Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 41
LONDON I Heimsborgin á bökkum Thames, London, er
suðupottur ólíkra viðhorfa og spannar allt litróf mannlífsins.
En London er ekki bara heimsborg. Hún er líka samsafn ólíkra
bæjarfélaga eða hverfa sem hvert hefur sinn sérstaka svip,
mannlíf og hefðir. Elst er City, hin upphaflega London þar sem
ferðamaður kemst næst því að finna hina aldagömlu London.
Vestur af City er West End með Covent Garden og Soho og
enn vestar er Westminster, stjórnarhjarta hins gamla heims-
veldis. Annað vinsælt borgarhverfi er Notting Hill þar sem er
gaman að bregða sér á markaðinn á Portobello Road.
BERLÍN I Berlín er aftur orðin sú gamla, góða, djarflega og
kraftmikla Berlín sem virkaði eins og segull á þá sem vildu fara
ótroðnar slóðir í Evrópu fyrir átta áratugum. Borgin ólgar af
sköpunarkrafti og heitum tilfinningum og það er margt að sjá og
upplifa. Í Mið-Berlín, „Mitte”, er hið sögufræga Brandenborgar-
hlið og Safnaeyjan svonefnda þar sem eru frábær listasöfn.
Annar sögufrægur staður í Berlín er „East Side Gallery” og
safnið, sem er kennt við „Checkpoint Charly” geymir muni sem
tengjast flóttatilraunum á milli Austur- og Vestur-Berlínar.
NEW YORK I Skýjakljúfarnir á Manhattan eru ekki aðeins
tákn New York, tákn nútímans og tákn fyrir mesta viðskiptaveldi
mannkynssögunnar. Skýjakljúfarnir eru einnig táknmynd þess
FJÓRAR
BORGARPERLUR
Nánari upplýsingar um framangreindar borgir er að sjálfsögðu að fá á heimasíðu Icelandair, www.icelandair.is, í ferðabæklingum Icelandair
og á ferðaþjónustuvefsíðum sem tengjast þessum fjölsóttu og vinsælu ferðamannaborgum.
kröftuga mannlífs og menningar, gróskunnar og hins litríka og
frjálslynda mannlífs sem hvarvetna blasir við augum í New York.
Upplifun ferðamanns, sem kemur til New York í fyrsta skipti,
verður ekki lýst með orðum. Jafnvel þó menn geri ekki annað en
að skoða mannlíf og merkisstaði á Manhattan eru hughrifin svo
sterk, hlaðin andstæðum og fjölbreytileika, að nokkrir dagar
verða upplifun sem fylgir fólki til æviloka.
HELSINKI I Helsinki er heillandi borg fyrir þá sem hafa unun
af fallegri hönnun og arkítektúr á heimsmælikvarða. Hún hefur á
sér bæði norrænt og rússneskt yfirbragð, þegar horft er til
byggingarlistar, þar sem má sjá margar stórkostlegar byggingar,
sumar eins og fluttar beint inn frá gamla rússneska
keisaradæminu og aðrar með skandínavísku yfirbragði sem
gætu þess vegna verið í Stokkhólmi. Í Helsinki eru fjölmargir
áhugaverðir staðir, byggingar og söfn, og prýðisgóðir
veitingastaðir og skemmtistaðir. Enginn getur látið sér leiðast í
Helsinki.