Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 37

Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 37
Kvennaþing Sameinuðu þjóðanna / ALÞJÓÐASTARF Þar sem Kennara- samband Íslands er 10.500 manna stéttarfélag með konur í meirihluta finnst mér ófært annað en að það sækist eftir því í framtíðinni að eiga sinn fulltrúa í íslensku sendi- nefndinni. sem var í sérstakri málstofu um feðra- orlof og mikilvægi þess að fæðingarorlof sé jafnað á milli beggja foreldra. Hún var í „panel“ með jafnréttisráðherrum hinna Norðurlandanna og það var gaman að hlusta á það sem þær höfðu fram að færa. Sjálf var Katrín fyrsti ráðherra Íslands til þess að eignast barn í embætti og fór í leyfi eins og gengur þótt gagnrýnin hafi verið hörð á sínum tíma og margir haft á því orð að það gæti nú engin kona staðið í þessum sporum, að eignast barn og halda ráðherrastóli. En Katrín sýndi þeim samt að það er lítið mál enda hafa nú karlarnir verið í þessari sömu stöðu í gegnum tíðina án þess að nokkur hafi haft sérstaklega orð á því. Ég var stolt og hreykin af forsætis- ráðherranum mínum, hún bar af og ber málaflokkinn glögglega fyrir brjósti sem er gríðarlega mikilvægt. Hitt sem vakti sérstaklega athygli mína var umræða um ólaunuð umönnunarstörf. Umönnun veikra aðstandenda eins og foreldra hvílir á herðum kvenna í langflestum tilfellum. Það eru konurnar sem sinna þeim veiku mun meira en karlarnir og það með fullri vinnu í flestum tilfellum. Þetta gríðarlega viðbótarálag er mögulega skýring á hærra hlutfalli kvenna sem glíma við kulnun í starfi vegna álags og jafnvel brenna alveg upp og falla út af vinnumarkaði. Það þarf að skoða þetta með markvissum hætti hérna heima því það er jafnréttis- mál að það sé trygg þjónusta við veika aðstandendur af hálfu hins opinbera. Á vegum íslenska ríkisins er sendinefnd sem sækir þingið í New York og í ár var hún óvenju fjölmenn. Forsætisráðuneytið hefur nú jafnréttismálin á sinni könnu og voru 50 fulltrúar í sendinefndinni á vegum félagasamtaka og stéttarfé- laga. Má þar nefna fulltrúa frá Kvennaathvarfinu, Stíga- mótum, Kvenréttindafélagi Íslands, Soroptimistum og fleiri samtökum og ekki síður voru öll stærri stéttar- félög landsins með fulltrúa í þessari sendinefnd; mörg aðildarfélög ASÍ, BHM og BSRB, svo eitthvað sé nefnt. Kennarasamband Íslands hefur aldrei átt fulltrúa í íslensku SORPA býður fræðslu- og vettvangsferðir fyrir nem endur á öllum aldri. Fræðslan tekur mið af þörfum hópsins og er boðið upp á mismunandi leiðir. • Fyrirlestur og vettvangsferðir nemenda í móttökustöð SORPU í Gufunesi. • Vettvangsferðir nemenda á endurvinnslustöð. • Ráðgjöf og fræðsla í skólann fyrir nemendur og starfsfólk. Í fræðslunni er lögð áhersla á um hverfis ávinninginn sem felst í því að draga úr úrgangi og flokka og skila til endurnýtingar. Hinir ýmsu hlutir geta öðlast framhaldslíf, í höndum nýrra eigenda eða sem nýjar vörur, ef við flokkum rétt. Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is Nánari upplýsingar um fræðsluna og pantanir, er að finna á sorpa.is NOTAÐ FÆR NÝTT HLUTVERK FRÆÐSLA HJÁ SORPU sendinefndinni. Sá háttur er hafður á að þau félög sem vilja leggja til fulltrúa óska eftir því við forsætis- ráðuneytið og greiða sjálf kostnað fyrir sinn fulltrúa. Þar sem Kennarasam- band Íslands er 10.500 manna stéttarfélag með konur í meirihluta finnst mér ófært annað en að það sækist eftir því í framtíðinni að eiga sinn fulltrúa í íslensku sendinefndinni. Þarna sækjum við okkur þekkingu og fróðleik og getum ekki síður lagt gott til og miðlað af góðum árangri okkar. Það er mín skoðun eftir þessa þátttöku í kvennaþinginu að Kennara- samband Íslands eigi að óska eftir því við forsætis- ráðuneytið að fulltrúar á okkar vegum verði alltaf hluti af íslensku sendi- nefndinni og að ári eigum við að sækjast eftir því að halda einn hliðarviðburð þar sem við kynnum fyrir alþjóðasam- félaginu okkar starf í jafnréttismálum sem er til mikillar fyrirmyndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.