Málfríður - 15.09.2000, Qupperneq 27

Málfríður - 15.09.2000, Qupperneq 27
Pælingar leikstjóra Það er frumsýningarkvöld. Ljósin eru slökkt, það er þögn í salnum. Einn af áhorfendunum nagar neglur sínar. Hann er með hnút í maganum. Þetta er leik- stjórinn.Tjöldin dragast frá og hægt en ör- ugglega fer sýningin af stað. Leikararnir flytja leikverkið eins vel og þeir geta.Verk sem þeir hafa unnið að síðustu mánuði. En þrátt fýrir að leikararnir standi sig vel þá minnka áhyggjur leikstjórans ekki nema að hluta því hann veit að þetta er aðeins upphafið, upphafið að einhverju miklu meira, einhverju sem hann hefur ekki tök á að fylgjast með og aðstoða við. Þessi stutta frásögn er sú lýsing á kennslu sem myndaðist með mér það ár sem ég var í kennslufræðinni í HI. Leik- stjórinn er ég, leikararnir nemendur mín- ir, leikritið enska, sviðið próf og hfið sjálft, leiktæknin spuni byggður á ákveðnum forsendum. Þetta kom mér í sjálfu sér ekk- ert á óvart. Eg ætlaði mér jú einu sinni að verða leikari. Enskan og kennslufræðin komu seinna. Reyndar ætlaði ég mér aldrei nokkurn tíma að verða kennari. Það var ekki fýrr en í meistaranáminu sem ég ákvað að það væri sennilega ágætishug- mynd að hafa réttindin. Eg hafði líka gam- an af að vinna með ungu fólki og taldi að kennslan gæti samræmt bæði áhuga minn á námsefninu og vinnu með ungu fólki sem hefur síðan orðið raunin. Af þessu rná sjá að þegar ég hóf nánr í kennslufræðinni þá var það ekki af sterkri löngun til að verða kennari. Það var einungis af praktískum ástæðum. Það gæti verið gott að hafa réttindin. Ekki besta veganesti sem hægt er að leggja af stað með en hvað um það. Ef ég hefði vitað hversu mikla vinnu ég var að leggja út í þá er ég ekki viss um að ég hefði farið í þetta nám. En ég er ánægður að ég gerði það. Flestallt sem ég lærði í kennslufræðinni hefur nýst mér innan og utan kennslustofunnar, þó á mis- munandi máta og að mismiklu marki. Það sem hefur reynst mér hvað best er æfinga- kennslan með öllum því stressi, yfirvinnu og sálarangist sem henni fýlgdi. Að standa fyrir framan nemendur í efstu bekkjum grunnskóla reyndist mér afar erfitt. Eg hafði stundum litla hugmynd um hvað lægi að baki því sem ég var að gera. Eg undirbjó mig líka frá degi til dags í stað þess að líta á þetta tímabil sem eina heild. Þessu bjó ég að þegar ég fór að kenna í framhaldsskóla og varð reynslan öll önnur og miklu ánægjulegri fýrir þær sakir að ég vissi betur hvað ég ætlaði að gera, hvernig og hvers vegna. Auk þess var hver dagur hluti af stærri heild, svona svipað eins og hver æfing í leikhúsi er hluti af miklu stærra ferli. Það sem ég upplifði í æfingakennsl- unni hefur reynst mér ómetanlegt í kennslunni sem ég hef fengist við í rúrnt ár. En allt hitt sem ég lærði hefur einnig komið að góðum notum. Helst ber að nefna kennslufræði erlendra tungumála og námsmat sem hafa komið að beinum not- um við hina daglegu kennslu. Þetta eru þeir áfangar sem kennsla mín allt fýrsta árið byggðist að miklum hluta á. Það var svo núna í haust sem ég fór að velta fýrir mér hlutum eins og almennu kennslufræðinni. Eitthvað hafði farið lítið fýrir pælingum um hana síðasta vetur nema hvað varðar nákvæmlega þá þætti sem voru mér hvað hugleiknastir meðan á náminu stóð og má þar nefna hluti eins og ljölgreindakenninguna og hugmyndir Benjamins Blooms ásamt samhræringi af félags- og atferhsfjölskyldunni. Þetta lá, og reyndar liggur, að hluta til að baki því sem mér finnst felast í því að vera kennari. Núna í ár er ég svo farinn að líta á hina þættina sem ég hef ekki veitt eins mikla athygli. Nú hugsar þú kannski, lesandi góður, að þetta hafi ekki verið neitt mál. Góður Jóhann G. Thorarensen. 27

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.