Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 41
Barokktónlist hljómar á síð-kvöldstónleikum í Hjalla-kirkju föstudaginn 5. febrúar kl. 21.00. Ókeypis aðgangur er, en skráning nauðsynleg: eventbrite. com/e/hi-tilfinningarungna-bar- ok k-vet rarhati-i-kopavog i-tic- kets-138744044171 Flytjendur eru: Þórunn Vala Valdimarsdóttir söngur, Hildi- gunnur Einarsdóttir söngur, Gróa Margrét Valdimarsdóttir f iðla, Júlía Mogensen selló og Lára Bryn- dís Eggertsdóttir semball. Harmljóð og tregasöngvar í bland við huggunarríka og hjartnæma tónlist eftir Bach, Purcell, Händel, Montiverdi og Elisabeth Jaquet de la Guerre. Barokk í Hjallakirkju Bach hljómar í kvöld. Hin árlega Japanshátíð við Háskóla Íslands stendur til sunnudags. Allir við- burðir fara fram á netinu. Allir við- burðirnir eiga sameiginlegt að hafa japanskt mál og menningu sem viðfangsefni. Flestir viðburðanna bjóða upp á gagnvirka þátttöku á Zoom, en þeim verður einnig streymt á Facebook: facebook.com/ Japan.Festival.Iceland Í dag, fimmtudaginn 4. febrúar, kl. 16.30-17.30 ræðir Kristín Ing- varsdóttir, lektor í japönskum fræðum, við rithöfundinn Ólaf Jóhann Ólafsson um nýjustu skáld- sögu hans Snertingu og fjölbreytta reynslu hans af japanskri menningu í gegnum störf sín fyrir japanska stórfyrirtækið Sony. Japanshátíð á netinu Ólafur Jóhann talar um Japan. ALLIR VIÐBURÐIRNIR EIGA ÞAÐ SAMEIGINLEGT AÐ HAFA JAPANSKT MÁL OG MENNINGU SEM VIÐFANGSEFNI. Ekki kemur á óvart að Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar eftir Einar Kárason sé í fyrsta sæti á Metsölulista Eymunds- son en bókin hefur vakið mikla athygli. Bókin sem fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin, Aprílsólar- kuldi eftir Elísabetu Jökulsdóttur er í öðru sæti og hin undurfallega Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er í þriðja sæti. Það er svo í takti við árstímann að í fjórða sæti er Náðu tökum á þyngdinni eftir Sóleyju Dröfn Davíðsdóttur. Málsvörn á toppnum Einar og Jón Ásgeir. Listasafnið á Akureyri efnir til sýningar á verkum eftir norð-lenska myndlistarmenn 29. maí til 26. september 2021. Að þessu sinni skulu myndlistarmennirnir vinna með ákveðið þema, Takmark- anir, í verkum sínum. Dómnefnd velur úr umsóknum listamanna sem búa og/eða starfa á Norður- landi eða hafa tengingu við svæðið. Opnað var fyrir umsóknir 20. janúar síðastliðinn og er umsóknar- frestur til og með 28. febrúar. Nán- ari upplýsingar má finna á listak.is. Vor/Sumar/Haustsýningar Lista- safnsins á Akureyri eru tvíæringur og þar er sýnt hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Hún verður því fjölbreytt og mun gefa góða inn- sýn í f lóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi. Stefnt er að því að gefa út sýningarskrá með sýningunni. Takmarkanir á Akureyri Listasafnið á Akureyri. Áhrifamikil saga um dauðann, tímann og lífið, skrifuð af tæru innsæi í leikandi léttum stíl. Björn Halldórsson hefur áður sent frá sér smásagnasafnið Smáglæpi sem fékk afar góðar viðtökur. Stol er fyrsta skáld- saga hans. HJARTNÆM OG GRÍPANDI Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25F I M M T U D A G U R 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.