Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.02.2021, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 04.02.2021, Qupperneq 10
Kameljón eru eðlur sem eru þekktar fyrir að breyta um lit. Þær kjósa hlýtt loftslag og halda sig aðallega í regnskógum. Á Íslandi eru því engin kameljón, en þó mætti kalla rjúpuna kameljón. Hún er staðfugl sem hefur verið ríkur hluti íslenskrar náttúru frá landnámi, en er auk þess vinsæll jólamatur. Rjúpan skiptir einmitt um lit eftir árstíðum og er hvít að vetri til en brúnleit með svörtum dílum að sumri. Hún finnst um allt land og er talið að stofnstærðin sé nú um 100.000 fuglar. Rjúpan hefur ávallt verið vinsæl hér á landi og því kemur ekki á óvart að að minnsta kosti 17 fjöll bera nafnið Rjúpnafell. Þeirra þekktast er sennilega Rjúpnafell í Þórsmörk, enda trónir keilulaga fjallið upp úr umhverfi sínu skammt frá Mýrdalsjökli. Á sumrin er það mosaklætt frá toppi til táar en skartar einnig brúnum klettum sem minna á sumarklæði rjúpu. Þegar vetur nálgast er það síðan, líkt og rjúpan, f ljótt að klæðast hvítri vetrarkápu, enda 819 metra hátt. Það sést víða að en tindar þess eru tveir og úr vestri minna útlínur þess á bókstafinn M. Ganga á Rjúpnafell er frábær skemmtun og má auðveldlega samtvinna Tindfjallahring, einni fallegustu göngu- og hlaupaleið landsins. Upplagt er að hefja gönguna við skála Ferðafélags Íslands í Langadal og er gengið eftir eyrum Krossár að Stóraenda. Þar er stikuð gönguleið upp krókóttan skógi vaxinn klettahrygg. Smám saman blasa við á vinstri hönd Tindfjöll, en þau heita sama nafni og fjöll mun vestar sem eru hluti Tindfjallajökuls. Þarna er tilvalið að sveigja til austurs út á Stangar- háls, en þar býðst stórkostlegt útsýni yfir Þórsmörk alveg inn að Krossárjökli. Síðan er haldið norður Tindfjallasléttur þar til kemur að stíg sem liggur alla leið upp á Rjúpnafell. Síðasti hlutinn er nokkuð brattur en gönguleiðin greinileg. Efst sést yfir Morinsheiði að Fimmvörðuhálsi en einnig hluti Laugavegarins, Tindfjallajökul og bróður hans Eyjafjallajökul. Haldið er sömu leið niður á Tind- fjallasléttur, en síðan áfram norðan Tindfjalla framhjá Tröllakirkju. Fylgt er krókóttum stígum í bröttum mosavöxnum hlíðum með djúp árgljúfur neðar. Síðan tekur við Slyppugil uns komið er í Langadal þar sem ferðin hófst. Það tekur daginn að ganga á kameljónið og oft bregður fyrir f ljúgandi kameljónum á göngunni sem er samtals 20 km. Íslenskt kameljón Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Á sumrin er Rjúpnafell grænklætt frá hvirfli til ilja og trónir upp úr umhverfi sínu. Í baksýn sést í Mýrdalsjökul. Útsýni af hæsta tindi Rjúpnafells er stórkostlegt. Hér er horft til vesturs yfir Þórsmörk með Eyjafallajökul í baksýn. Rjúpnafell er eins og rjúpan, ekki síður tilkomumikið að vetri til en á sumrin, en úr vestri minna útlínur þess á bókstafinn M. MYNDIR/ÓMB 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.