Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 23

Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 23
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 23 Kristín Valsdóttir / VIÐTAL T ilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á þær áskoranir sem mæta nemendum sem koma inn á nýjan vettvang og hefja nám í kennslufræðum á meistarastigi og er markmið- ið meðal annars að þróa áfram meistaranám fyrir listamenn. Niðurstöður sýna að hjá þátttakendum eiga sér stað nokkur átök sem tengjast því að fara á milli vettvanga, úr heimi listanna yfir í heim skólanna. Meginniðurstöður Kristínar eru að sú vegferð að tileinka sér nýja sjálfsmynd sem listkennari meðfram því að vera listamaður krefjist tíma. Því hafi lenging kennaranáms töluvert að segja. Þá má nýta niðurstöður rannsóknarinnar við þróun og uppbyggingu frekara meistara- og doktorsnáms fyrir listamenn á Íslandi. Kristín Valsdóttir byrjaði að læra á píanó þegar hún var sex ára. „Amma mín, sem var frá Seyðisfirði, lærði á píanó. Hún sigldi um tvítugt ásamt vinkonu sinni til Berlínar árið 1931 og þar lögðu þær stund á píanó- og söngnám. Þær voru þó ekki lengi þar vegna uppgangs nasismans. Þó amma lærði síðar hjúkrunarfræði starfaði hún einnig sem píanókennari og undirleikari. Þegar hún giftist afa og flutti til Siglufjarðar með sitt píanó bættist það við þau tvö sem hann átti fyrir. Þau ákváðu því að senda píanó til fjölskyldu minnar í bæinn og þannig kom Pedersen-píanó afa á heimilið þegar ég var sex ára. Í framhaldinu vorum ég og systir mín, sem er tveimur árum eldri, sendar í píanónám. Mér fannst ofsalega gaman að spila þangað til mér var gert að æfa mig dálítið mikið. Ég er frekar mikil félagsvera og var á kafi í dansi og handbolta og fannst ekki spennandi að sitja ein við hljóðfærið í marga klukkutíma á dag. Ég tók mér þess vegna pásu sem unglingur en byrjaði aftur að læra á píanó undir tvítugt.“ Tónlistin togaði einfaldlega í Kristínu Vals- dóttur. „Tónlist er eitthvað sem ég hef alltaf tengt við. Ég hef alltaf sungið mikið og foreldrar mínir sögðu að ég hefði þau í svefn þegar ég var lítil og að ég hefði á tímabili eiginlega sungið meira en talað. Ég gat farið inn í annan heim þegar ég var að spila og syngja. Ég var mikið tilfinningabúnt og ég fékk einhverja útrás í tónlistinni.“ Nám í Salzburg Kristín stundaði nám á náttúru- og síðar félags- fræðibraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti og eftir stúdentspróf kenndi hún í grunnskólanum á Eskifirði í einn vetur. „Sú reynsla mótaði framtíð mína að miklu leyti því mér fannst svakalega skemmtilegt að kenna og þykir enn. Einnig notaði ég tímann til að halda píanókunnáttunni við og var í tímum hjá Pavel Smid sem kenndi við tónlistar- skólann og varð síðar organisti við Fríkirkjuna í Reykjavík.“ Enn togaði tónlistin í Kristínu en hún lauk síðar tónmenntakennaraprófi frá Kennarahá- skóla Íslands og starfaði eftir það í fimm ár sem tónmenntakennari og almennur kennari við Vesturbæjarskóla. Hún stundaði á sama tíma bæði píanónám og söngnám og hún hefur verið í kórum í áratugi. „Tónlist er eitt af tjáningarformum manneskjunnar. Við tjáum okkur með orðum, tónlist, myndum, látbragði og hreyfingum. Þessi tjáningarmáti hentar mér mjög vel.“ Kristín fór síðan í tveggja ára framhaldsnám í tónlistar- og danskennslu við Orff Institut, tón- listarháskólann Mozarteum í Salzburg í Austurríki. „Þannig gat ég tengt saman tónlistaráhugann og hreyfiþörfina; dansinn.“ Hún kom heim árið 1992, kenndi um tíma í Vesturbæjarskóla og varð stundakennari og síðar aðjúnkt við Kennaraháskóla Íslands til ársins 2008. Kristín starfaði á þessum tíma líka við tón- listarkennslu og kórstjórn í Vesturbæjarskóla og við Dómkirkjuna og Tónlistarskólann í Reykjavík. Þá var hún kennari á sviðslistadeild Listaháskóla Íslands og stundakennari við tónlistardeild og í kennslufræði skólans. Kristín útskrifaðist árið 2006 með meistara- gráðu í menntunarfræðum frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur verið deildarforseti listkennslu- deildar Listaháskóla Íslands frá því að deildin var stofnuð árið 2009. Kristín segir að verkefnin sem hún hafi sinnt í starfi sínu við LHÍ séu ótrúlega skemmtileg. „Hér hafði kennaranám verið í boði, byggt sérstaklega á því sem hafði verið í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þegar lög um menntun kennara og skólastjórnenda um að allir kennarar skuli ljúka meistaragráðu voru sett þá var tekin sú ákvörðun hér innanhúss að bæta við fimmtu deildinni, list- kennsludeild, við skólann. Hún er kennslufræði- deild en fyrir voru deildir tengdar hönnun og arkitektúr, myndlist, sviðslistum og tónlist. Stjórn- endum á þeim tíma fannst skólinn ekki mega vera eftirbátur annarra háskóla og að við yrðum að byggja undir kennaranám listamanna og þar með listmenntun allra barna. Nýjungin var að þetta yrði eingöngu meistaranám; tveggja ára nám fyrir þau sem hefðu lokið BA-gráðu í listum og að í deildinni kæmi saman fólk úr öllum listgreinum. Hér fara nemendur í áfanga sem eru tengdir viðkomandi listgrein en nemendur úr öllum greinum fara svo saman í tíma í almennri kennslufræði, heimspeki og sálarfræði og svo í valnámskeið. Þeir eru því að deila reynslu sinni og fólk uppgötvar nýjar hliðar á sjálfu sér þegar það er svona mikið samkrull og samvinna í gangi.“ Í doktorsnám Upphafið að doktorsverkefninu má segja að hafi verið árið 2008 þegar Kristín sótti um doktorsnám við háskólann í Perth í Ástralíu. Kristín segir að þegar hún hafi verið komin með fulla stöðu við háskóla og séð fyrir sér að hún vildi leiða rannsóknarverkefni þá hafi henni fundist hún verða að hafa doktorsgráðu. „Í meistararitgerð minni fjallaði ég um hvað einkennir farsæla Sjálfsmynd listgreina- kennaraefna Kristín Valsdóttir, deildarforseti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands, varði í vetur doktorsritgerð sína „Að verða listkennari – lærdómsferli listamanna“ frá Háskóla Íslands. Rannsóknin fjallar um nám og námsferli þeirra listamanna sem bæta við sig kennaranámi og sjálfsmynd listgreina- kennaraefna er áberandi í henni. Texti: Svava Jónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.