Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 6944103. marsdóttur, Hildigunnar Einars- dóttur, Gróu Margrétar Valdimars- dóttur, Júlíu Mogensen og Láru Bryndísar Eggertsdóttur. Í gamla Hressingarhælinu verður helgina 6. og 7. febrúar sýnt verkið Mosi og ég: Ástarsaga eftir Völu Höskuldsdóttur og mosa sem er verk fyrir einn áhorfanda í einu. Verkinu hefur verið lýst sem ein- stöku ferðalagi inn á við þar sem skynfærin fá að ráða för. Í húsnæði Leikfélags Kópavogs laugardaginn 6. febrúar verður frumsýnt dansverkið Íslenski draumurinn eftir Mörtu Hlín Þorsteinsdóttur í samstarfi við FWD Youth Company við tónlist eftir Odd Kristjánsson (Sgandal). Sýningar verða kl. 15 og 16.30. Leiðsögn og listsköpun Eins og vaninn er á Vetrarhátíð í Kópavogi verður Kópavogskirkja böðuð litum og ljósum föstu- dagskvöldið 5. febrúar og verður gestum og gangandi boðið að koma inn í kirkjuna á sýninguna Alsjáandi: Ósamþykktar skissur að altaristöflu þar sem má sjá sýningu á tillögum Gerðar Helga- dóttur að altaristöflu í Kópavogs- kirkju en sýningarstjórar eru Anna Karen Skúladóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir. Í Midpunkt í Hamraborg sýnir Jóhannes Dags- son myndlistarmaður vídeóverkið Ég veit núna / fjórar athuganir og ungir vegglistamenn á vegum Molans munu setja upp glænýtt útigallerí, Gallerí Göng, í undir- göngunum við Hamraborg föstu- dagskvöldið 5. febrúar Flanerí á förnum vegi Flanerí, nýr hljóðgönguhópur, býður upp á hljóðvapp með áherslu á útilistaverk eftir Gerði Helgadóttur og Teresu Himmer en hópurinn fékk nýverið styrk frá Lista- og menningarráði Kópavogs til að búa til ólíkar hljóðgöngur í Kópavogi, þrjár á íslensku og eina á pólsku. Allir eru velkomnir í göngu með Flanerí þar sem frá- sagnir, viðtöl, umhverfishljóð, staðreyndir og skáldskapur sveipa Kópavog nýjum blæ. Hlustendur Mosi og ég: Ástarsaga er verk sem er aðeins ætlað einum áhorfanda í einu og verður sýnt í gamla Hressingarhælinu á laugardag og sunnudag. Kópavogskirkja verður að vanda böðuð litum og ljósum á Vetrar- hátíð. MYNDIR/AÐSENDAR Smiðjur og leiðsögn n Föstudagur 5. febrúar kl. 18 og 19: Micro:bit. Tækjaforritun í Bóka- safni Kópavogs n Laugardagur 6. febrúar kl. 12: Leiðsögn um sýninguna Alsjáandi í Kópavogskirkju með Önnu Karen Skúladóttur, Hallgerði Hallgríms- dóttur og séra Sigurði Arnarssyni n Laugardagur 6. febrúar kl. 13: Fjölskylduleiðsögn með Sprengju- Kötu um sýninguna Skúlptúr skúlptúr í Gerðarsafni n Sunnudagur 7. febrúar kl. 13: Sýningaleiðsögn um Skúlptúr skúlptúr í Gerðarsafni með Brynju Sveinsdóttur og Hallgerði Hall- grímsdóttur Tónleikar: n Föstudagur 5. febrúar kl. 18: Vetr- arkvöld. Elísabet Waage og Laufey Sigurðardóttir í Safnaðarheimili Kópavogskirkju, Hábraut 1a n Föstudagur 5. febrúar kl. 19.30: Íslensk þjóðlög. Þjóðlagasveit Ásgeirs Ásgeirssonar í Salnum í Kópavogi, Hamraborg 6 n Föstudagur 5. febrúar kl. 21.00: Barokktónleikar í Hjallakirkju, Álfa- heiði 17 Sviðslist n Laugardagur 6. febrúar og sunnu- dagur 7. febrúar kl. 11 - 12 - 13 - 14 - 15 - 16 - 17 - 18 - 19 - 20 báða daga. Mosi og ég: Ástarsaga eftir Völu Höskuldsdóttur og mosa í gamla Hressingarhælinu í Kópavogi n Laugardagur 6. febrúar kl. 15 og 16.30: Íslenski draumurinn. Dans- verk eftir Mörtu Hlín og FWD Youth Company í húsnæði Leikfélags Kópavogs, Funalind 2 Opnunartímar: n Gerðarsafn, Hamraborg 4 Föstudagur 5.2.: 10 - 21 Laugardagur 6.2.: 10 - 17 Sunnudagur 7.2.: 10 - 17 n Náttúrufræðistofan í Kópavogi, Hamraborg 6a Föstudagur 5.2.: 10 - 21 Laugardagur 6.2.: 11 - 17 n Bókasafn Kópavogs, Hamraborg 6a Föstudagur 5.2.: 10 - 21 Laugardagur 6.2.: 11 - 17 n Midpunkt við Hamraborg 22 Föstudagur 5.2.: 18 - 21 Laugardagur 6.2.: 14 - 17 Sunnudagur 7.2.: 14 - 17 n ALSJÁANDI í Kópavogskirkju, Hamraborg 2 Föstudagur 5.2.: 17 - 21 Laugardagur 6.2.: 12 -16 Sunnudagur 7.2.: 12 - 16 n Hljóðgöngu FLANERÍ verður hægt að nálgast flaneri.is n Lindasafn, Núpalind 7 Föstudagur 5.2.: 14 - 17 Laugardagur 6.2.: 11 - 14 Dagskrá Vetrarhátíðar í Kópavogi Framhald af forsíðu ➛ hlaða verkinu niður á f laneri. is, setja á sig heyrnartól og njóta leiðsagnar og upplifunar Flanerís á meðan gengið er frá Sólarslóð Theresu Himmer, undir Borgar- holtsbrautina, upp að Kópavogs- kirkju og aftur að Menningarhús- unum. Skoðuð verða útilistaverk og hugleitt um hlutdeild mannsins í geislum sólarinnar og hreyfingu umhverfisins. Lífljómandi lífverur og ljóð Á útisvæðinu fyrir framan Menningarhúsin mun Náttúru- fræðistofa Kópavogs bjóða upp á fallegan ratleik fyrir alla fjölskyld- una þar sem sjónum er beint að líf ljómandi lífverum og hinu innra ljósi. Við útivistarsvæði í kringum Lindasafn verður sett upp ljóða- ganga sem byggir á ljóðum sem nemendur Lindaskóla sendu inn í Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs. Í fordyri Salarins í Kópavogi verður dans- og vídeóverkinu SKINN eftir Lilju Rúriksdóttur varpað á skjá á meðan Vetrarhátíð í Kópavogi stendur yfir. SKINN er unnið í samstarfi við dansara FWD Youth Company og tónlistar- manninn Örn Ými Arason og er 20 mínútur í sýningu. Það er ljóst að dagskráin er fjölbreytt og margt um að vera en vegna fjöldatakmarkana er skráning á tónleika, sviðsviðburði, leiðsögn og smiðjur. Allar nánari upplýsingar um Vetrarhátíð í Kópavogi má finna á menningarhusin.is. Sprengju-Kata verður með krakkaleiðsögn í Gerðarsafni á Vetrarhátíð í Kópavogi. Í ljósi samkomu­ takmarkana verður áherslan á viðburði undir berum himni og viðburði fyrir fámennan áheyrendahóp. 2 KYNNINGARBLAÐ 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 F I M MT U DAG U RVETRARHÁTÍÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.