Skólavarðan


Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 31

Skólavarðan - 2019, Blaðsíða 31
VOR 2019 SKÓLAVARÐAN 31 Leikskólinn / UMFJÖLLUN og notum kveikjur til að hefja sam- ræðuna. Oft erum við með íslenskar sögur en líka myndrænar kveikjur. Eitt verkefnið er að setja fram myndir sem börnin flokka eftir því hvort þeim finn- ast þær fallegar eða ekki. Síðan er farið yfir hverjir eru sammála eða ósammála og af hverju þá. Rökræðan skiptir máli og mikilvægt að börnin læri að það er allt í lagi að vera ósammála. Þau læra að mynda sér sér sína eigin skoðun og að það er í allt í lagi að hafa aðra skoðun en hinir,“ segir Ingi Jóhann. Jafnréttið allt um kring Jafnréttisáætlun Lundarsels er afar ítarleg og er skrifuð fyrir starfsfólk, börn og foreldra leikskólans. Þar segir meðal annars; „Við stuðlum að og ýtum undir jafnrétti kynjanna á sem fjölbreyttastan hátt. Við komum fram við alla, kennara, börn, starfsmenn og foreldra með virðingu. Sýnum traust og trúnað, hlýlegt og glaðlegt viðmót og kurteisi. Við stuðlum að og ýtum undir að þess sé gætt að jafnrétti ríki í öllu starfi leikskólans“. „Við leggjum mikla áherslu á jafnrétti á öllum sviðum. Kyn á ekki að hamla eru okkar einkunnarorð og við vinnum markvisst gegn staðalmyndum kynjanna. Við tókum þátt í samstarfs- verkefninu Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir sem var afar áhugavert og gefandi. Við leggjum áherslu á að börn- in fái jafnréttisfræðslu og sé undirbúin til jafnrar þátttöku í samfélaginu,“ segir Björg. „Við brýnum fyrir börnunum að allir megi prófa allt en fræðilega er talað um að þegar börn séu þriggja til fjögurra ára þá fari þau að tala um að eitthvað sé „stelpulegt“ og annað „strákalegt“. Við reynum að brjóta þessa „kynjun“ upp með til dæmis dótadögum þar sem er kannski leikið með dúkkur einn daginn og bíla hinn daginn. Hugmyndin er að krakkarnir sjái að allir megi leika með allt. Svo heimsækjum við fyrirtæki og skoðum við hvað foreldrarnir vinna og einnig höfum við farið í VMA til að kynna okkur námsgreinarnar þar; stelpurnar hafa kynnt sér hefðbundnar „stráka- greinar“ og strákarnir hefðbundnar „stelpugreinar“. Svo höfum við tekið umræðuna með börnunum. Við reynum að kenna börnunum að vera sjálfstæð og fordómalaus,“ segir Ingi Jóhann. Heimspeki er „stórt“ orð Um 90 börn eru á leikskólanum Lundarseli og eru starfsmenn 25. Þar af eru 16 leikskólakennarar með leyfisbréf sem verður að teljast gott hlutfall. Flest annað starfsfólk býr yfir annarri menntun. Starfsþróun og endurmenntun starfsfólks er afar mikilvæg að mati Bjargar. „Við getum alltaf bætt okkur í starfi og við reynum að hvetja okkar fólk til starfsþróunar. Við tókum til dæmis öll þátt í þróunarverkefninu Hugleikur – samræður til náms í Háskólanum á Akureyri fyrir tveimur árum. Efni verkefnisins er nátengt okkar hugmyndafræði og reyndist þetta mikil vítamínsprauta fyrir allan starfsmannahópinn. Þá sér Helga María um að þjálfa nýtt starfsfólk í hugmyndafræðinni okkar – og heldur stutt námskeið fyrir nýja kennara og starfsfólk. Heimspeki er stórt orð í huga margra og sumir óttast það. En nýir kennarar fylgjast með hinum reyndari og undantekningalaust lærist þetta fljótt og vel,“ segir Björg Sigurvinsdóttir leikskólastjóri. Áhugasamir geta heimsótt vefsíðu Lundarsels (lundarsel.is) en þar er að finna margs konar fróðleik um starfsemi leikskólans, umfjöllun um heimspeki og ítarlega jafnréttisstefnu svo fátt eitt sé nefnt. Björg Sigurvinsdóttir, leikskólastjóri í Lundarseli, og Ingi Jóhann Friðjónsson, leiðbeinandi með BA-gráðu í heimspeki og núverandi meistaranemi í leikskólakennarafræðum. Dæmi um markmið með heimspeki með börnum XX Samræða þjálfar börn í að koma hugsunum sínum í orð. XX Að koma auga á áður óþekkt tengsl. XX Börnin verða færari í að mynda sér sjálfstæðar skoðanir eftir að hafa velt hlutunum gagnrýnið og skapandi fyrir sér. XX Börnin öðlast aukinn skilning á sjálfum sér og öðrum. XX Auk þess öðlast þau aukinn skilning á lífinu og tilverunni. Sjá nánar á lundarsel.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.