
í haust kom út hjá Máli og
menningu ný kennslubók í dönsku
fyrir framhaldsskóla. Höfundar
bókarinnar eru þær Hafdís Ingvars-
dóttir og Kirsten Friðriksdóttir
kennarar við Verzlunarskóla ís-
lands.
í bókinni, sem er 204 síður, er að
finna mislanga og þunga texta, og
málnotkunaræfingar í tengslum við
þá. Bókinni fylgir hlustunarefni á
snældu. Textarnir eru úr ýmsum
áttum og birtast í upprunalegri gerð
t.d. fylgja myndir auglýsingum,
sendibréf er handritað, leturgerð er
mismunandi o.s.frv., en fyrir vikið er
yfirbragð bókarinnar létt og lifandi.
Efni bókarinnar er ekki síður marg-
breytilegt, má þar nefna kynningu á
Danmörku, íþróttir, tölvur, ferða-
lög, afbrot og listir. Textarnir eru
t.d. sóttir í dagblöð, tímarit og fræði-
rit og eru ekki skrifaðir sem
kennsluefni. Pað eru nánast engir
bókmenntatextar og kemur það því
í hlut kennarans að velja smásögur
og skáldsögur eftir því sem hann
telur skynsamlegt.
I tengslum við textana eru mál-
æfingar af ýmsu tagi: hlustunaræf-
ingar, talæfingar, skriflegar æfingar
og (ýmsar) æfingar sem þjálfa texta-
skilning, svo sem efnisspurningar,
fjölvalsspurningar, endursagnir og
innfyllingaræfingar. Auk þess eru
mismunandi óbundnar æfingar þar
sem reynir á frumkvæði nemandans
sem málnotanda. Honum ert.d. gert
að skrifa kvörtunarbréf út frá
ákveðnum forsendum, leika eða
líkja eftir tilteknu hlutverki, láta í
ljós skoðanir sínar o.s.frv. Loks má
nefna áhugavert æfingarform „púsl-
þraut“, þar sem nemendur vinna
saman í hópum að lausn verkefnis,
en þá og því aðeins er hægt að leysa
þrautina, að allir hópar leysi verk
sitt af hendi.
Bókin hefur að geyma misþunga
texta um sama eða svipað efni, svo
allir geti fengið eitthvað við sitt hæfi.
Reynt er að tengja færnisþjálfunina
eðlilegri málnotkun og að nemend-
ur noti kunnáttu sína í málinu við
hinar ólíkustu aðstæður.
Höfundar Dansk .......... uden
problemer eru báðir reyndir dönsku-
kennarar og gjörþekkja dönsku-
kennsluna í framhaldsskólum.
Lengi hefur vantað kennslubók í
dönsku og er því mikitl fengur í, að
fá loks kennslubók, sem miðast við
þarfir íslenskra framhaldsskóla.
Auður Hauksdóttir
Tag fat
Höfundar Brvnhildur Ragnarsdóttir
Jóna Björg Sætran
Þórhildur Oddsdóttir
Ný kennslubók í dönsku fvrir 9.
bekk er nýkomin út hjá Máli og
menningu. Hún kom út í haust um
mánaðamótin ágúst - september,
rétt í þann mund. sem skólarnir hófu
vetrarstarf sitt.
Ég fékk bókina því miður ekki í
hendur fvrr en um leið og hún kom
út. Ég het'i lesið hana, en einungis
kennt hana í rúman mánuð þegar
þetta er skrifað. Ég mun fjalla um
bókina sem kennari og hve
kennsluhæf mér finnst hún vera.
Petta er stór og glæsileg bók í
stóru broti A4. 206 blaðsíður. Hún
er einnota. þ.e.a.s. textabók og
vinnubók eru í sömu bókinni. Bókin
skiptist í 9 þemu sem heita:
1. Töjogmode
2. Underholdning
3. Berömthed
4. Sport
5. Skole og erhverv
6. Kriminalitet
7. Mad og restauranter
8. I ferien
9. Uheld og ulvkker
Allt er þetta efni sem ég veit af
revnslu minni sem dönskukennari á
unglingastigi að unglingar hafa
áhuga á.
Höfundar segja í formála: „Pessi
bók á að koma til móts við óskir
nemenda um námsefni, sem snertir
áhugasvið þeirra og inniheldur
orðaforða, sem ætla má að nýtist
þeim í námi og/eða samskiptum við
Norðurlandabúa."
Það hefur ekki verið um auðugan
28