Málfríður - 15.05.2003, Qupperneq 16

Málfríður - 15.05.2003, Qupperneq 16
dugað til. Nemendur þurfa að kynnast fjölbreytileika mannlífsins, sem þeir gera í blönduðum bekkjum, en þeir verða líka að geta unnið að verkefnum við sitt hæfi með jafningjum sínum. Verkefni þetta er ekki hluti af venju- legu skólastarfi í grunnskóla heldur í raun eins konar frístundatilboð sem er ætlað þeim sem hafa ákveðna hæfileika. Hug- myndin að baki verkefninu hlýtur þó að vera að þetta þróist út í það að verða hluti af reglubundnu skólastarfi. I sambandi við þá þróun þarf að huga að afleiðingum þess að ,,merkja“ krakka, líkt og gerist með slakari nemendur — það getur verið jafnslæmt að álíta sig færari en maður er og að álíta mann slakari en maður er í raun. Þannig lifir „próffinn“ eða „nör- dinn“ góðu lífi sem steríótýpa og þegar við stöndum fyrir sérverkefnum fýrir bráðger börn verðum við að gæta þess að styrkja hann ekki í sessi. Þannig er ritsmiðjan hugsuð sem tilboð fýrir nemendur sem hafa mikla tungumálahæfileika en jafn- ffiamt fyrir þann hóp nemenda sem hafa ensku að öðru móðurmáli. Þessi hópur er áhtinn þurfa litla athygli en ég tel þó að mikilvægt sé að hafa það í huga að það er eitt að hlusta á ensku í sjónvarpi og á Play Station og annað að skrifa texta og tala. Ritsmiðjan Hugmyndin að ritsmiðju kviknaði ritfrá hugleiðingum mínum um að nemendur fái ekki næg tækifæri til að skrifa og fái heldur ekki nægilegt rými fyrir sköpunar- gáfuna. Jafnframt þessu vildi ég nota upp- lýsingatækni og gera námskeiðið þannig fjölbreytt; auk þess að styrkja enskuna þá öðluðust nemendur aukna leikni í notkun ritvinnslu og netsins. Ég er jafnframt á þeirri skoðun að nemendur eigi að fá tækifæri til að skrifa án þess að þurfa að velta fýrir sér að hver smávilla verði endi- lega leiðrétt — og jafnframt að gott sé að fá að skrifa fjölbreytilegar gerðir texta. Innblástur að þessu hef ég að nokkru úr Anyone Can Write eftir Elbow (2000) en hann færir þar rök fýrir mjög fijálsri og opinni nálgun á kennslu í ritun. Hug- myndir hans gera ráð fýrir kennslu í móð- urmáli en almennt álit er að nemendum sé hollt að skrifa meira á öllum kunnáttu- stigum í tungumálum. Kveikjan að því að hafa þetta sem ,,smiðju“ er sú tilfmning gagnvart daglegu starfi mínu sem framhaldsskólakennari í fremur íhaldssömu umhverfi, að kennslan sé í alltof ríkum mæli fólgin í einhliða miðlun. Þannig fannst mér mikilvægt að ef börnin ætluðu að koma í frítíma sínum væri eins gott að skipta rækilega um stíl: Virkja ímyndunarafl þeirra og sköpunar- kraft. Hópastærðin er jafnframt hagstæð fýrir vinnu af þessu tagi þar sem ekki eru fleiri en 15 nemendur. Að baki þessu býr jafnframt sú hugmynd mín að hefðbundin hugsun um „bók- og verknám“ sé oft tak- mörkuð og að í því að fella t.d. tungu- málanám undir „bókina“ liggi ákveðin hugmynd um að tungumálanám sé ekki „verk“ heldur eitthvað dularfullt, hreint andlegt ferli. I þessu samhengi ber líka að huga að ritvinnslunni og netnotkuninni. Það eru blikur á lofti í tölvukennslu á Islandi þar sem framhaldsskólar eiga ekki að kenna grunnatriði tölvunotkunar, eins og t.d. fingrasetningu. Grunnskólarnir sem eiga að kenna þau hafa ekki tök á því með þeim aðstæðum sem þeim eru búnar (sbr. Baldur Sveinsson, fýrirlestur á UT2003 www.ut2003.is). Tölvufærni eins og Um ritsmiðjuna: Ritsmiðja í ensku. Armann Halldórsson (armann@verslo.is). Þátttakendur þurfa að geta lesið enska texta sér til gagns. Farið verður í almennar reglur varðandi ritun, stíl- snið o.s.frv. og nemendur munu síðan vinna verkefni í því samhengi, bæði hóp- og einstaklingsverkefni.Vinnan mun fara fram í tölvum að langmestu leyti. Hver þátttak- andi mun síðan í samráði við leiðbeinanda velja eina ritsmíð til birtingar í hefti sem verður útbúið í lok lotunnar. Kennslutími: laugardagar kl. 10—12.30 íVerzlunarskóla Is- lands. Fyrsti tími 6. mars. www.heimiliogskoli. is

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.