Víðförli - 01.11.2004, Síða 10

Víðförli - 01.11.2004, Síða 10
10 VÍÐFÖRLI 23. ÁRG. 3. TBL. Myndskreytt Biblía fyrir börn og fullorðna Hér eru sögur Biblíunnar endursagðar á skýran og ein faldan hátt sem hentar bæði börnum og fullorðnum. Fjöldi mynda prýðir frásögnina og glæðir hana kraftmiklu lífi. Eftir lesturinn er söguþráður Biblíunnar orðinn lesand- anum kunnur í aðalatriðum. Sögurnar opna heim Gamla og Nýja testamentisins á þann hátt sem allir skilja. Sögur Biblíunnar eiga sem fyrr fullt erindi til allra og eru gott vegarnesti í nútímanum. Af hverju afi? í þessari bók talar afi við börn sem hlakka til jólanna. Aftur og aftur hljómar spurningin: Af hverju afi? Af hverju? Börnin spyrja afa um jólin í gamla daga og um fyrstu jólin þegar Jesús fæddist. Þau spyrja um gjafir, gamla jólasiði og gömul orð úr Biblíunni og kunnum jólasálmum eins og: Afi, hvað er þetta meinvill í myrkrunum lá? Afinn í þessari bók er Sigurbjörn Einarsson, biskup. Orð hans bera með sér hlýju og kímni ásamt visku hins aldna. Bókin svarar ekki síður spurningum fullorðinna um tíma sem er liðinn og skildi svo margt eftir handa börnum á öllum aldri. Bókin kom fyrst út árið 1984 og hefur lengi verið ófáanleg. Hún er sígild bók og ómissandi dýrgripur á aðventu og jólum. Örkin hans Nóa Sagan af Nóa og örkinni hans er auðlesin í þess- ari skemmtilegu glugga- bók. Fjörlegar myndir hennar heilla börn á öllum aldri og kenna þeim margt við þeirra hæfi er þau kynnast Nóa og dýrunum hans. Börnin fylgjast með því hvernig Nói og dýrin björguðust úr flóðinu mikla þegar þau hlusta á söguna og opna hvern gluggann á fætur öðrum. Um leið læra þau að telja og þekka litina, herma eftir hljóðum ýmissa dýra og kynnast ólíkum formum. Leiðin til Leikheima eftir Elínu Elísabetu Jóhannsdóttur hetur pu einhvern tima tarið til Leikheima? Leikheimar eru dásamleg veröld sem eingöngu börn geta fundið. Jú, og kannski eitt og eitt gamal- menni, því að tvisvar verður jú gamall maður barn! Leikheimar eru eins stórir og hugmynda- flugið og ímyndunaraflið eru ef maður leggur hvort tveggja saman. Það er ekki allt með felldu í Leikheimum. Þangað hafa villst ótótlegir vandræðaunglingar sem eiga litla sem enga samleið með börnunum þar. Það eru þeir kónarnir Fúli, Vitsi vondi og Gratis glæpafingur. Bíbí og Bassi lenda í hlutverki sáttasemjara og ótrúlegir atburðir verða til þess að allir í Leikheimum geta verið vinir. Mig mun ekkert bresta - bók um sorg og von 58 hugleiðingar eftir Jónu Lísu Þorsteinsdóttur prest við Akureyrarkirkju. Á gleðilegum tímamótum í lífi höfundar knúði sorgin skyndile- ga dyra. Lesendur skyggnast inn í huga hennar og fylgjast með því hvernig hún glímir við söknuð og sig sjálfa í óvæntum aðstæðum. Lífið birtist henni í nýju Ijósi, hún leyfir sorginni að tala og voninni að svara. Minningarnar hrannast upp og lesendur spyrja með höfundi um vonina og tilgang lífsins. Bók sem styrkir öll þau sem missa sína nánus- tu og hjálpar þeim að takast á við sorgina af raunsæi og æðruleysi. Hughreystandi frásögn, Ijóðræn og vonarrík, þar sem horfst er í augu við sorgina sem heimsækir okkur öll einhvern tíma. Vegamót - Sporin tólf og Biblían Það eru tímamót í lífi fólks þegar það leitar til AA-samtak- anna. Vegamót - Sporin tólf og Biblían fjallar um það hvernig hægt er að byggja brýr á milli tólf spora leiðar AA samtakan- na og kristinnar trúar í því skyni að styrkja trúað fólk sem sótt hefur hjálp og kraft til samtakanna. Höfundur rekur í stuttu máli sögu AA-samtakanna og ræðir síðan af þekkingu og reynslu um sporin tólf og varpar trúarlegu Ijósi á þau. Bókin geymir reynslusögur fjölda fólks á bataleið í AA-samtökunum

x

Víðförli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.