Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 12

Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 12
12 SKÓLAVARÐAN VOR 2019 UMFJÖLLUN / Tækni Ekki lengur hægt að bíða af sér tæknina I ngvi Hrannar Ómarsson er kennsluráðgjafi í tækni, nýsköpun og skólaþróun hjá Sveitarfélaginu Skaga-firði. Ingvi Hrannar hefur vakið athygli hérlendis sem erlendis fyrir framsækin störf í þágu menntamála. Ingvi Hrannar hefur verið útnefndur af HundrED sem einn af 100 áhrifamestu kennurum heims, hann hefur hlotið æðstu viðurkenningu Apple á sviði menntamála og síðasta sumar hlaut hann hvatningarverðlaun Menntavísindasviðs HÍ. Skólavarðan lagði nokkrar spurn- ingar fyrir Ingva Hrannar. Hvernig hefur kennsla breyst með tilkomu snjalltækni? Spurningin ætti í raun að vera hvernig GETUR kennsla breyst með tilkomu snjalltækni því sums staðar hefur kennsla lítið breyst og annars staðar hefur hún gjörbreyst. Snjalltæki eru komin inn í skólana alla, hvort sem það er sem bannaður sími í vasanum á nemendum eða iPad-ar sem skólinn hefur ákveðið að nýta eigi til náms. Það er kannski það sem við ættum helst að vera að skoða. Af hverju sumir fara af stað á meðan aðrir ætla að bíða af sér internetið. Það sem við sjáum í þeim skólum landsins sem hafa innleitt tækni inn í nám og kennslu, bæði nemenda og starfsmanna, er að verkfærunum fjölgar, möguleikar á því að sækja sér þekkingu aukast, færnin við að nýta tækni sem náms- tæki en ekki einungis leiktæki margfaldast og nemendur hafa meiri möguleika í skilum á verkefnum, svo eitthvað sé nefnt. Eru möguleikarnir endalausir eða er eitthvað sem er hamlandi samhliða þessari tækni? Það eina sem er hamlandi við notkun tækninnar er okkar eigið ímyndunarafl, sýn okkar á hvað menntun er og hefur alltaf verið og hvort kennarar telja sig vera hluta af lærdómssamfélagi skólans eða ekki. Sumir telja nefnilega að námi sínu hafi lokið við útskrift úr Kennaraháskólanum fyrir nokkrum árum eða áratugum á meðan aðrir kennarar, á öllum aldri, halda áfram að mennta sig í gegnum miðla eins og Twitter (#mennta- spjall), Facebook-hópa, blogg, hlaðvörp (e. Podcast) eins og Menntavarp og ráðstefnur – og eru duglegir að fikta í sínum undirbúningstíma. Sitja nemendur við sama borð námslega þar sem ekki allir skólar eru með slíka tækni í kennslu? Að sjálfsögðu ekki og það er miður. En það að kaupa tækni eina og sér án þess að ætla að breyta skólastarfi, t.d. með teymis- kennslu, mun lítið gera. Einangraður kennari sem fær ekki stuðning til þess að breyta kennsluháttum og þróast í starfi mun ekki gera það. Skólastjórn- endur verða að hafa sýn á af hverju þeir vilja slíka tækni inn, hvaða markmiðum þeir vilja ná og hvaða leiðir á að fara. Það er ekki bara nóg að kaupa tæki og velta svo fyrir sér af hverju þau eru ekki notuð. Ef þú kaupir þér hund, sem þú ætlar ekki að hugsa um né ala upp, skaltu ekki láta það koma þér á óvart ef hann bítur þig einn daginn. Hvernig finnst þér undir- búningi kennara varðandi þessa byltingu vera háttað? Aftur fer það eftir skólum. Í sumum skólum sem nýta tækni fá kennarar stuðning til að prófa nýja hluti og breyta til. Þeir fá stuðning af öðrum kennurum með teymiskennslu, í sameiginlegum vinnurýmum, með sveigjan- legum vinnutíma, tækj- um eins og fartölvum og spjaldtölvum og öflugu þráðlausu neti sem styðja þá sýn, kennsluráð- gjöfum sem vinna með þeim og tæki- færum til að þróa sig í starfi með því að fara á ráðstefnur og heimsækja aðra skóla. Aðrir skólar hafa það bara áfram þannig að hver kennari hafi sína kennslustofu með 20 borðum og 20 stól- um. Kennaraborðið er fremst og á því er borðtölva tengd lélegu snúruneti. Mest er talað um stimpilklukkur og inn- og útskráningu á starfsmanna- fundum og ef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.