Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 10
Kameljón eru eðlur sem eru þekktar fyrir að breyta um lit. Þær kjósa hlýtt loftslag og halda sig aðallega í regnskógum. Á Íslandi eru því engin kameljón, en þó mætti kalla rjúpuna kameljón. Hún er staðfugl sem hefur
verið ríkur hluti íslenskrar náttúru frá landnámi,
en er auk þess vinsæll jólamatur. Rjúpan skiptir
einmitt um lit eftir árstíðum og er hvít að vetri til
en brúnleit með svörtum dílum að sumri. Hún
finnst um allt land og er talið að stofnstærðin sé nú
um 100.000 fuglar. Rjúpan hefur ávallt verið vinsæl
hér á landi og því kemur ekki á óvart að að minnsta
kosti 17 fjöll bera nafnið Rjúpnafell. Þeirra þekktast
er sennilega Rjúpnafell í Þórsmörk, enda trónir
keilulaga fjallið upp úr umhverfi sínu skammt frá
Mýrdalsjökli. Á sumrin er það mosaklætt frá toppi
til táar en skartar einnig brúnum klettum sem
minna á sumarklæði rjúpu. Þegar vetur nálgast er
það síðan, líkt og rjúpan, f ljótt að klæðast hvítri
vetrarkápu, enda 819 metra hátt. Það sést víða að en
tindar þess eru tveir og úr vestri minna útlínur þess
á bókstafinn M.
Ganga á Rjúpnafell er frábær skemmtun og má
auðveldlega samtvinna Tindfjallahring, einni
fallegustu göngu- og hlaupaleið landsins. Upplagt
er að hefja gönguna við skála Ferðafélags Íslands
í Langadal og er gengið eftir eyrum Krossár að
Stóraenda. Þar er stikuð gönguleið upp krókóttan
skógi vaxinn klettahrygg. Smám saman blasa við
á vinstri hönd Tindfjöll, en þau heita sama nafni
og fjöll mun vestar sem eru hluti Tindfjallajökuls.
Þarna er tilvalið að sveigja til austurs út á Stangar-
háls, en þar býðst stórkostlegt útsýni yfir Þórsmörk
alveg inn að Krossárjökli. Síðan er haldið norður
Tindfjallasléttur þar til kemur að stíg sem liggur
alla leið upp á Rjúpnafell. Síðasti hlutinn er nokkuð
brattur en gönguleiðin greinileg. Efst sést yfir
Morinsheiði að Fimmvörðuhálsi en einnig hluti
Laugavegarins, Tindfjallajökul og bróður hans
Eyjafjallajökul. Haldið er sömu leið niður á Tind-
fjallasléttur, en síðan áfram norðan Tindfjalla
framhjá Tröllakirkju. Fylgt er krókóttum
stígum í bröttum mosavöxnum hlíðum
með djúp árgljúfur neðar. Síðan tekur við
Slyppugil uns komið er í Langadal þar
sem ferðin hófst. Það tekur daginn að
ganga á kameljónið og oft bregður
fyrir f ljúgandi kameljónum á
göngunni sem er samtals 20 km.
Íslenskt
kameljón
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Á sumrin er Rjúpnafell grænklætt frá hvirfli til ilja og trónir upp úr umhverfi sínu. Í baksýn sést í Mýrdalsjökul.
Útsýni af hæsta tindi Rjúpnafells er stórkostlegt. Hér er horft til vesturs yfir Þórsmörk með Eyjafallajökul í baksýn.
Rjúpnafell er eins og rjúpan, ekki síður tilkomumikið að vetri til en á sumrin, en úr vestri minna útlínur þess á bókstafinn M. MYNDIR/ÓMB
4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð