Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 50
50
Hinsegin dagar njóta stuðnings víða. Snemma í vor barst
Hinsegin dögum tölvubréf frá Gerry Pearson,
heldri borgara í Kanada. Í fyrstu áttum
við í erfiðleikum með að skilja erindi
hans en fljótlega rann það upp fyrir
okkur að það var ósköp einfalt: Hann vildi
bara senda okkur hlýjar kveðjur. Gerry
sagði frá því að íslensk vinkona hans hefði
vakið athygli hans á Hinsegin dögum og
þá skoðaði hann heimasíðu hátíðarinnar.
Eftir það urðu þessi aldni maður og John,
eiginmaður hans, svo uppnæmir af Hinsegin
dögum, að þeir ákváðu að leggja okkur lið.
Hinsegin dögum hafa borist 50 Kanadadollarar frá Gerry og John
með þeirri ósk að nöfn þeirra verði skrifuð á eina af blöðrunum
sem sleppt er í lok hátíðarinnar í miðbænum. Okkur er að sjálf-
sögðu mikil ánægja að verða við ósk þeirra. Í lok útihátíðarinnar
við Arnarhól 11. ágúst, verður blaðra vandlega merkt þeim
Gerry og John sett á loft með hinum 3000, og þannig tengjast
hugsanir þeirra, reynsla og góðar óskir okkur öllum, þegar
við fögnum því að vera eins og við erum.
Early this spring Reykjavik Gay Pride got the fol-
lowing e-mail from Gerry Pearson in Canada and
his partner John. He had been introduced to our
website by an Icelandic friend and wanted to con-
tribute to our celebration. Later Gerry and John
sent us 50 CAD wishing us in return to write their
names on one of the balloons traditionally set
free at the end of the outdoor concert. And so
we will do.
Here is Gerry’s original e-mal:
Sir
I met HANNA LARA GUNNARSDOTTER via computer chat. I have
enjoyed her warmth, intelligence, and humour for the past few
years, but this morning she introduced me to Reykjavik’s Gay
Pride web site. On-line, I know HANNA as FRANSISKA. She pro-
motes you, the parade, and the activities / entertain-
ments that surround it well. I now wish to attend!
The parade-video and celebration looked joyous, and fun; your
website attractive and informative.
How would I make a small donation to the “cause”? This older,
Canadian, out-of-the-closet gay male would LOVE nothing more
than to know his name might be written on one of the balloons
that Reykjavik Gay Pride explodes into the Icelandic sky.
With love, Gerry
Góður hugur frá Kanada