Bæjarins besta - 02.11.2006, Qupperneq 8
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 20068
STAKKUR SKRIFAR
Þingkonu hafnað í prófkjöri
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
„Nú þarf að þora að
vera framsóknarmaður“
Bolvíkingurinn Kristinn H. Gunnarsson býður
sig fram til fyrsta sætis í prófkjöri Framsókn-
arflokksins í Norðvesturkjördæmi. Krist-
inn ætti að vera öllum Vestfirðingum
vel kunnur, enda hefur hann verið leng-
ur en tvævetur í stjórnmálum, og hefur
setið á þingi bæði fyrir Alþýðubanda-
lagið, heitið, og síðar Framsóknarflokk-
inn, auk þess sem hann var bæjarfulltrúi
í Bolungarvík um langt árabil. Kristinn
sat í öðru sæti listans í síðustu kosningum,
en hefur eins og áður segir í hyggju að
komast í fyrsta sætið, en þar situr fyrir
Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra,
sem hyggur ekki á brottför. Prófkjörið verður
haldið með póstkosningu og stendur
hún yfir frá 3.-17. nóvember nk.
Greinir á við forystu
flokksins en er
sammála þorra
framsóknarmanna
– Þú ætlar að reyna að kom-
ast upp um eitt sæti?
„Já, ég ætla að reyna að
komast upp um eitt sæti, upp
um eina deild. Ég hef sett
stefnuna á fyrsta sætið og er
svo sem alveg bærilega von-
góður um að það náist. Síðast
fékk ég flest atkvæði í fyrsta
sæti og hefði hreppt það ef
sömu reglur hefðu gilt þá og
gilda nú. En þá giltu aðrar
reglur og vegna þess að ég
fékk ekki hreinan meirihluta
var kosið aftur.“
– Í það skiptið var kosið á
kjördæmisþingi, ekki satt?
„Jú, það var svo. Það er
tvennt sem er ólíkt, þetta er
venjulegt prófkjör núna þar
sem allir félagsmenn geta tek-
ið þátt og það gilda þessar
venjulegu reglur um röðun í
sæti. Þetta verður póstkosn-
ing, menn fá kjörseðil einfald-
lega sendan í pósti og senda
hann til baka.“
– Nú hefurðu orð á þér fyrir
að vera utangarðsmaður í
Framsóknarflokknum, telurðu
að það muni verða þér fjötur
um fót í prófkjörinu?
Kristinn hlær þegar blaða-
maður kallar hann utangarðs-
mann, og segir svo: „Það kann
að vera auðvitað að einhverjir
setji það fyrir sig. Vissulega
hefur það gerst á kjörtímabil-
inu, eins og landsfrægt er orð-
ið, að ýta mér til hliðar fyrir
að fylgja ekki þeirri línu sem
æðsta forystan ákvarðaði. En
ég held að það muni ekki bíta,
vegna þess að ég hef alltaf
fylgt ákvæðum stjórnarsátt-
málans og samþykktum flokks-
þings. Ég hef fylgt þeim mál-
um sem flokkurinn hefur
skuldbundið sig til að styðja,
burtséð frá minni afstöðu til
einstakra mála. Þar sem mér
hefur greint á við forystu flokks-
ins hefur verið í málum þar
sem þorri framsóknarmanna
var mér sammála, eins og í
fjölmiðlamálinu eða Íraks-
málinu, eða um sölu Símans,
þar sem ég vildi ekki að dreifi-
kerfið yrði selt. Fleiri mál má
nefna, til dæmis málefni Rík-
isútvarpsins, ég hef ekki viljað
standa að því að breyta RÚV
í hlutafélag. Við gengum til
síðustu kosninga með þá
stefnu að RÚV yrði ekki hluta-
félag heldur sjálfseignastofn-
un. Mér finnst við eigum að
standa við þá stefnu til enda.
Ágreiningurinn hefur kryst-
allast í því að flokkurinn hefur
tekið afstöðu sem ekki féll
kjósendum hans vel í geð, og
við sjáum hvernig staðan er.
Það er engin tilviljun að staða
flokksins hefur verið mjög erf-
ið síðustu tvö ár, fylgi hans
allt þetta ár er aðeins um helm-
ingur af því sem hann fékk í
síðustu kosningum. Það eru
auðvitað mjög skýr skilaboð
frá kjósendum til þeirra sem
hafa leitt flokkinn. Nú þurfum
við að taka mark á þessu og
bregðast við til þess að ná
góðum úrslitum úr kosning-
unum. Við þurfum að þora að
standa við þá stefnu sem við
teljum skynsamlega, eins og í
atvinnuuppbyggingu, en flokk-
urinn hefur staðið að mikilli
atvinnuuppbyggingu síðast-
liðinn áratug. Kaupmáttur
launa hefur hækkað meira en
dæmi eru um hér á landi fyrr,
og ég þekki ekki til þess er-
lendis að jafn miklar kjarabæt-
ur hafi átt sér stað á jafn
skömmum tíma og hér á landi.
Við eigum að þora að standa á
þessari atvinnustefnu og þess-
ari stefnu flokksins, jafnvel
þó það sé stóriðja, sé hún inn-
an skynsamlegra marka. En
við eigum líka að þora að við-
urkenna að menn hafi gert
mistök. Menn gerðu mistök
þegar þeir samþykktu að nafn
Íslands færi á lista hinna stað-
föstu þjóða í Íraksstríðinu, það
voru mistök að fara fram með
fjölmiðlalögin. Menn verða
bara að viðurkenna það, og
gera það upp gagnvart sjálfum
sér og kjósendum.
Við eigum líka að viður-
kenna að þessi kaupmáttar-
aukning, og þessi mikla mark-
aðsvæðing sem verið hefur í
gangi, sem er trúlega í megin-
atriðum rétt stefna, hefur haft
í för með sér vaxandi mis-
skiptingu. Lífskjör hafa orðið
ójafnari en áður. Það má segja
að lífskjör hafi batnað hjá öll-
um en það er hin hefðbundna
framsóknarstefna að bæta lífs-
kjör þeirra sem eru lakast settir
að minnsta kosti jafn mikið,
og helst betur. Það hefur ekki
gengið eftir. Við eigum að
viðurkenna það og leggja
áherslu á okkar gömlu stefnu
í þeim efnum. Nú eigum við
Sigurvon fagnar 5 ára afmælinu
Krabbameinsfélagið Sigurvon á norðanverðum Vestfjörðum er orðið
fimm ára og af því tilefni verður haldinn afmælisfundur á Hótel Ísafirði
kl. 14 á laugardag. Gestafyrirlesarar verða læknarnir Sigurður Björns-
son, formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands og Guðrún Agnars-
dóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. Boðið verður upp á tónlist-
aratriði og kaffiveitingar verða í boði Sparisjóðs Vestfirðinga. Allir eru
boðnir hjartanlega velkomnir.
Vilja byggja fjölbýlishús
Ágúst og Flosi ehf. á Ísafirði hafa sótt um byggingarleyfi
fyrir fjölbýlishúsi á lóðinni við Sindragötu 4 á Ísafirði.
Umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar tók erindið fyrir á dög-
unum, og bókaði nefndin að hún tæki jákvætt í erindið
en benti sömuleiðis á að samkvæmt deiliskipulagi lóð-
arinnar sé gert ráð fyrir bílageymslum við fyrirhugað hús.
Þá lagði nefndin til að farið yrði í grenndarkynningu.
Þau færa Sjálfstæðisflokknum nýtt yfirbragð. Að sönnu voru ekki allir
ánægðir. En hver verður ánægður þegar hann nær ekki marki sínu? Enginn.
Þess vegna vöktu hófstillt viðbrögð Brigis Ármannssonar athygli. Ekki eitt
einasta neikvætt orð heyrðist frá honum.
Nokkur spenna var samfara fyrsta prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir
komandi kosningar til Alþingis. Fyrsti þingmaður hafði ákveðið að hverfa
af Alþingi. Anna Kristín Gunnarsdóttir hefur virst hinn prúðasti þingmaður
og ekki hefur heyrst gagnrýni á störf hennar. Dreifing atkvæða reyndis mikil
að vonum. Guðbjartur Hannesson var valinn til að leiða listann og séra Karl
Valgarður Matthíasson í öðru sæti, þá Anna Kristín og í því fjórða Sigurður
Pétursson. Samfylkingin hefur álasað Sjálfstæðisflokki að hafa ekki kynja-
jafnrétti á framboðslistum. Komið er í ljós að sitthvað er að vera í stórum
stjónmálaflokki eða litlum. Kjósendur eiga valið og þeir velja hver um sig
sína menn til setu á listum. Séra Karl átti nokkuð óvænta endurkomu, en
hann hefur verið prestur víða í hinu nýja kjördæmi, þótt nú búi hann í
Reykjavík. Merkja mátti af orðum formanns Samfylkingar að henni hefði
brugðið við niðurstöðu prófkjörs, vegna útkomu Önnu Kristínar. Skýring er
ekki augljós. Fyrrverandi Bolvíkingur frá Póllandi, Grazyna María Okuni-
ewska er kominn langleiðina inn á Alþingi Íslendinga.
Það eru tíðindi.
Um liðna helgi fór fram prófkjör í höfuðborginni og í Norðvesturkjördæmi.
Hið fyrrnefnda var leið Sjálfstæðisflokks til þess að velja á lista í kjördæmum
Reykjavíkur. Hið síðarnefnda var háttur Samfylkingar til þess að stilla upp
framboðslista í fyrrverandi þremur kjördæmum, sem eins og nafnið bendir til
runnu í eitt landmesta kjördæmi alls Íslands. Niðurstöðu í Reykjavík hafði
verið beðið með eftirvæntingu. Dómsmálarráðherra náði ekki markmiði
sínu, öðru sæti á listanum. Að öðru leyti mega sjálfstæðismenn frekar vel við
una. Listinn hefur mikla breidd. Samfylkingin hafnaði í reynd einu þingkon-
unni í kjördæminu, sem hlaut þriðja sætið.
Það vakti mikla eftirtekt hve margir höfðu horn í síðu Björns Bjarnasonar
dóms- og kirkjumálaráðherra, sem sýnt hefur af sér mikinn dugnað og litið
lengra fram á veginn en flestir aðrir stjórnmálamenn, ekki síst í tengslum við
brottför varnarliðsins og viðbrögð varðandi björgunar- og eftirlitsstörf.
Einkum voru það utanflokksmenn sem sáu sér hag í að nýta sér tækifærið og
hömuðust við að gera lítið úr Birni. Það var óverðskuldað. Fleiri munu hugs-
anlega hafa nýtt færið í prófkjörsbaráttunni. Björn vann varnarsigur, hélt sæti
sínu frá síðasta prófkjöri, þótt 2 aðrir vildu annað sætið. Guðfinna Bjarnadóttir
náði afar góðum árangri, 4. sæti og hið sama verður sagt um Illuga Gunnarsson,
sem þar kom á eftir. Hún er ný á vettvangi stjórnmálanna, en hann hafði verið
aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar og sýnt skýra og glögga hugsun í pólitík.
44.PM5 5.4.2017, 13:038