Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2007, Side 3
The Gay Pride celebrations in Reykjavík have been a huge success
for eight years now. They include a packed, colorful and exuber-
ant Gay Parade along Laugavegur, the main shopping street in
the city center, and a grand outdoor concert attended by 50,000
participants each year – lesbians and gay men, friends, relatives,
fellow citizens and numerous foreign visitors – to show solidarity
with the gay cause on the second weekend in August.
This year’s Gay Pride celebrations, on Saturday 11 August, have
been organized to meet our wildest expectations, with a
Gay Parade even more colorful than in previous years and
a variety of well-known professional entertainers perform-
ing on stage.
The gay rights campaign in Iceland has a history going
back thirty years. It is a tale of struggle and triumph
almost unique in the world. From being an invisible,
oppressed minority, lesbians and gay men in Iceland have
now gained social and legal rights comparable to the best
of their kind in the world. This is clearly reflected in our celebra-
tions – a true manifestation of our pride and ambition.
We are pleased to welcome you to Reykjavík Gay Pride 2007.
We emphasize that gay solidarity can only be realized universally.
Thank you for joining us – thank you for adding your own special
touch of color to our rainbow.
Níunda árið í röð halda samkynhneigðir Hinsegin daga hátíðlega
í Reykjavík. Eftir mikinn og vandaðan undirbúning allt frá síðustu
hátíð, fjölmenna allir sem vilja sýna samstöðu með málstað hin-
segin fólks í fjörmikla og skrautlega gleðigöngu niður Laugaveg
og á glæsilega útitónleika í Lækjargötu laugardaginn 11. ágúst.
Á hátíðinni í ágúst minnum við sjálf okkur og aðra á mikilvægi
þess að efla sýnileika okkar og stoltar tilfinningar. Með hátíða-
höldunum minnum við bæði sjálf okkur og aðra þegna þessa lands
á það að lesbíur og hommar á Íslandi eiga sér menningu
og sögu, þau eiga fjölskyldur og vini sem vilja deila gleði
og stolti með þeim sem náð hafa lengra en samkynhneigt
fólk flestra annarra ríkja í mannréttindabaráttu sinni.
Hinsegin dagar í Reykjavík eru orðnir hefðbundinn
þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný í hvert sinn. Í ár
munu allir þeir slást í hópinn sem voru fjarri góðu gamni
í fyrra. Vonandi taka þeir með sér systkini sín og foreldra,
afa og ömmur, ættingja og vini. Leit okkar að frelsi, stolti
og mannvirðingu er nefnilega ekkert einkamál samkynhneigðra,
hún er mál allrar þjóðarinnar og alls þess heims sem lætur sig
mannlega hamingju varða. Á hátíðinni í ágúst sameinast allir
undir regnbogafánanum sem táknar litrófið í margbreytilegri
menningu hinsegin fólks. Þótt litirnir séu margir mynda þeir
saman einn skínandi regnboga.
Samstarfsnefnd um
Hinsegin daga í Reykjavík 2007
Welcome to Reykjavík Gay Pride 2007
Velkomin á Hinsegin daga í Reykjavík
GÓÐ HUGMYND
FRÁ ÍSLANDI
LIPURÐ
Fimm gangtegundir í bland við seiglu og lipurð
er góð hugmynd sem nær fótfestu hvar sem er.
Við hjá Icelandair leggjum þannig áherslu á
fjölbreytileika í starfsemi okkar, hæfni til að geta
brugðist vel við mismunandi óskum við ólíkar
aðstæður, áherslu á traust og sveigjanleika.
Saman náum við settu marki.MADRID
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
REYKJAVÍK
AKUREYRI BERGEN
GAUTABORG