Málfríður - 15.05.2003, Síða 8

Málfríður - 15.05.2003, Síða 8
Slík bók sem unnin er yfir heila önn á að gera nemandan- um kleift að halda áfram að nota hana á eig- in spýtur. Það er mikilvægt að tryggja að orðin sem fara í bók- ina nýtist við- komandi nem- anda vel. 8 innihaldi orð sem viðkomandi nemandi hefur vaHð, til viðbótar við orð sem e.t.v. allur bekkurinn hefur skráð. Slík bók sem unnin er yfir heila önn á að gera nemand- anum kleift að halda áfram að nota hana á eigin spýtur. Það er mikilvægt að tryggja að orðin sem fara í bókina nýtist viðkom- andi nemanda vel. I bókina eiga að fara orð og orðasambönd af ýmsu tagi, mál- fræðidæmi sem oft eru í formi algengra orðasambanda og sérstakur kafLi með dæmum sem nemandinn hefur valið (76). Glósubækur eru auðvitað ekki nýjar af náfinni, en Lewis leggur áherslu á að orð- in sem fari inn í bækurnar séu valin af hveijum nemanda fyrir sig til að bókin nýtist honum í framtíðinni. Gairns og Redman telja einnig að val nemandans á orðaforða til að læra sé til þess fallið að auka sjálfstæði hans í námi. Þau lýsa aðferð þar sem kennari ákveður hvaða orð í ákveðnum texta eru algeng og þess vegna gagnlegt fyrir alla að kunna. Þeir nemendur sem ekki kunna þessi orð æfa þau, hinir velja sér önnur orð úr textanum. Gagnrýnin sem þessi aðferð fær er að það sé ekkert eftirlit með námi þeirra sem velja sér orð sjálfir og að- ferðin sé þess vegna ómarkviss. Þessu svara Gairns og Redman með því að benda á að aðferðin hafi tvo meginkosti. I fýrsta lagi hvatninguna sem hlýst af því að læra eitthvað sem maður hefur áhuga á og í öðru lagi læra nemendur smám saman að velja sér gagnleg orð til að læra (55-57). Þessi aðferð þjálfar því nemend- ur í að bera kennsl á það sem kemur sér vel fyrir þá sjálfa að kunna og ætti því að veita þeim veganesti inn í framtíðina líkt og glósubók Lewisar. Upprifjun og samhengi Upprifjun er óumdeilt tæki við kennslu orðaforða og helst gjarnan í hendur við samhengi. Það er almennt tahð að í hvert sinn sem maður sér orð í samhengi og skilur a.m.k. hluta þess, skilji maður meira af merkingu þess. Gairns og Redman gera greinarmun á þeim orðaforða sem maður skilur við hlustun eða lestur og svo hinum sem maður notar sjálfur. Oftast er það þan- nig að eftir að hafa lesið eða heyrt sama orðið nógu oft erum við tilbúin að nota það sjálf (64). Það er tiltölulega auðvelt að koma upprifjun við í kennslu, en það kref- st meiri útsjónarsemi að endurtaka sama orðaforða í mismunandi samhengi. Bæði glósubók Lewisar og orðaveggur- inn eru tæki til upprifjunar og reglulegur þáttur í náminu. Lewis segir að ekkert eigi að fara inn í glósubókina nema nemand- inn geti rifjað það upp ef þörf krefur (75). A orðavegginn á að setja orð sem nem- endur hafa áður séð í samhengi og svo skal nota þau aftur og aftur í ýmsum æfingum. Það getur þó verið mismunandi eftir eðh orða hversu mikilvægt það er að sjá þau í samhengi. Lewis bendir á að mjög sértæk orð, sérstaklega óalgeng nafnorð, krefjist þess ekki endilega að vera skilin út frá sam- hengi. Það getur því hentað ágætlega að læra slík orð án samhengis. En því víðari skírskotun sem orð hefur, því mikilvægara er að skilja það út frá samhengi (48). Flokkun orða Samhengi nýrra orða leiðir hugann að flokkun orða í t.d. samheiti og andheiti. Gairns og Redman benda á nokkrar leið- ir til að flokka orð. Má þar nefna orð yfir svipaða hluti (t.d. ávexti), orð um ákveðna athöfn (t.d. að setja bíl í gang), orð með svipaða merkingu, orðapör (t.d. andheiti), o.s.frv. Einnig nefna þau orð sem valda sérstökum erfiðleikum hjá ákveðnum þjóðum (69—70). A Islandi væru það til dæmis orð sem byrja á „v“ annars vegar og „w“ hins vegar, vegna þess að í íslensku er ekki gerður greinarmunur á þessum tveimur hljóðum. A orðaveggnum eru orð flokkuð eftir t.d. hefðbundnum orð- flokkum (nafnorð, sagnorð o.s.frv.), staf- setningarmynstrum, málfræðimynstrum og hljóðmynstrum (Eyraud et al., 5—6). Þarna tvinnast orðaforðakennslan saman við málfræði, stafsetningu og framburð. Lewis er nokkuð sér á báti hvað þetta varðar með orðasafnskenningu sína, en hann vill flokka setningarbúta ffekar en stök orð, og fer þá flokkunin eftir hlut- verki og eðli bútanna. Þó nefnir hann óhefðbundna flokkun orða. Þar má nefna orð sem alltaf fara saman (e. polywords). Þetta eru orð eins og „by the way“ og „up to now“. Einnig bendir hann á samsett nafnorð eins og „prime number“ sem eru

x

Málfríður

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.