Málfríður - 15.09.2000, Síða 17

Málfríður - 15.09.2000, Síða 17
Evrópskt tungumálaár 2001 Evrópuráðið og Evrópusambandið standa sameiginlega að undirbúningi og skipu- lagningu Evrópsks tungumálaárs 2001. Is- land er eitt þátttökulanda. Markmið tungumálaársins er að vekja athygli á þöl- breytni tungumála og menningar í Evr- ópu, vinna að fjöltyngi Evrópubúa og stuðla að símenntun á sviði tungumála. Is- lensk landsnefnd fyrir tungumálaárið var skipuð í febrúar og er henni m.a. ætlað að gera tillögur að dagskrá og aðgerðum hér á landi. I nefndinni eiga sæti fulltrúar menntamálaráðuneytisins, Samtaka tungu- málakennara á Islandi, samstarfsnefndar háskólastigsins, Islenskrar málnefndar og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Lands- nefndin hefur ákveðið að leggja áherslu á kennslu, erlendra tungumála og íslensku, á tungumálaári auk táknmáls. Markmiðum og dagskrá Evrópsks tungumálaárs 2001 er fyrst og fremst ætl- að að höfða til almennings. Stefnt er að því að örva áhuga, jafnt fullorðinna sem ungs fólks, á að læra ný tungumál, hvetja þá til að auka þölbreytileika í tungumála- námi sínu og kynnast nýjurn menningar- heimum þannig að þeir verði hæfari, bæði heima og erlendis, með tilliti til atvinnu, tómstunda og menningarlæsis. Aðild Islands nrun felast í þátttöku í samevrópskum sem og innlendum að- gerðum. Opnunarathöfn Evrópsks tungu- málaárs verður í Lundi í Svíþjóð dagana 18.-20. febrúar 2001 en lokaathöfnin verður haldin í Brússel í desember. Evr- ópsk vika tungumálanáms innan full- orðinsfræðslu stendur frá 5.-11. maí og Evrópskur tungumáladagur verður haldinn 26. september. Einnig kemur nrargt fleira til, s.s. útgáfa handbókar fýrir tungunrálanemendur, sameiginlegt nrerki og slagorð. Það er ljóst að Island mun verða virkur þátttakandi í ofannefndum dagskrárliðum. Innlend dagskrá er enn í nrótun og ýmsar hugmyndir hafa komið fram hjá landsnefndinni. Rætt hefur verið um að tengja árlega viðburði hérlendis á sviði tungumála, s.s. upplestrarkeppni grunn- skólanna, frönsku ljóðasanrkeppnina, þýskuþrautina og Dag íslenskrar tungu Evrópsku tungumálaári 2001. Viðurkenn- ing fyrir nýbreytni í tungumálakennslu, Evrópumerkið, (European Label) verður veitt á árinu. Ráðgert er að halda ráð- stefnu um tungutækni og einnig er áætlað að halda nrálþing um stefnur og strauma í tungumálakennslu og um þörfina fýrir tungumálakunnáttu í atvinnulífinu. I maí verður haldin samnorræn ráðstefna þar sem fjallað verður um norðurlandamálin sem erlend og önnur nrál. Komið hefur fram hugmynd unr útgáfu bæklings um sögu og stöðu íslensks máls sem dreift yrði til erlendra aðila. Leitast verður við að virkja fjölmiðla þannig að þeir fjalli meira en gert hefur verið unr nrikilvægi þess að kunna tungumál. Gert er ráð fýrir að opn- unarhátíð tungumálaársins verði hér um mánaðamótin janúar og febrúar. Framkvæmdastjórn Evrópusambands- ins veitir styrki til verkefna á tungumálaár- inu og birtist auglýsing þess efnis í Morg- unblaðinu í september síðastliðnum. Styrkupphæðin getur orðið mest 50% af styrkbærunr heildarkostnaði við verkefnið og nenra upphæðir frá krónunr 700.000— 7.000.000. Reiknað er með að veita styrki til u.þ.b. samtals 150 verkefna í þátttöku- löndunum. Þeir sem geta sótt unr styrki eru mennta- og menningarstofnanir, stofnanir og samtök á vegum bæjar- og sveitarstjórna, fijáls félagasamtök, rann- sóknastofnanir, aðilar vinnunrarkaðarins og fýrirtæki. Fyrri umsóknarfrestur rann út 2. október en sá síðari er til 15. febrúar 2001. Eg vil að lokunr hvetja alla þá sem fást við tungumálakennslu til aðgerða sem gætu orðið hluti innlendrar dagskrár á Jórunn Tómasdóttir. 17

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.