Víðförli - 01.11.2004, Side 18

Víðförli - 01.11.2004, Side 18
18 VÍÐFÖRLI 23. ÁRG. 3. TBL. Samdirðu þetta sjálf? Eyþór Gunnarsson og Ellen Krlstjánsdóttir. „Fyrstu lögin sem ég lærði á íslensku þegar ég flutti heim frá Ameríku sem barn voru tveir sálmar,“ segir Ellen Kristjánsdóttir söngkona. Hún sendi nýlega frá sér disk með sálmum í fallegum og þýðum útsetningum Eyþórs Gunnarssonar tónlistarmanns og eiginmanns Ellenar. Út- S Á L M A J gáfan Steinsnar gefur diskinn út. Víðförli hitti þau hjónin eina morgun- stund. „Eyþór hvatti mig til að láta verða af þessum diski,“ segir Ellen. „Hann fór að útsetja ýmsa sálma fyrir mig.“ Einn sálmurinn hefur verið oftar útsettur af Eyþóri en aðrir og það er sálmurinn „Jesús grætur, heimur hlær.“ „Þetta var uppáhalds- sálmum mömmu minnar, Ragnheiðar Ástu Péturs- dóttur, og ég spilaði hann oft sem strákur og lék mér að því að bæta við tilbrigðum," segir Eyþór. „Þetta er sorglegur sálm- ur en afar fallegt lag.“ Þau hjónin eru sammála um að textinn, sem er eftir sr. Helga Hálfdánar- son, eigi ennþá afskap- lega vel við, ekki síst í Ijósi stríðsátaka í heimin- um. Sálmarnir á disknum eru úr ýmsum áttum. Þarna eru barnasálmar, kvöldsálmar, föstusálmar og einn brúðkaups- sálmur. Einfaldar og þýðar útsetningarnar gera það þó að verkum að heildarsvipurinn er sterkur og afar Ijúft að hlusta á diskinn. En var erfitt að velja sálmana? „Ég hefði getað legið mjög lengi yfir því en ég ákvað að velja þá sálma sem ég þekkti. Ég er samt alltaf að læra nýja sálma. Þegar elsta dóttir okkar gifti sig í sumar vildi hún hafa íslenskan sálm í brúðkaupinu og þá var okkur bent á „Vor Guð, í Jesú nafni nú.“ Mér fannst hann fallegur og þannig var hann valinn." Ellen hefur sungið talsvert í kirkjum undanfarið og oft með bróður sínum, tónlistarmanningum KK. Þau eru með- al annars á leið til Noregs að syngja á stórum jólatónleik- um hjá norska hjálpræðishernum. Eyþór er hins vegar ný- kominn til landsins eftir upptökur með Mezzoforte erlendis svo að það er í nógu að snúast hjá fjölskyldunni. Fleiri tónlistarmenn hafa gefið út efni með trúarlegu ívafi undanfarið. En hver eru viðbrögð fólks við því að gefa út geisladisk þar sem eingöngu eru sungnir sálmar? Ellen segist bara hafa fengið góð viðbrögð enda séu þetta falleg lög. „Söngkona sem leit inn í stúdíó þegar ég var að mixa „Ég kveiki á kertum mínum“ og sagði: Mikið er þetta flott, samdirðu þetta sjálf? Ég hef bara hitt einn mann sem finnst íslenskir tónlistarmenn vera að tapa sér með allt þetta trúarlega efni,“ bætir Ellen við að lokum og hlær.

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.