Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 4 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1
Mmm ...
Wok veisla
fyrir tvo!
VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla
bankastjóri segist eindregið vera
þeirrar skoðunar að hækka eigi
núverandi þak á erlendar fjár
festingar lífeyrissjóðanna um leið
og aðstæður í efnahagslífinu leyfa.
Hann bendir á að í lögum sé nú litið
á erlendar fjárfestingar sjóðanna
sem áhættuþátt.
„Ég tel hins vegar að þær gegni
því hlutverki að stuðla að áhættu
dreifingu fyrir bæði einstaka sjóði
sem og kerfið í heild. Þess vegna tel
ég eðlilegt að lögbundið hámark
á erlendar eignir sem hlutfall af
heildareignum sjóðanna verði
hækkað,“ segir Ásgeir. Aðspurður
segist hann ekki geta svarað því á
þessari stundu hversu mikið hann
vilji hækka þakið, sem nemur nú
um 50 prósentum af eignasafni.
– hae / sjá síðu 8
Vill hækka þak
lífeyrissjóðanna
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid tóku þátt í æfingu með björgunarsveitunum og björgunarhundum á Hólmsheiði í gær, en fjáröf lunarátakið Neyðarkall björgunar-
sveitanna stendur yfir frá og með deginum í dag til 7. febrúar. Átakið hófst árið 2006. Til stóð að það færi fram í nóvember í fyrra en því var frestað vegna COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DANMÖRK Samkvæmt danska fjöl
miðlinum Ekstrabladet var Flemm
ing Mogensen, sem hefur játað á
sig morðið á Freyju Egilsdóttur
Mogensen, dæmdur í fangelsi árið
1996 fyrir að hafa orðið barnsmóð
ur sinni að bana með því að stinga
hana 18 sinnum með hnífi. Hann
hafi síðan hringt í föður sinn og
viðurkennt verknaðinn og hringdi
hann þá í lögregluna í Skanderborg.
Vinir Freyju sem Fréttablaðið
ræddi við segjast hafa haft áhyggjur
af henni vegna fyrri dóms manns
ins. Hún hafi sjálf verið góðhjörtuð
kona, frábær móðir og dugleg að
rækta vinskapinn. Hún hafi verið
of góð og of óheppin af hafa kynnst
manninum sem varð henni að bana.
Fleming var í gærmorgun úr
skurðaður í fjögurra vikna gæslu
varðhald og verður hann ákærður
fyrir manndráp og ósæmilega með
ferð á líki. Maðurinn hefur játað á
sig morðið en honum er gefið að sök
að hafa orðið henni að bana senni
lega á föstudagsmorgni.
Lögreglan á AusturJótlandi telur
að Freyja hafi verið látin þegar vakt
stjóri á vinnustað hennar fékk sms
skilaboð á laugardaginn um að hún
væri veik og gæti því ekki mætt til
vinnu.
Flemming var sá sem lét lýsa
eftir Freyju á þriðjudag en vinir
hennar og samstarfsmenn sáu síð
ast til hennar fimmtudagskvöld ið
28. janúar þegar hún hafði lokið
vakt sinni á dvalarheimilinu
Stends lundcentret í bænum Odder.
Hún fannst látin í gær. – ilk / sjá síðu 4
Hefur áður myrt konu
Flemming Mogensen, sem hefur játað á sig morðið á Freyju Egilsdóttur Mog
ensen, var dæmdur fyrir að myrða barnsmóður sína í nóvember árið 1995.
Flemming stakk barns-
móður sína 18 sinnum með
hnífi árið 1995. Hún var
tvítug.
MENNTAMÁL Fjórir nemendur í Víði
staðaskóla í Hafnarfirði hafa sent til
lögur um úrbætur á menntakerfinu
til ráðherra og þingmanna. Nem
endurnir vilja læra um áskoranir
lífsins og gagnlega hluti líkt og fjár
mál og skyndihjálp. Þau hafa safn
að undirskriftum og hafið könnun
meðal grunnskólanema á því hvern
ig menntakerfið ætti að vera.
„Við litum yfir það sem okkur
hafði verið kennt og vildum bæta
ansi mörgu inn,“ segir Alexander
Ívar Logason. Hann segir þingmenn
Pírata, Viðreisnar og Framsóknar
flokksins hafa tekið vel í tillögurn
ar og að Lilja Dögg Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra hafi verið
sammála um margar hugmyndir
þeirra. Þegar væri verið að skoða
nokkra þætti, til að mynda fjármála
læsið. – khg / sjá síðu 4
Vilja aukna og
breytta fræðslu