Málfríður - 15.05.2003, Blaðsíða 9

Málfríður - 15.05.2003, Blaðsíða 9
skráð sem eitt atriði í orðabókum (22). Lewis stingur einnig upp á því að t.d. flokka með orðinu „matur“ ekki einung- is ýmsar matartegundir, heldur ýmiss orð sem höfð eru um mat, einkum lýsingarorð (67—68). Hann nefnir einnig áhugaverða flokkunaraðferð sem kalla mætti sögu- flokkun (e. narration). Hún felst í því að lýsa ferli einhverrar athafnar með þeim orðum sem notuð eru um athöfnina, t.d. myndu sagnir sem allar tengjast því ferli að skrifa bréf og póstleggja það vera settar í ákveðna röð (70-71). Þessi síðasta flokk- unaraðferð hentar vel til að setja sagnir í samhengi. Sem fýrr segir benda Nilsen og Nilsen á að kenna nemendum að skilja merkingu ákveðinna morfema til að hjálpa þeim að skilja orð sem eru mynduð með þessum morfemum. I framhaldi af því mætti flokka orð eftir morfemum líkt og þau gerðu með „arm“. Orðin sem þau telja upp eru t.d. „alarm, armchair, armrest“ (260). Þessi flokkun byggir á vísbendingum innan orðanna sjálfra, þ.e. merkingar morfemsins sem orðin eru dregin af. Orðalistar og orðabækur Með tilliti til þeirrar áherslu sem lögð hef- ur verið á mikilvægi samhengis í orða- forðakennslu ætti ekki að koma á óvart að orðalistar, þar sem skráð eru nokkur orð ásamt „samsvarandi“ þýðingu, eru oft ekki taldir vera heillavænleg kennsluaðferð. Lewis telur slíka lista geta verið villandi og að glósubókin, eins og hann lýsir henni, ætti að koma í stað slíkra lista (49). Þessi tortryggni gagnvart orðalistum leiðir hug- ann að orðabókanotkun, en nemendur á lægri stigum grípa oft til ófullkominna vasaorðabóka þegar þá vantar orð eða þá að þeir nota kennarann og samnemendur sem orðabók. Gairns og Redman tala um hvað nem- andinn geti sjálfur gert til að læra orða- forða. Það er einkum þrennt: Spyrja aðra, nota orðabók og ráða í merkingu út frá samhengi. Nemandinn getur spurt aðra nemendur eða kennarann um merkingu orðs. Ef hann vantar orð yfir ákveðinn hlut getur kennarinn leiðbeint honum um hvernig hann skuli spyija á erlenda málinu (t.d. „Mér er kalt á höndunum og vil kaupa...“) og kennt honum þar með að- ferð til sjálfshjálpar, ef svo má að orði komast. Um orðabækur segir að þær hafi verið misvel séðar í gegnum tíðina, sér- staklega tvítyngdar orðabækur. Kostur þeirra sé hins vegar að þær gefi nemand- anum sjálfstæði og að nemandinn geti notað þær til að staðfesta það sem hann hefur áður giskað á. Þau telja þó að það sé þess virði að benda nemendum á með dæmum hversu óáreiðanlegar vasaorða- bækur geti verið, samanborið við vand- aðri orðabækur (77—80). Einfaldar tví- tyngdar orðabækur eru því ekki alslæmar svo fremi sem nemendum sé gerð grein fýrir takmörkunum þeirra. Orðasafnsaðferð Lewisar hefur í för með sér aukna áherslu á notkun ensk- enskrar orðabókar (eða orðabókar á því máh sem um ræðir). Nýjar orðabækur eru yfirleitt mjög vandaðar og gefa upp fjölda áreiðanlegra dæma um raunverulega mál- notkun. Slíkar bækur geta gegnt mikil- vægu hlutverki í kennslu, jafnvel stærra hlutverki en nokkur önnur bók sem not- uð er á tilteknu námskeiði. Lewis telur jafnvel að kennarar mættu veija meiri tíma, e.t.v. á kostnað hefðbundinna orða- forða- og málfræðiæfinga, í orðabókaræf- ingar þar sem áherslan er á að kanna orða- forða af mismunandi gerð. Hann telur að kennarar þurfi að þjálfa með sér aðferðir sem kenna nemendum að fá sem mest út úr nútímaorðabókum (203—204). Það hlýtur að auka á sjálfstæði nemenda að vera færir um að nýta sér það mikla magn upplýsinga sem góðar orðabækur búa yfir og ef kennslu er best varið í að kenna nemendum aðferðir til sjálfstæðis í námi er ekki nema sjálfsagt að veija tíma í notk- un orðabóka. Þýðingar Líkt og orðalistar hafa þýðingar verið ffemur óvinsæl kennsluaðferð um nokk- urt skeið. Gairns og Redman benda á að þýðingar hafi þó ótvíræða kosti. Þær geta t.d. sparað tíma sem annars væri varið í erfiðar útskýringar með misjöfnum ár- angri og komið í veg fyrir rangan skilning á samstofna orðum sem hafa ólíka merk- ingu (líkt og „öl“ í íslensku og þýsku). Meginhættan við þýðingar sé hins vegar, Hvað getur nemandinn sjálf- ur gert til að læra orðaforða? Það er einkum þrennt: Spyrja aðra, nota orða- bók og ráða í merkingu út frá samhengi. Nem- andinn getur spurt aðra nem- endur eða kennarann um merkingu orðs. 9

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.