Málfríður - 15.05.2003, Blaðsíða 27

Málfríður - 15.05.2003, Blaðsíða 27
ar stefnum var Frank Heyworth frá European Association of Quality Langu- age Services í Fribourg í Sviss fenginn sem gestafyrirlesari fyrsta daginn. Innlegg þessa þrautreynda enskukennara og mikla fræðimanns reyndist mjög áhugavert og mótaði talsvert allar umræður og verkefni það sem eftir lifði vinnustofunnar. Frank tengdi innlegg sitt við yfirskrift vinnustofunnar með því að ræða um at- vinnumennsku eða sérfræðiþekkingu tungumálakennara (í raun spurði hann: „Is language education a profession?“), þ.e. hversu mikilvægt það væri fyrir okkur að gjörþekkja, og ekki síður, geta lýst flóknu starfi okkar til að bæta stöðu okkar inn á við og út á við. Ef okkur tekst að eyða þeirri ranghugmynd að „allir geti kennt tungumál“ (að ekki sé nú talað um þá sem hafa það að móðurmáli!) og að koma því á framfæri að við erum ekki síður sérfræð- ingar á okkar sviði en raunvísindamenn, hjarta- og skurðlæknar á sínum, er tölu- vert unnið. Til að stuðla að þessari sjálfs- þekkingu og framþróun í tungumála- kennslu kynnti Frank það sem hann kall- ar „a new paradigm for language ed- ucators“ eða einskonar viðmiðunarramma sem við tungumálakennarar ættum nú þegar að starfa eftir og/eða fylgja í nánustu framtíð. Frank tefldi saman eftirfarandi and- stæðum (og hér leyfi ég mér að einfalda töluvert...): Einkennum tungumála- kennslu frá miðri síðustu öld (og jafnvel fram á okkar daga), þ.e. lýsingu á audio- lingual kennsluháttum lituðum af atferlis- stefnu (behaviourism) og „þjóðlegri“ nálgun, annars vegar, og hins vegar nýjustu hugmyndum og framtíðarsýn um tungu- málakennslu- og nám þar sem m.a. er tek- ið meira tillit til fjöltyngdra og -menning- arlegra samfélaga, vitundar um tungumál almennt og samanburðar á tungumálum. Þessar andstæður koma skýrt fram í meðfylgjandi töflu sem Frank afhenti þátttakendum með þeim formerkjum að þeir ættu að ræða hana og gagnrýna en alls ekki taka sem heilög sannindi. Þar sést að áður fyrr var yfirleitt gengið út frá því að tungumálanemendur kynnu bara eitt mál þegar nám í fyrsta erlenda tungumáli hófst og tvítyngdir nemendur voru litnir horn- auga, tungumálanám var áhtið erfitt og hafði það háleita markmið að komast sem allra næst valdi innfæddra á viðkomandi máH, ríkari áhersla var á kórrétt mál en á menningarlæsi, svo aðeins örfá dæmi séu nefnd. I dag og í framtíðinni mun tvítyngi vera í heiðri haft í tungumálakennslu, menningarlæsi þjálfað af krafti, full virðing borin fyrir allri tungumálakunnáttu (hvort sem hún er mjög takmörkuð eða á háu stigi) og tungumálanám gert eins aðgengi- legt fyrir alla og kostur er.1 Samkvæmt Frank þurfa breyttir þjóðfé- lagshættir og þessi nýja sýn á tungumála- kennslu að skila sér betur inn í menntun tungumálakennara á öllum stigum (grunn-, framhalds- og símenntun) og í framhald- inu í skólastofurnar. Við þurfum að kunna að takast á við þessa nýju stöðu. Tungu- málakennarar þurfa einnig að einbeita sér að því í ríkari mæli að gera nemendur sína að góðum tungumálanemendum, hjálpa þeim að finna sterkar og veikar hliðar og þær leiðir í náminu sem þeim henta best og, ekki síst, gera þeim grein fyrir að tungu- málanám er æviverkefni. Besta leiðin til þess er að sýna gott fordæmi með stöðugri sjálfsskoðun og menntun. Frank kom inn á ýmislegt fleira áhuga- vert en lauk máli sínu með því að undir- strika að ef okkur tekst að kynna betur lykilstöðu tungumálakennara í þjálfun samskipta og menningarlæsis er aldrei að vita nema staða okkar batni. Slík þjálfun leiðir til betri samskipta innan alþjóða- samfélagsins, ef mikilvægt hlutverk tungu- málakennara í auknu sjálfstæði nemenda, bættum námsvenjum og þjálfun samvinnu verða almennt viðurkennt, m.ö.o. ef mikil- vægi fjölbreyttrar tungumálakennslu í nú- tímaþjóðfélagi verður lýðum ljóst, er aldrei að vita nema staða okkar batni. Undralandið En hvað er það sem er svo slæmt við stöðu okkur tungumálakennaranna? I öll- um umræðum vinnustofunnar kom það skýrt fram að það er mismunandi eftir 1 Það má skjóta því hér inn að þessi ólíka afstaða til tungumálakennslu kristallast í eftirfarandi ein- kunnarorðum sem Frank sló fram bæði í gríni og alvöru. Aður sögðu kennarar við sjálfa sig: „Hug- aðu að forminu og merkingin mun sjá um sig sjálf1, en nú væri réttara að segja: „Hugaðu að merkingunni og formið fylgir í kjölfarið". í dag og í fram- tíðinni mun tví- tyngi vera í heiðri haft í tungumála- kennslu, menn- ingarlæsi þjálfað af krafti, full virðing borin fyrir allri tungu- málakunnáttu og tungumála- nám gert eins aðgengilegt fyrir alla og kostur er. ef okkur tekst að kynna betur lykilstöðu tungumálakenn- ara í þjálfun samskipta og menningarlæsis er aldrei að vita nema staða okk- ar batni. 27

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.