Málfríður - 15.09.2000, Page 20

Málfríður - 15.09.2000, Page 20
ianshavn Gymnasium en þangað var okk- ur boðið í heimsókn af einum fyrirlesar- anna, Lis Kornum. Aðbúnaður í skólanum þótti okkur Islendingunum heldur magur en þeim hafði þó nýverið áskotnast aukið húsnæði þegar sígarettuverksmiðja handan götunnar var lögð niður. Kennarar og nemendur við skólann eru nú gjarnan í lífshættu þegar þeir fara með námsgögn sín yfir fjölfarna götuna sem skilur húsin að. Alma Rasmussen er reyndur kennari og einn af brautryðjendum í svokallaðri ferHsritun í Danmörku. I fyrirlestri henn- ar fengum við ýmsar hugmyndir sem að gagni koma. Það fengum við einnig hjá Peter Kaspersen, sem er bókmenntakenn- ari í Haslev Gymnasium. Hann hefur mikla reynslu og þekkingu á kennslufræði bókmennta og hefur skrifað kennslubæk- ur um þetta efni, m.a. „Tekstens stemmer“ sem vakti áhuga okkar. Rúsínan í pylsuendanum var svo heimsókn ungrar skáldkonu, Naju Marie Aidt, sem er fædd á Grænlandi og tilheyr- ir þeirri kynslóð skálda sem kennd eru við 10. áratuginn. Hún hefur samið bæði ljóð, smásögur og óperutexta (Den lille Havfrue). Verk hennar fjalla yfirleitt um ósköp venjulegt fólk, vandamál og ein- angrun einstaklingsins í nútímasamfélagi. Fyrir dönskukennara, sem einkum hafa kynnst Schærfig og Rifbjerg, var þetta stefnumót við Naju afar spennandi og ánægjulegt. Skipulag og framkvæmd námskeiðsins var að þessu sinni í höndum „íslensku“ Dan- anna Jette Dige Pedersen og Michael Dal. Þeim tókst að gefa hfandi innsýn í marga þætti danskrar nútímamenningar sem byggir á gömlum merg en hefur jafnframt tileinkað sér ákveðna þætti þeirrar al- þjóðamenningar sem alls staðar eru að ryðja sér til rúms. Eiga þau hrós skilið. Guðbjörg Kolka og Sigrún Blöndal dönskukennarar við Menntaskólann á Egilsstöðum. Höfundar ásamt Jleiri þátttakendum á námskeiðinu.

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.