Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 35
35
Heiðursgestur Hinsegin daga í ár er hin
óþreytandi Miss Vicky frá Suður-Flórída.
Hún fæddist á Manhattan, en ólst upp í
Vestur-Bronx í New York og var aðeins
fimm ára gömul þegar hún byrjaði að læra
á fiðlu. Síðar lá leiðin í hinn fræga tónlist-
arháskóla Juilliard, og 75 árum eftir að hún
hóf fiðlunámið er hún enn að troða upp.
Miss Vicky á tvær dætur og son. Hann
er samkynhneigður og það þýddi bara eitt
fyrir Miss Vicky: Fyrir 30 árum fór hún
að láta réttindamál samkynhneigðra sig
varða og er enn að. Hún hefur starfað á
vettvangi South Florida Pride Fest í meira
en aldarfjórðung, og eftir að sonur henn-
ar greindist með alnæmi fyrir allmörgum
árum, hefur hún einnig verið óþreytandi í
baráttunni fyrir mannréttindum
HIV-jákvæðra.
Þegar Jeb Bush ríkisstjóri í Flórída
ákvað að strika út niðurgreiðslur
á lyfjum til HIV-jákvæðra með
einu pennastriki án samráðs við
starfsfólk eða samtök í heilsugæslu, skrif-
aði Miss Vicky ríkisstjóranum og nánast
öllum þingmönnum á ríkisþinginu í Flórída
til að mótmæla. Ekki nóg með það, hún
skipulagði fjöldabréfasendingar annarra í
sama tilgangi. Sjálf hefur hún undirritað
á þriðja þúsund bréfa til ráðamanna í
Bandaríkjunum vegna málsins.
Það mætir enginn á þing InterPride án
þess að kynnast Miss Vicky, enda hafa fáir
mætt oftar á þau en hún – þau munu vera
um 20 talsins. Sá sem þetta skrifar hitti
hana fyrst á InterPride þingi í Glasgow árið
1999 og það varð upphaf að órjúfanlegri
vináttu við þessa einstöku konu.
En tónlistin er aldrei langt undan hjá
Miss Vicky. Þótt hún standi á
áttræðu kemur hún
enn fram nokkrum
sinnum í viku. Hún
heldur til dæmis
reglulega Karaoki-kvöld
þar sem hún stjórnar
uppákomunni og treður
upp sjálf. Hún ræður við
margvíslegan tónlistarstíl, en það sem hún
býður okkur upp á á opnunarhátíð Hinsegin
daga í Loftkastalanum er nokkurs konar
revíu-djass, efni af nýlegum geisladiski
sem hún hefur sent frá sér. Diskurinn heitir
Out and About en lagið „Beaver“ af þeim
diski hefur slegið í gegn og er leikið á
útvarpsstöðvum um öll Bandaríkin. Maður
að nafni Chuck Prentiss semur öll lögin
og textana fyrir Miss Vicky, en hann á að
baki glæsilegan feril sem höfundur verka á
Broadway og víðar.
Miss Vicky hefur hlotið fjölda viður-
kenninga fyrir störf sín í baráttusamtökum
samkynhneigðra. Þótt hún eigi til gyðinga
að telja, hefur hún árum saman starfað á
vettvangi Metropolitan Community Church
(MCC) á Suður-Flórída, en þar er hún fram-
kvæmdastjóri safnaðarins og hefur stjórnað
kór kirkjunnar. MCC er alþjóðleg kirkja
hinsegin fólks, en eins og margir muna kom
sr. Pat Bumgardner prestur MCC í New
York í heimsókn til okkar í fyrra og flutti
ógleymanleg predikun í Hallgrímskirkju.
Miss Vicky komst ekki til Reykjavíkur árið
2005 þegar þing InterPride var haldið hér
á landi. Þess vegna vill samstarfsnefnd
Hinsegin daga heiðra hana með því að
gera hana að heiðursgesti hátíðarinnar í ár.
Hægt er að kaupa diskinn hennar
Miss Vicky á
opnunar-
hátíðinni í
Loftkast-
alanum.
The One and Only Miss Vicky
Miss Vicky of South Florida is a spe-
cial guest of honor at the Reykjavik
Gay Pride 2007. She has been giving
musical perfor-
mances for
over 70 years
or since she
was five
years old
in New
York. She
attended a
music and
art high
school in
New York and studied music
for three years at the
famous Juilliard School.
Mother of two daugters and
a gay son, she has been
living in South Florida for
decades. There she has
fought for gay rights for 30 years and
has been involved with South Florida
Pride Fest for more than twenty years,
and currently on the board. AIDS hit
home for Miss Vicky when her son was
diagnosed HIV-positive. When Govenor
Jeb Bush cut the so called Medicaid
Medically Needy Share of Cost
Program, that her son relies on to pay
for his medications, Miss Vicky fought
for her son and others. She organized
letter-writing campaign with appeals
to 30 government officials including the
governor.
Miss Vicky will perform material from
her new CD at the Pride Opening
Ceremony at Loftkastalinn Theater,
10 August. The songs and lyrics are
especially composed for her by Chuck
Prentiss. Among the
numbers is “Beaver” –
an instant hit at clubs
and radio stations all
over USA.
miSS vicKy
Einstakur listamaður
og einlæg baráttukona
H E i M i r M Á r P É T U r S S o n
Me› Janet Reno
dómsmálará›herra Bandaríkjanna
Michael,
sonur Vicky