Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 21
Framhald á síðu 2 ➛
F I M MT U DAG U R 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 Kynningar: Kópavogur, Garðabær, Reykjavík, Hafnarfjörður
Vetr rhátíð
Þverfaglega hönnunarteymið Þykjó eru staðarlistamenn Kópavogs í ár og leita innblásturs að kyrrð og ró til skeldýra sem geta alltaf dregið sig inn í skel sína þegar þau þurfa þess með. Í Þykjó eru
Erla Ólafsdóttir, Sigríður Sunna Reynisdóttir, Sóley Stefánsdóttir, Ninna Þórarinsdóttir og Sigurbjörg Stefánsdóttir. Þykjó er meðal margra viðburða á Vetrarhátíð í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tilfinningaþrungin barokk-tónlist, ástarsaga um mosa og íslensk þjóðlög í seiðandi
útsetningum eru á meðal þess sem
má njóta á Vetrarhátíð í Kópavogi
sem að þessu sinni fer fram víðs
vegar um bæinn. Í ljósi samkomu-
takmarkana verður áherslan á
viðburði undir berum himni og
viðburði fyrir fámennan áheyr-
endahóp en öllum fyrirmælum
um sóttvarnir og fjöldatakmörk
verður fylgt í hvívetna.
Að skríða inn í skel
Á efri hæð Gerðarsafns standa yfir
sýningar Magnúsar Helgasonar og
Ólafar Helgu Helgadóttur í Skúlp-
túr Skúlptúr sýningaröðinni og
verður meðal annars boðið upp á
krakkavæna leiðsögn um sýning-
una með Sprengju-Kötu.
Á neðri hæðinni munu Hönn-
unarkollektívið Þykjó og Sóley
Stefánsdóttir tónlistarkona kitla
ímyndunaraflið með innsetning-
unni Skríðum inn í skel. „Þykjó er
þverfaglegt hönnunarteymi sem
hannar fyrir börn og fjölskyldur
þeirra,“ segir Sigríður Sunna
Reynisdóttir, leikmynda- og bún-
ingahönnuður og einn meðlimur
Þykjó. „Við erum staðarlistamenn
Kópavogs í ár og vinnum í Gerðar-
safni að þróun kyrrðarrýma sem
eru innblásin af skeldýrum eins
og kuðungum, skjaldbökum og
kröbbum. Þetta er eins konar óður
til þess að geta skriðið inn í skel.“
Á vetrarhátíð kynnir Þykjó smá-
líkön af þessum kyrrðarrýmum og
teflir saman við sýningu á verkum
Gerðar Helgadóttur í safninu en
rýmin verða sýnd í fullri stærð í
safninu í mars. „Við höfum verið
að skoða efni og uppbyggingu skel-
dýra í samstarfi við líffræðingana
á Náttúrufræðastofu Kópavogs og
höfum valið nokkra safngripi úr
eigu safnsins til að nota á sýning-
unni. Sóley er síðan búin að semja
tónlist sem tengist bæði formunum
í kuðungum og verkunum hennar
Gerðar. Þarna mætast því líffræði,
hönnun, myndlist og tónlist í
sama rými,“ segir Sigríður Sunna
og bætir við að allt verði í takt við
sóttvarnareglur. „Þessi innsetning
hægir aðeins á okkur og hvetur til
að staldra við, leggjast á gólfið og
upplifa, skynja og njóta.“
Sviðsviðburðir og tónleikar
eru ókeypis á Vetrarhátíð
Föstudagskvöldið verður helgað
ljúfum tónum. Elísabet Waage og
Laufey Sigurðardóttir bjóða upp á
íhugula tónleika í Safnaðarheimili
Kópavogskirkju með tónlist fyrir
fiðlu og hörpu eftir Leif Þórarins-
son, Báru Grímsdóttur og Tryggva
M. Baldvinsson.
Í Salnum flytja Ásgeir Ásgeirs-
son og þjóðlagasveit íslensk
þjóðlög í seiðandi útsetningum
og það er engin önnur en Sigríð-
ur Thorlac ius sem þenur radd-
böndin á tónleikunum sem hefjast
klukkan 19.30.
Í Hjallakirkju hljómar tilfinn-
ingaaþrungin barokktónlist eftir
Bach, Purcell, Monteverdi og fleiri
í f lutning Þórunnar Völu Valdi-
Spennandi og nýstárleg
Vetrarhátíð í Kópavogi
Dagskrá Vetrarhátíðar í Kópavogi verður með breyttu sniði í ár vegna sóttvarna en hátíðin fer
fram 4. -7. febrúar. Þar verður þó að vanda ýmislegt á boðstólum, tónlist, dans, leiklist og Þykjó.
KYNNINGARBLAÐ