Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 53

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 53
R e g n b o g a f á n i n n árið 1978 hannaði og saumaði San francisco-búinn gilbert baker fána með röndum regnbogans. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra. á þrjátíu árum hefur fáninn orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þríhyrningurinn sem um langt skeið var notaður í réttindabaráttunni, en sögu þríhyrningsins má rekja til Þýskalands Þriðja ríkisins þegar hommar voru látnir bera merki með bleikum þríhyrningi í fangabúðum nasista. Vegna fánasaumsins hefur gilbert baker stundum verið kallaður betsy Ross samkyn- hneigðra, en hún saumaði fyrsta fána bandaríkjanna. árið 1989 vakti regnbogafáninn þjóðarathygli í bandaríkjunum þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði bannað honum að flagga fánanum af svölum íbúðar sinnar í Vestur-Hollywood. nú er regnbogafáninn viðurkenndur af alþjóðlegu fánanefndinni og blaktir við hún á hátíðis- dögum samkynhneigðra um allan heim. Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbía og homma. á Viktoríutímanum í englandi var græni liturinn tengdur við samkynhneigð. fjólublár varð tákn fyrir baráttu samkyn- hneigðra seint á sjöunda áratugnum og vinsælt slagorð þeirra tíma var „Purple Power“. bleikt er eins og áður var nefnt liturinn í bleika þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum tímum átt samleið með samkynhneigðum. gilbert baker notaði upphaflega átta liti í fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsínugulan, gulan, grænan, bláan, indigo og fjólubláan. baker sagði þessa liti tákna kynhneigð, líf, lækningu, sól, náttúru, list, jafnvægi og anda, og að þeir vísuðu í landið handan regn- bogans í galdrakarlinum í oz. Þegar baker hélt af stað með fyrsta fánann sem hann hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta fjöldaframleiða hann, reyndist liturinn „hot pink“ ekki vera fáanlegur. fyrsta útgáfa fánans var því með sjö röndum. Þegar Harvey Milk, hommi og borgarstjóri í San francisco, var myrtur í nóvember 1978 skyldi nýi fáninn prýða göngu sem samtök samkynhneigðra stóðu fyrir eftir harmleikinn. Þá var indigo-liturinn fjarlægður svo að tala randanna yrði jöfn því að þrír litir fánans skyldu fylgja annarri hlið göngunnar og þrír litir hinni. Þar með voru rendur fánans orðnar sex, jafnmargar og þær eru í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.