Málfríður - 15.09.2000, Síða 4

Málfríður - 15.09.2000, Síða 4
Rannsókn á ritfærni 16 ára framhaldsskóla- nemenda í dönsku. „At udtrykke sig skriftligt pá dansk — Hvordan stár det til?“ MA-ritgerð í dönsku: Málfríður Þórarinsdóttir. 4 í eftirfarandi grein mun ég gera grein fyrir nokkrum helstu niðurstöðum úr rannsókn minni á ritfærni 16 ára framhaldsskólanem- enda í dönsku. Uttektin er engan veginn tæmandi og bið ég lesendur að virða það. I febrúar 1999 var ritunarverkefni í dönsku lagt fyrir 448 nemendur á 1. ári/2. önn í 8 framhaldsskólum. Nemendur áttu að skrifa dönskum pennavini fyrsta bréf, þar sem þeir sögðu frá sjálfum sér, Islandi og fleiri þáttum. Af þeim 8 skólum þar sem ritunarverkefnið var lagt fyrir voru 5 skólar á höfuðborgarsvæðinu og 3 skólar á landsbyggðinni. Um var að ræða fjöl- brautaskóla, menntaskóla, og verkmennta- skóla/iðnskóla. Ekki var farið út í saman- burð á einstökum skólum, og því er rann- sóknin þversniðsrannsókn með takmörk- uðu handahófsúrtaki. Markmiðið með rannsókninni var fyrst og fremst að kanna málhæfni 16 ára nem- enda hvað varðar málfræðikunnáttu þeirra og orðaforða. Einnig voru afmarkaðir þættir í setningaskipan athugaðir. Jafn- framt var athugað hvaða hæfni nemendur búa yfir til að halda tjáskiptunum áfram þegar vantar orð (strategisk kompetence) og hvort þeir nota málið á viðeigandi hátt, hafa vald á reglum sem lúta að málnotkun, þegar um er að ræða persónulegt bréf. í þessari grein verður greint frá helstu nið- urstöðum úr rannsókninni á málfræði- kunnáttu og orðaforða nemendanna. Eftir að verkefnið hafði verið lagt fyrir voru 60 verkefni dregin út til nánari úr- vinnslu. í þessu 60 verkefna úrtaki áttu eingöngu að vera 16 ára nemendur af báðum kynjum, sem ekki höfðu önnur tengsl við Danmörku en dæmigerð geta talist fyrir íslenskan 16 ára ungling.Til þess að ná þessum markmiðum var saminn spurningalisti og lagður fyrir hópinn. Gætt var nafnleyndar. 258 nemendur reyndust vera 16 ára eða tæp 58% hópsins. Allir þeir nemendur sem höfðu búið í Danmörku, áttu danska foreldra eða nána danska ætt- ingja eru ekki með í þessari rannsókn. Samfara spurningum um tengsl við Dan- mörku voru nemendur spurðir um við- horf þeirra til dönskukennslu. Ekki hefur verið unnið nákvæmlega úr þeim svörum en til fróðleiks eru birtar hér nokkrar nið- urstöður úr spurningalistanum. Athugið að tölurnar eru fengnar með nálgun. 1. Hefur þú átt heima í Danmörku? 16 ára Já 11% Nei 85% 4. Er einhver í nánustu fjölskyldu þinni danskur? 16 ára já 12% nei 87% Áttu danska vini eða kunningja á íslandi? 16 ára já 14% nei 85% Hefur fjölskylda þín samskipti við Dani? 16 ára já 32% nei 66% Áttu danskan pennavin? 16 ára já 9% nei 89% 12. Finnst þér að við dönsku á Islandi? eigum að kenna Allir já 65% (16 ára) 64% nei 31% (16 ára) 31% Piltar já 55% nei 44% Stúlkur já 73% nei 22 % Það kemur á óvart þegar þessar tölur eru skoðaðar hversu margir virðast hafa tengsl

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.