Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2007, Síða 53
R e g n b o g a f á n i n n
árið 1978 hannaði og saumaði San francisco-búinn gilbert baker fána með röndum
regnbogans. Litirnir áttu að tákna samfélag samkynhneigðra. á þrjátíu árum hefur fáninn
orðið þekktari sem tákn þeirra en bleiki þríhyrningurinn sem um langt skeið var notaður
í réttindabaráttunni, en sögu þríhyrningsins má rekja til Þýskalands Þriðja ríkisins þegar
hommar voru látnir bera merki með bleikum þríhyrningi í fangabúðum nasista.
Vegna fánasaumsins hefur gilbert baker stundum verið kallaður betsy Ross samkyn-
hneigðra, en hún saumaði fyrsta fána bandaríkjanna. árið 1989 vakti regnbogafáninn
þjóðarathygli í bandaríkjunum þegar leigjandi vann mál gegn leigusala sem hafði
bannað honum að flagga fánanum af svölum íbúðar sinnar í Vestur-Hollywood. nú er
regnbogafáninn viðurkenndur af alþjóðlegu fánanefndinni og blaktir við hún á hátíðis-
dögum samkynhneigðra um allan heim.
Litir hafa löngum verið mikilvægir í sögu lesbía og homma. á Viktoríutímanum í englandi
var græni liturinn tengdur við samkynhneigð. fjólublár varð tákn fyrir baráttu samkyn-
hneigðra seint á sjöunda áratugnum og vinsælt slagorð þeirra tíma var „Purple Power“.
bleikt er eins og áður var nefnt liturinn í bleika þríhyrningnum og hefur líka á ýmsum
tímum átt samleið með samkynhneigðum.
gilbert baker notaði upphaflega átta liti í fánann sinn: bleikan, rauðan, appelsínugulan,
gulan, grænan, bláan, indigo og fjólubláan. baker sagði þessa liti tákna kynhneigð, líf,
lækningu, sól, náttúru, list, jafnvægi og anda, og að þeir vísuðu í landið handan regn-
bogans í galdrakarlinum í oz. Þegar baker hélt af stað með fyrsta fánann sem hann
hafði saumað og litað í höndunum í fánaverksmiðju til þess að láta fjöldaframleiða hann,
reyndist liturinn „hot pink“ ekki vera fáanlegur. fyrsta útgáfa fánans var því með sjö
röndum.
Þegar Harvey Milk, hommi og borgarstjóri í San francisco, var myrtur í nóvember 1978
skyldi nýi fáninn prýða göngu sem samtök samkynhneigðra stóðu fyrir eftir harmleikinn.
Þá var indigo-liturinn fjarlægður svo að tala randanna yrði jöfn því að þrír litir fánans
skyldu fylgja annarri hlið göngunnar og þrír litir hinni. Þar með voru rendur fánans
orðnar sex, jafnmargar og þær eru í dag.