Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2007, Blaðsíða 54
H i n s e G i n H r e y F i n G a r Á í s L a n D i
samtökin ´78 – félag lesbía og homma á Íslandi
www.samtokin78.is – skrifstofa@samtokin78.is
Samtökin ́78 eru elstu og stærstu samtök samkynhneigðra hér á
landi og voru stofnuð í maí 1978. Markmið félagsins eru tvíþætt:
Að vinna að baráttu- og hagsmunamálum lesbía og homma í því
skyni að vinna þeim jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins,
og að skapa félagslegan og menningarlegan vettvang til þess að
styrkja sjálfsvitund þeirra, samkennd og samstöðu um sérkenni
sín. Mikill hluti af starfi félagsins snýst um réttindabaráttu á
opinberum vettvangi og þar hafa unnist miklir sigrar, nú síðast í
júní 2006. Þá náðust fram mikilvægar lagabætur sem eyða fyrri
takmörkunum á lögum um staðfesta samvist og lúta að ættleiðing-
um og tæknifrjóvgunum. Einnig öðluðust samkynhneigð pör um
leið rétt til að láta skrá óvígða sambúð sína á Hagstofu. Í miðstöð
félagsins á Laugavegi 3 starfar fólk að fræðslu og félagsráðgjöf og
veitir aðstoð og ráðgjöf um samkynhneigð málefni. Þar er einnig að
finna almenningsbókasafn, eitt stærsta sinnar tegundar í Norður-
Evrópu sem eingöngu safnar hinsegin efni, bókum, tímaritum og
kvikmyndum.
kMk – Konur me› konum / www.kmk.is – kmk@kmk.is
Konur með konum, KMK, varð til sem grasrótarhreyfing lesbía fyrir
rúmum áratug og hefur starfað síðan með nokkrum hléum. Vorið
2000 var starfið endurvakið en tilgangur hreyfingarinnar er ekki
síst að efla sýnileika lesbía, styrkja samstöðu þeirra, gefa þeim
tækifæri til að skemmta sér á eigin forsendum og kynnast öðrum
í hópnum. Stúlkurnar í KMK stunda íþróttir, einkum blak, af kappi
og hafa keppt á ýmsum alþjóðlegum leikum. Þá halda þær sumar-
hátíðir og bregða sér sér í útilegur og veiðiferðir þegar vel viðrar.
Á vefsíðu KMK er að finna líflega umræðu sem átt hefur drjúgan
þátt í að efla styrk hreyfingarinnar.
MsC ísland / www.msc.is – msc@msc.is
MSC Ísland var stofnað árið 1985. Klúbburinn hefur sínar klæða-
reglur, leður, gúmmí-, einkennis- og gallaföt, og ástæðan er
einfaldlega sú að félagarnir vilja hafa karlmenn karlmannlega
klædda og þá heldur ýkt í þá áttina en hina. MSC Ísland hefur
ferðamennsku og fyrirgreiðslu við erlenda ferðamenn beinlínis
á stefnuskrá sinni og félagið var ekki síst stofnað til þess að
Íslendingar gætu orðið formlegur aðili að Evrópusamtökum slíkra
klúbba, ECMC. Þau samtök hafa verið ein virkustu alþjóðasamtök
samkynhneigðra um áratugi og lagt mikið af mörkum til barátt-
unnar fyrir stolti, sýnileika og samábyrgð.
Trans-ísland, félag transgender fólks á íslandi
http://groups.google.com/group/trans-is-frettabref /
trans-is-frettabref@googlegroups.com
Transgender fólk er hinsegin að því leyti, að það breytir kynhlut-
verki sínu meira eða minna, og skiptir jafnvel alveg um kynhlutverk,
tímabundið eða varanlega. Transgender fólk getur verið gagnkyn-
hneigt, samkynhneigt og allt þar á milli. Trans-Ísland var stofnað
15. febrúar 2007. Félagið hefur að markmiði sínu að skapa trans-
gender fólki og fjölskyldum þeirra menningarlegan vettvang og
styrkja þannig sjálfsvitund þeirra, vinna að laga- og réttarbótum,
auka fræðslu til fagfólks og eiga samstarf við sambærileg samtök,
hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis. Fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar, stendur Trans-Ísland fyrir fundum í húsnæði Samtakanna
’78 og eru nýir félagar velkomnir. Félagið er aðili að Samtökunum
’78, Hinsegin dögum í Reykjavík og Transgender Europe, Network
and Council.
Fss – Félag STK stúdenta / www.gay.hi.is – gay@hi.is
Félag samkynhneigðra og tvíkynhneigðra stúdenta, FSS, var stofn-
að í janúar 1999 af einum 20 stúdentum við Háskóla Íslands. Brátt
var hópurinn orðinn um 150 manns og hefur félagið haldið uppi
blómlegu félagsstarfi síðan. Markmið félagsins er að vera sýnilegt
afl innan háskólasamfélagsins á Íslandi og í forsvari þar þegar
málefni samkynhneigðra ber á góma. Allir nýnemar við Háskóla
Íslands fá sendan kynningarbækling á hausti um félagið og starf
þess. Félagið tekur virkan þátt í samtökum ungs samkynhneigðs og
tvíkynhneigðs fólks í Evrópu, AFFS.
Draggkeppni íslands / dragkeppni@visir.is
Draggkeppni Íslands er fyrirtæki sem stendur árlega að dragg-
keppni í Reykjavík, venjulega í vikunni fyrir Hinsegin daga. Keppni
ársins verður haldin miðvikudaginn 8. ágúst nk. og þar eru tveir
titlar í boði, Draggdrottning og Draggkóngur Íslands, en þetta er
í þriðja skiptið sem kóngar eiga þess kost að keppa til sigurs í
keppninni. Slíkt fyrirkomulag er fátítt í heiminum, að bæði kynin
eigi þess kost að keppa saman í einu. Skráning í keppnina er á
draggkeppni@visir.is eða í síma 696 3892.
Thanks to the queer community
The gay comunity in Iceland has joined forces to celebrate Gay
Pride 2007 with festivities in Reykjavík on the second weekend
in August. We would like to thank five organizations and activ-
ity groups: the Icelandic Organization of Lesbians and Gay Men
Samtökin ’78, LGBT University Student Union FSS, the women’s
group Women with Women KMK, the transgender association
Trans-Iceland, and the leather club MSC Iceland.
Útgefandi Hinsegin dagar í Reykjavík – Gay Pride
Laugavegi 3 – 101 Reykjavík
www,gaypride.is
Ábyrg›arma›ur Heimir Már Pétursson
Hönnun Tómas Hjálmarsson
Merki Hinsegin daga Kristinn Gunnarsson
Ritstjórnarvinna Baldvin Kári Sveinbjörnsson, Heimir Már
Pétursson og Þorvaldur Kristinsson
Augl‡singar Heimir Már Pétursson, Þorvaldur Kristinsson
Ljósmyndir Geir Ragnarsson, Kolbrún Ósk og fleiri
Prentun Ísafoldarprentsmi›ja hf
Stjórn og samstarfsnefnd
um Hinsegin daga í Reykjavík
Þau eru fjölmörg sem leggja hönd á plóg til að gera hátíð
Hinsegin daga að veruleika á hverju ári. Sum sýna þó
meira úthald en önnur við undirbúninginn og vinna hörðum
höndum í samstarfsnefnd árið um kring áður en kemur að
gleðigöngunni og útitónleikunum. Þau sem hafa komið að
vinnu samstarfsnefndar síðastliðið ár með margvíslegu
undirbúningsstarfi, fundarhöldum og skipulagningu eru:
Anna Jonna Ármannsdóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Baldvin
Kári Sveinbjörnsson, Birna Hrönn Björnsdóttir, Erlingur
Óttar Thoroddsen, Fríða Agnarsdóttir, Guðjón R. Jónasson,
Heimir Már Pétursson, Hrafnkell Tjörvi Stefánsson, Katrín
Jónsdóttir, Kristín Sævarsdóttir, Matthías Matthíasson,
Ragnar Ólason, Svavar G. Jónsson, Tómas Hjálmarsson,
Þorvaldur Kristinsson og Þórarinn Þór.