Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 6
Jimmy Somerville er án efa frægasti tón-
listarmaður sem komið hefur fram á hátíð
Hinsegin daga frá því að Sigur Rós tróð
þar upp árið 1999. Hann varð hin mikla
fyrirmynd margra á sínum tíma fyrir að
fara ekki í felur með kynhneigð sína og
sennilega fyrsti popptónlistar maður nútím-
ans úr röðum samkynhneigðra sem alltaf
hefur komið fram á eigin forsendum.
Jimmy Somerville skaust upp á
stjörnuhimininn á níunda áratugnum með
hljómsveitunum Bronski Beat og The
Communards, en eftir að þær liðu undir
lok hefur hann átt farsælan sólóferil.
Hljómsveitin Bronski Beat var stofnuð
árið 1983 og naut gríðarlegra vinsælda
víða um heim. Til dæmis komst lagið
„Smalltown Boy“ sem fjallar á beittan hátt
um hómófóbíuna og grimmd hennar í þriðja
sæti á breska vinsældalistanum á sínum
tíma en af frægum lögum Jimmys með The
Communards má nefna „Don’t Leave Me
This Way“ sem Thelma Houston hafði áður
gert vinsælt.
Jimmy Somerville hóf sólóferil sinn
árið 1988. Hann átti marga vinsældarsmelli
á næstu árum og var einn þeirra fjölmörgu
tónlistarmanna sem komu fram á seinni
Band Aid tónleikunum árið 1989. Read My
Lips kom út árið 1991, þar sem m.a. má
finna hina vinsælu útgáfu Jimmys á lagi
Sylvesters, „You Make Me Feel (Mighty
Real)“. Árið 1995 kom svo út hljómplatan
Dare To Love sem m.a. hafði að geyma
lagið „Heartbeat“ en það komst í fyrsta
sæti á bandaríska danslistanum. Manage
The Damage kom út árið 1999 en nýjasta
hljómplata piltsins og fjórða sólóplata
hans, Home Again, kom út árið 2005.
Jimmy Somerville kemur fram á opnun-
arhátíð Hinsegin daga í Loftkastalanum
föstudaginn 10. ágúst og á útitónleikunum
í Lækjargötu að lokinni gleðigöngunni í
miðborg Reykjavíkur laugardaginn 11. ágúst.
Jimmy Somerville who gave us
“Small-town Boy” and “Don’t Leave
Me This Way” amongst many other
hits, will be the star artist at Reykjavik
Gay Pride 2007. In the world of music,
and especially in the world of gay
music, Jimmy is a household name.
He was never in the closet as a pop
star and therefore never needed to
come out, which has
earned him a great
deal of respect with
the gay community
worldwide.
Jimmy Somerville was born and
raised in Glasgow. He had consider-
able success in the 1980s with the
pop groups Bronski Beat and The
Communards, and has also enjoyed a
successful solo career. Bronski Beat’s
biggest hit, “Smalltown Boy” was con-
sidered groundbreaking because of its
lyrical content regarding homophobia.
Somerville played the song’s titular
character in the music video, leaving
his hostile hometown for the city.
Jimmy Somerville will perform at
the Opening Ceremony of Reykjavik
Gay Pride, Friday 10 August and at the
Open Air Concert in Lækjargata on
Saturday 11 August.
SOmERvillE
a PERSONal
PERfORmaNcE
jimmy
6