Bæjarins besta - 02.11.2006, Page 3
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2006 3
Aflaverðmæti eykst minna á Vestfjörðum
Aflaverðmæti jókst umtalsvert á milli ára, ef miðað er við fyrstu sjö mánuðina árin
2005 og 2006, á flestum landsvæðum á Íslandi, en þó nokkuð minna á Vestfjörðum
en annars staðar. Á landsvísu var aukning aflaverðmætis á milli ára 9%. Á Vestfjörð-
um er aukning aflaverðmætis aðeins 3%, og er hún einungis minni á Suðurlandi, af
öllum landsvæðum, eða 0,2%. Heildarverðmæti landaðs afla á Vestfjörðum fyrstu sjö
mánuðina í ár var 2.364 milljónir, á miðað við 2.279 milljónir á sama tímabili í
fyrra. Telst þetta vera 5,1% heildaraflaverðmætis.
Ísafjarðarhöfn á sýn-
ingu fyrir skemmti-
ferðaskip á Ítalíu
Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar,
tók á dögunum þátt í sýningu fyrir skemmtiferðaskip sem
haldin var í Napólí á Ítalíu. „Faxaflóahafnir, Ísafjarðarhöfn og
Akureyrarhöfn ákváðu að vera með sameiginlegan bás á þess-
ari sýningu og freista þess að kynna hafnirnar fyrir útgerðar-
mönnum á Miðjarðarhafssvæðinu. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskar hafnir fara á þessar slóðir og vakti íslenski básinn því
nokkra athygli og í ljós kom greinilegur áhugi á að sigla á
norðurslóðir. Costa og Silversea útgerðarfélögin hafa haft
viðkomu á Íslandi áður og munu halda því áfram og sennilega
auka við viðkomustaðina“, segir í frétt á vef Ísafjarðarbæjar.
Á meðan á sýningunni stóð var tilkynnt um smíði á fimm
nýjum skemmtiferðaskipum. Vakti það athygli var að tvö
þeirra eru rúma 500 farþega sem þykir mjög lítið miðað við
risana sem nú er verið að byggja. „Það mun sérstaklega koma
sér vel fyrir okkur ef aukning verður á þessum minni skipum
sem sigla á norðurslóðir þar sem hafnaraðstaðan á Ísafirði er
mjög takmörkuð þar sem við höfum miðað við 55.000 tonna
skip með mestu lengd 225 metra sem er 35 metra lengra en
viðlegukanturinn,“ segir á vef Ísafjarðarbæjar.
Hafnir Ísafjarðarbæjar hafa tekið þátt í ráðstefnum á Miami
í Florida á hverju ári og einnig í Hamborg annað hvert ár, en
eins og áður segir þá er þetta í fyrsta sinn sem haldið er til Ítalíu
til að reyna að koma á tengslum við útgerðir skemmtiferðaskipa.
Það mun hafa verið í kringum 1998 sem Hermann Skúlason
heitinn fyrrverandi hafnarstjóri fór í sína fyrstu ferð til Miami
til að kynna Ísafjarðarhöfn fyrir eigendum skemmtiferðaskipa
og má segja að það sé að skila sér vel í dag, en eins og sjá má
á samantekt áranna 2003 til 2007 er þjónusta og móttaka á
skemmtiferða skipum mesta aukning á starfsemi Ísafjarðarhafn-
ar síðustu ár.
Árið 2003 komu tíu skip og 2.242 farþegar, árið 2004 17
komu 17 skip og 5.800, 2005 komu 18 skip og 7.845, í ár
komu 22 skip og 14.108 og á næsta ári eru bókuð 28 skip sem
rúma 18.871 farþega.
– annska@bb.is
Eykst fólksfækkun á Vest-
fjörðum eða hægir á henni?
Frá árinu 1991 til ársins
2005 fækkaði Vestfirðing-
um um 2.194 eða að meðal-
tali um 157 á ári. Mest var
fækkunin á tíunda áratugn-
um, en frá 1991 til 2001
fækkaði Vestfirðingum um
1.728 manns, eða um 172,8
að meðaltali á ári. Frá 2001
til 2005 fækkaði Vestfirð-
ingum um 466 manns, eða
um 116,5 manns að meðal-
tali á ári, og virðist því hafa
hægt nokkuð á fækkuninni.
Eins og sagt hefur verið frá
voru Vestfirðingar 7.405 þann
1. október sl., miðað við
bráðabirgðatölur Hagstofu Ís-
lands, og hafði þá fækkað all
verulega á þremur mánuðum,
en samkvæmt tölum um mið-
ársmannfjölda voru Vestfirð-
ingar 7.518 þann 1. júlí sl.
Þarna fækkar Vestfirðing-
um alls um 113 manns á einum
ársfjórðungi, og ljóst að ef
þróunin yfir árið verður eitt-
hvað svipuð hefur fólks-
fækkun aukist mjög, og yrði
fækkunin á ársgrundvelli
því 452 manns ef hún héldi
áfram með þessu móti. Þó
ber eðlilega að líta til þess
að hér er um bráðabirgða-
tölur að ræða, auk þess sem
auðveldlega má ímynda sér
að fólk flytji frekar á ákveð-
num árstímum en öðrum,
til dæmis að sumri eða hausti.
ATVINNA
Sundhöllin við Austurveg á Ísafirði
óskar eftir konu í fullt starf. Um tíma-
bundna ráðningu er að ræða með
möguleika á framtíðar ráðningu. Vinnu-
tími er samkvæmt vaktaskipulagi.
Skilyrði eru að umsækjendur séu vel
á sig komnir líkamlega, standist sund-
próf, hafi ríka þjónustulund og eigi
gott með að vinna með fólki.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í
síma 456 3200.
Smábátasjómenn
mótmæla breytingum
á slægingarstuðlum
Gunnlaugur Finnbogason,
formaður Eldingar, félags
smábátaeigenda á norðan-
verðum Vestfjörðum, sagði á
aðalfundi Landssambands
smábátasjómanna, að fyrir-
huguð breyting á slægingar-
stuðlum væri í raun kvóta-
skerðing. Beindi Gunnlaugur
þeirri fyrirspurn til sjávarút-
vegsráðherra hvort hann væri
tilbúinn til að fara gegn LÍÚ í
þessu máli eða hvort hann ætl-
aði að skerða smábátana.
„Verður það hans síðasta
verk fyrir kosningar“, er haft
eftir Gunnlaugi á fréttavefnum
skip.is. Kristján Andri Guð-
jónsson, smábátasjómaður á
Ísafirði, tók undir orð Gunn-
laugs. Fyrirhugað er að breyta
slægingarstuðlum þann 1.
mars á næsta ári. Breytingin
mun meðal annars tilkomin
vegna beiðni Samtaka fisk-
vinnslustöðva þess efnis að
öll vigtun á afla til kvóta verði
miðuð við slægðan fisk.
Sagði sjávarútvegsráðherra
í svari sínu að vandað hefði
verið til vinnu vegna breytinga
á vigtarreglugerðinni og að
hann hefði ekki heyrt að menn
væru óánægðir. „Ég hef heyrt
þessi rök og hef skilning á að
slægingarstuðullinn breytist í
einu vetfangi úr 16% í 12%. Ég
mun hugsa málið og vonandi
kemst ég að skynsamlegri
niðurstöðu“, sagði ráðherra.
„Tek þátt í að vinna að
öflugum velferðarlista“
Bryndís Friðgeirsdóttir er
ein af þeim sem bauð sig fram
í 1.-4. sæti Samfylkingarinnar
í Norðvestur kjördæmi en
hafði ekki árangur sem erfiði.
Það er óhætt að segja að betur
hefði mátt ganga hjá bæði
konum sem og rótgrónum
Vestfirðinum. Einungis ein
kona er í fjórum efstu sætun-
um, en það er Anna Kristín
Gunnardóttir en hún fellur
niður um eitt sæti. Bryndís
segist ekki sýta það hvernig
fór og segir hún komandi
kosningar leggjast mjög vel í
sig. „Þetta er öflugur listi,
Guðbjartur er vel að fyrsta
sætinu kominn. Ég held að
allir sem tóku þátt í prófkjör-
inu séu sáttir og styðji þennan
góða lista sem við teflum
fram. Ég er allavega ekkert
hætt í pólitík og ég tek þátt í
því að vinna að öflugum vel-
ferðarlista.“
Aðspurð um hlut kvenna
hafði Bryndís þetta að segja.
„Auðvitað er það leiðinlegt
þingmaður fellur um sæti og
sérstaklega ef það er til þess
að rýra hlut kvenna enn frekar.
Þessi eina kona er Anna Krist-
ín Gunnarsdóttir sem nú má
eiga það á hættu að detta út af
þingi. Það sem mér þótti einna
flottast við þetta prófkjör er
góð þátttaka á Vestfjörðum,“
segir Bryndís.
44.PM5 5.4.2017, 13:033