Málfríður - 15.09.2000, Blaðsíða 30

Málfríður - 15.09.2000, Blaðsíða 30
þeirra hálfu. Eftir að hafa rætt við þennan nemanda eftir tíma varð mér ljóst að þetta var rétt hjá honum og hefur samband mitt og bekkjarins batnað nrjög og ég geri nú, held ég, sanngjarnari kröfur til þeirra. Eins og sjá má hér að ofan er kennsla afskaplega sérstakt starf og hlutverk kenn- arans vandmeðfarið starf. Það er einnig erfiðasta starf sem ég hef nokkurn tíma á ævi rninni unnið. En þetta er skemmtilegt starf þar sem mannleg samskipti, þroski og þekking fara saman á einstæðan máta. Ef ég væri spurður hvort kennslufræðin hefði nýst mér eitthvað í starfinu væri svar nritt afdráttarlaust já. An þess náms hefði mér ekki gengið eins vel og mér hefur þrátt fyrir allt gengið. Sennilega hefði ég hætt eftir fyrsta árið. Eins og staðan er í dag veit ég ekki hvort ég held áfram sem kennari. En hvort sem ég geri það eður ei mun ég alltaf hafa áhuga og skoðanir á kennslu og málurn tengdum henni. Mað- ur er nefnilega alltaf að læra og kenna á lífsins sviði. Jóhann G. Thorarensen, enskukennari við Verslunarskóla Islands

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.