Fréttablaðið - 04.02.2021, Blaðsíða 16
Um leið er það
augljósa viður-
kennt, að ef að það ætti að
hefja framkvæmdir á
knattspyrnuvellinum þyrfti
að finna frjálsíþróttunum
nýjan stað.
Freyr Ólafsson,
framkvæmdar-
stjóri FRÍ
NFL Vinsældir Toms Brady, leik-
stjórnanda Tampa Bay Bucca neers,
virðast ekkert vera að dvína en
metsala hefur verið á söluvarningi
tengdum leikstjórnandanum und-
anfarna daga í aðdraganda leiksins
um Ofurskálina (e. Super Bowl). Þar
leiðir Brady lið sitt gegn ríkjandi
meisturunum í Kansas City Chiefs
á heimavelli Buccaneers.
Samkvæmt tölum frá Fanatics
sem sjá um sölu á varningi fyrir
NFL-deildina var treyja Brady sú
næstvinsælasta á tímabilinu á eftir
Patrick Mahomes. Undanfarnar
vikur hafa sölutölurnar á varningi
Brady rokið upp og hefur aldrei
meira selst af varningi af einum
leikmanni á tveggja vikna tímabili.
Varningur merktur Brady var
einnig vinsæll þegar hann lék með
New England Patriots en eftir vista-
skipti í sumar hefur áhuginn aukist.
Alls hefur 900% aukning átt sér stað
í treyjusölu hjá Fanatics á treyjum
Brady á milli ára frá því að hann
skrifaði undir hjá Buccaneers. Vin-
sældirnar eru helst í Flórída-ríki en
aðdáendur Brady í Massachusetts
eru einnig duglegir að versla varn-
ing merktan Brady. – kpt
Vinsældir Brady
ekkert að dvína
Brady er á 21. ári sínu í deildinni.
ÓLYMPÍULEIKAR Ekki verður gerð
krafa til þess að allir þátttakendur
Ólympíuleikanna í Tókýó verði
búnir að fá bólusetningu gegn
kórónaveirunni. Þetta kemur fram
í fyrsta hluta handbókarinnar sem
dreift verður meðal þátttakenda og
var gefin út í gær. Kórónaveirufar-
aldurinn hefur verið í vexti undan-
farnar vikur í Japan en þrátt fyrir
það er stefnt að því að leikarnir fari
fram í sumar.
Í handbókinni kemur fram
að ætlast sé til að Ólympíufarar
reyni að forðast fagnaðarlæti með
snertingum, en brot á þeim reglum
geti leitt til brottvísunar. Allir sem
koma til landsins þurfa að sýna
fram á neikvætt sýni sem má ekki
vera eldra en þriggja daga gamalt.
Þeir sem sýna einkenni COVID-19 fá
ekki heimild til að ferðast til Japans.
Þá kemur fram að Ólympíunefnd-
in sé sammála því að íþróttafólk eigi
ekki að ganga fyrir þegar kemur að
bóluefni, en mælir með að íþrótta-
fólk verði bólusett ef tækifæri gefst
til. Ekki verði hins vegar gerð krafa
um bólusetningu hjá íþróttafólki
sem kemur til Tókýó. – kpt
Ekki krafa um
bólusetningu
Áætlanir gera ráð fyrir
ellefu þúsund þáttakendum
á Ólympíuleikunum 2020.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Tilkynnt var
síðastliðið þriðjudagskvöld að Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, hefði ákveðið
að skipa starfshóp sem væri ætlað að
vinna tillögur fyrir nýjan þjóðarleik-
vang í frjálsum íþróttum. Hópnum
er ætlað að skoða hvort hagkvæmt
sé að byggja upp eldra mannvirki
eða hvort þurfi að byggja nýjan völl,
ásamt því að greina frá kostnaðinum
sem því fylgir. Áætlað er að hópur-
inn skili af sér skýrslu þann 1. maí
næstkomandi.
Um árabil hefur Frjálsíþrótta-
samband Íslands kallað eftir bættri
aðstöðu utandyra. Laugardalsvöll-
ur, sem FRÍ hefur deilt með Knatt-
spyrnusambandi Íslands, telst ekki
lengur löglegur sem keppnisvöllur
í frjálsum íþróttum. Ákveðið var á
síðasta ári að skipa sambærilegan
starfshóp til að finna úrlausnir fyrir
knattspyrnulandslið Íslands, sem
hafa sömuleiðis kallað eftir endur-
bótum á aðstöðu á þjóðarleikvangi
en sú vinna er komin langt á veg.
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið er því búið að skipa starfs-
hópa til að finna tillögur fyrir nýjan
þjóðarleikvang í knattspyrnu,
nýjan þjóðarleikvang fyrir frjálsar
íþróttir og þjóðarleikvang fyrir
innanhússíþróttir í stað Laugardals-
hallar á rúmu ári en óvíst er hvenær
framkvæmdir hefjast.
„Þetta er mikill léttir, ég hef
beðið eftir því undanfarin ár að
menn myndu höggva á hnútinn
og hefja viðræður. Um leið er það
augljósa viðurkennt, að ef að það
ætti að hefja framkvæmdir á knatt-
spyrnuvellinum þyrfti að finna
frjálsíþróttunum stað,“ segir Freyr
Ólafsson, framkvæmdastjóri Frjáls-
íþróttasambands Íslands, glað-
beittur eftir tíðindin. Hann er einn
fimm fulltrúa í starfshópnum sem
fulltrúi FRÍ.
„Þetta er virkilega jákvætt. Í dag
erum við með tvo velli í Reykja-
vík sem eru bara malbik, einn í
Laugardalnum og einn í Mjódd
þar sem efnið er ekki lagt á. Þetta
er því mikið fagnaðarerindi þótt
að það eigi enn eftir að fara í fram-
kvæmdirnar. Borgarstjórinn hefur
talað um að óeðlilegt sé að það falli
eingöngu á herðar borgarinnar
að útvega landsliðum æfinga- og
keppnisaðstöðu og mennta- og
menningarmálaráðherrann er með
þessu að stíga ákveðin fram í því og
bjóða aðkomu ríkisins.“
Aðspurður sagðist hann telja að
FRÍ hefði staðið í þessari baráttu í
hátt í tíu ár en ákveðið var að ráðast
í endurbætur á Laugardalsvelli árið
2015 fyrir Smáþjóðaleikana.
„Þetta er búið að festast í umræð-
unni og stundum gleymst þegar
horft er til nýs knattspyrnuleik-
vangs, en við erum með háleit
markmið. Við erum fyrst og fremst
að horfa til útiaðstöðu sem gæti
samnýst svæðinu inni í Laugar-
dalshöll. Þá geta félögin í hverfinu,
Þróttur og Ármann, einnig nýtt sér
aðstöðuna sem og almennir íþrótta-
hópar. Laugardalsvöllur hefur verið
mjög lokaður fyrir þá sem vilja
hlaupa, en okkar markmið er að
hópar geti komið utan æfingatíma
félaganna og notað aðstöðuna.“
Þórey Edda Elísdóttir, fyrr-
verandi stangarstökkvari sem fór
þrisvar fyrir hönd Íslands á Ólymp-
íuleikana, situr í nefndinni sem full-
trúi ÍSÍ. Þórey sem situr í stjórn ÍSÍ
tekur undir að það sé fagnaðarer-
indi að vinnan sé hafin við að taka
fyrsta skrefið í átt að nýjum þjóðar-
leikvangi fyrir frjálsar íþróttir.
„Þetta er auðvitað bara löngu
tímabært og f lott að þessi vinna
sé að fara af stað. Frjálsíþrótta-
fólk, eins og annað íþróttafólk,
vill hafa sinn þjóðarleikvang og
þetta eru frábærar fréttir fyrir alla
frjálsíþróttahreyfinguna. Það hafa
miklar framfarir átt sér stað í innan-
hússaðstöðu fyrir frjálsar síðan ég
var að keppa, með uppbyggingu
frjálsíþróttahúsa á höfuðborgar-
svæðinu, en aðstaðan utanhúss
hefur á sama tíma setið á hakan-
um. Ef við viljum að þessi grein lifi
áfram og blómstri er nauðsynlegt að
hún sé til staðar og samkeppnishæf
við það sem þekkist erlendis.“
Aðspurð hvað slík aðstaða geti
þýtt fyrir okkar fremsta afreksfólk
segir Þórey að þar komi margt inn
í myndina.
„Auðvitað skiptir umhverf ið
miklu máli til að ná árangri, óháð
grein og íþrótt. Ég þurfti sjálf að
leita til útlanda á sínum tíma enda
var ekki fullnægjandi innanhúss-
aðstaða á Íslandi á þeim tíma. Það
er ákjósanlegra fyrir íþróttamenn
að geta æft sem næst heimahögum
og þá er möguleikinn á að mynda
afrekshóp.
Með því er okkar afreksfólk líka
sýnilegra sem fyrirmyndir fyrir
yngri iðkendur og greiða þeim leið
inn í greinina með innsýn sinni,“
segir Þórey og tekur undir að það
geti einnig auðveldað fremsta
frjálsíþróttafólki landsins að halda
fjárhagnum í lagi.
„Svo er það annar vinkill, fjár-
hagslega hliðin. Það er afar dýrt að
búa erlendis að æfa og keppa. Ég
var sem betur fer með góðar styrkt-
araðila sem gerðu það að verkum
að ég gat mikið æft og keppt úti.“
kristinnpall@frettabladid.is
Loks búið að skera á hnútinn
Búið er að setja á laggirnar starfshóp til að setja fram tillögur um nýjan þjóðarleikvang í frjálsum íþrótt-
um. Mikill léttir, segir framkvæmdastjóri FRÍ sem hefur reynt að vekja athygli á málinu í tæpan áratug.
Aðstaðan þar sem keppt er í frjálsum íþróttum í Laugardalshöll, meðal annars á Reykjavíkurleikunum, er til fyrirmyndar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vinnuvélar að störfum á Laugardalsvelli síðasta sumar skildu eftir sig ljót
sár á hlaupabrautinni sem varð fyrir vikið ónothæf. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT