Fréttablaðið - 04.02.2021, Síða 23
Þannig verður
hægt að fylgjast
með Örvídd um land
allt, ef fólk hefur ekki
tök á að gera sér ferð á
Vífilsstaði.
Að þessu sinni verður hægt að fylgjast með fjölda viðburða heima í stofu eða úr hlýjum
farartækjum. „Vegna faraldursins
er því miður ekki hægt að halda
viðburði inni á söfnunum eða á
stöðum þar sem fjöldatakmark-
anir eiga við. Því höfum við eins
og f leiri, brugðið á það ráð að
skoða nýjar og skapandi leiðir til
þess að gleðja gesti Garðabæjar og
f leiri á Vetrarhátíðinni,“ segir Ólöf
Breiðfjörð, menningarfulltrúi
Garðabæjar.
Umbreytir húsi í listaverk
Ólöf segist hafa fengið frjálsar
hendur frá menningar- og safna-
nefnd til að finna leiðir til að
gleðja hátíðargesti. „Mér finnst
ómissandi að bjóða upp á ljóslista-
verk á vel völdu húsi. Ég hafði því
samband við Hrund Atladóttur
sem er áhugaverður listamaður
og hefur meðal annars unnið að
verkum sem umbreyta húsum
í listaverk með ljósi. Hún þáði
boðið og ég bað hana um að fara í
bíltúr um Garðabæinn til að skoða
hugsanlegar staðsetningar fyrir
listaverk af þessu tagi. Hús á Vífils-
stöðum varð fyrir valinu. Sjálf
hafði ég einnig séð fyrir mér að
setja upp ljóslistaverk á Vífilsstöð-
um því þar er fjöldi húsa með afar
áhugaverða sögu. Þar er meðal
annars Vífilsstaðaspítali sem var
berklahæli frá 1910. Einnig er þar
að finna nokkrar byggingar eftir
Guðjón Samúelsson, einn rómað-
asta arkitekt Íslands. Hrund var
þá hrifin af því að setja verk upp á
Búshúsinu svokallaða sem er ein-
mitt eftir Guðjón. Verk Hrundar,
sem ber nafnið Örvídd, mun hvort
tveggja vísa í sögu staðarins sem
berklahælis, en einnig tengja við
nútímann þar sem við glímum nú
einnig við örverufaraldur, sem að
þessu sinni nefnist COVID-19.“
Fyrir framan Búshúsið er stórt
bílastæði sem býður upp á góða
yfirsýn yfir verkið. „Þannig getur
fólk komið á sínum eigin bíl og
notið þess að horfa á verkið gegn-
um bílrúðuna.“ Kveikt verður á
ljóslistaverkinu á föstudagskvöld-
inu, 5. febrúar, klukkan 18.00 og
verður það lýst upp til klukkan
23.00 sama kvöld. „Hrund hefur
áður fengið hljóðlistamenn í lið
með sér og að þessu sinni fékk hún
Geir Helga Birgisson til að semja
verk sem kallast á við ljóslista-
verk Hrundar. Hljóðverkið verður
spilað á sama tíma og verkið lifir
á útvarpsrásinni FM 107,5 og svo
munum við sýna beint frá ljós-
verkinu á Facebook-síðu Garða-
bæjar. Þannig verður hægt að
fylgjast með Örvídd um land allt,
ef fólk hefur ekki tök á að gera sér
ferð á Vífilsstaði,“ segir Ólöf.
Ljóskerin loga skært
Ljósið er viðvarandi þema á Vetr-
arhátíð í Garðabæ en fyrir framan
Hönnunarsafnið verður kveikt á
44 ljóskerjum úr leir. „Sýningin er
í tilefni af 40 ára afmæli Leirlista-
félags Íslands og kveikt verður á
ljóskerjum eftir 25 leirlistamenn
klukkan 18.00 fimmtudaginn 4.
febrúar. Ljósin loga á kerjunum
til klukkan 20.00 þann 4. og svo
frá 12.00-20.00 fram á sunnudag
7. febrúar. Þetta verður örugglega
yndisleg sjón að sjá öll þessi ker
loga skært í kvöldmyrkrinu.“
Tvær sagnagöngur
Á laugardeginum mun hinn
sagnafróði göngugarpur Einar
Skúlason leiða hópleiðsögn og
göngu fyrir áhugasama. „Við
vildum tengja leiðsögn við ljós-
listaverkið á Vífilsstöðum og
Lýsing, birta og bjartsýni í Garðabæ
Bjartsýni á fjallstoppi, ljóskerjadýrð, upplýstar örverur og fleiri spennandi viðburðir munu gleðja
gesti Vetrarhátíðar í Garðabæ sem haldin verður frá fimmtudegi til sunnudags, 4. til 7. febrúar.
Hrund Atladóttir og Ólöf Breiðfjörð við Búshúsið þar sem Hrund mun umbreyta byggingunni í ljóslistaverk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hér má sjá stillu úr ljósverki Hrundar, Örvídd, en í verkinu notar hún ör-
verur til að tengja saman nútímann og gamla tímann.
Í tilefni af 40
ára afmæli
Leirlistafélags
Íslands verður
kveikt á 44 ljós-
kerjum eftir 25
leirlistamenn
klukkan 18.00
fimmtudaginn
4. febrúar.
Bækur Kristínar Helgu Gunnars-
dóttur um Fíusól hafa notið gífur-
legra vinsælda hjá lesendum. Nú
býður hún upp á göngutúr þar sem
fólki gefst kostur á að kynnast slóð-
unum sem kveiktu hugmyndirnar.
sögu svæðisins og því fengum við
Einar til þess að leiða gesti á slóðir
berklasjúklinga. Þá mun Einar
ausa úr viskubrunni sínum og
fara með fróðleikspunkta um það
hvernig útivistin var nýtt í bata-
ferli sjúklinganna, en þeir voru
eins og margir vita, hvattir til að
fara í gönguferðir. Einar mun leiða
gesti í 4-5 kílómetra göngu frá
aðalbílastæði Vífilsstaða kl. 13.00
og 15.30 um svæðið, kringum
Vífilsstaðavatn og svo upp á hana
Gunnhildi, en toppurinn er í 100
metra hæð. Fólk er því hvatt til
að mæta með mannbrodda ef
skilyrði verða þannig. Sagan segir
að þeir sjúklingar sem náðu upp
á topp Gunnhildar voru taldir
vera útskrifaðir.“ Skráning fer
fram á heimasíðunni gardabaer.
is og Facebook-síðunni. Einnig má
senda póst á olof@gardabaer.is.
„Við munum einnig bjóða
upp á fjölskylduvæna göngu-
ferð fyrir þá sem vilja upplifa
eitthvað skemmtilegt á Vetrar-
hátíð með yngri kynslóðinni.
Barnabókahöfundurinn Kristín
Helga Gunnarsdóttir mun leiða
áhugasama í rannsóknargöngu á
slóðir Fíusólar og sögurnar á bak
við sögurnar verða ræddar eins
og Kristín Helga lýsir því sjálf.
Gangan hefst við leikskólann
Lundaból við Hofsstaðabraut og
lýkur á Bókasafni Garðabæjar en
þar verður opið frá 14-16 í tilefni
göngunnar.“
Rafræn leiðsögn og fleira á
heimasíðu Garðabæjar
Á heimasíðu Garðabæjar, garda-
baer.is, er að auki hægt að horfa á
skemmtilega og fræðandi leiðsögn
um útilistaverk í Garðabæ. „Ég
fékk Birtu Guðjónsdóttur sýn-
ingarstjóra til að kynna sér sögu
nokkurra útilistaverka í bænum
og hún valdi fimm verk til að
fjalla um. Það er mjög áhugavert
að heyra bæði um verkin, hvernig
þau voru unnin og hugmyndir
bak við þau en líka að fræðast um
listamennina sem gerðu þau.“
Það er því ljóst að þrátt fyrir
takmarkanir vegna faraldurs
munu fjölmargir skemmtilegir,
upplýsandi og ljóslifandi við-
burðir gleðja gesti Vetrarhátíðar
í Garðabæ þetta árið og von-
andi ala á bjartsýni hjá sem allra
f lestum. Rétt er að taka fram að
fjöldatakmarkanir og grímu-
skylda verða í hávegum hafðar.
KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 4 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 VETRARHÁTÍÐ