Fréttablaðið - 04.02.2021, Síða 46

Fréttablaðið - 04.02.2021, Síða 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is HÄSTENS VERSLUN FAXAFENI 5, REYKJAVÍK 588 8477 VERTU VAKANDI Í FYRSTA SKIPTI Á ÆVINNI Komdu til okkar og prófaðu einstök gæði Hästens rúmanna. Starfsfólk okkar er tilbúið að aðstoða þig og veita frekari upplýsingar. Þegar þú vaknar í rúmi frá Hästens munt þú skilja virði þess að ná fullkomnum nætursvefni. Rúmin eru framleidd með einstöku samspili handverks og hráefna þar sem hvergi eru gerðar málamiðlanir í gæðum náttúrulegra efna eða tíma við óþreytandi handverkið. Þú sérð það ekki en þú munt finna fyrir því. Allan sólarhringinn. Heimsæktu Hästens í Faxafeni eða pantaðu vörulistann á hastens.com. Margir hafa fleygt því fram við Gimma að hann sé í raun sannkallaður alþýðulistamaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ég byrjaði að semja lög fyrir mörgum árum. Málið er að ég er bara latasti tónlistarmaður Íslands,“ segir Grímur Jón Sigurðsson, oftast kallaður Gimmi. Því hefur hann lítið staðið í tónleikahaldi og upp- tökum. „Ég samdi lagið Ég er súr fyrir nokkrum árum, það var einhver sem heyrði það og ég var beðinn um að koma að spila á mótmælum sem voru á Austurvelli. Það var verið að mótmæla því að við ætluðum að slíta samræðum við Evrópusam- bandið. Þetta er nú kannski ekki eitthvert málefni sem ég brenn alveg sérstaklega mikið fyrir. Þann- ig að í fyrsta sinn sem ég kem fram af einhverju viti er fyrir framan átta þúsund manns, þó fólkið hafi kannski ekki mætt sérstaklega til að horfa á mig,“ segir hann hlæjandi. Hann segir COVID hafa í raun verið nokkuð hentugan tíma fyrir hann að blómstra sem listamann. „Komi það svo ólíklega til að maður mæti í gleðskap þá eru það bara fimm manna heimapartí. Það er fullkominn vettvangur fyrir mig sem listamann. Það hefur svona verið minn helsti vettvangur alla- vega undanfarið.“ Semur lög í vondu skapi Kex Hostel er nú hólfað niður en á síðasta ári var opnaður þar nýr pítsastaður, Flatus, sem er þá skír- skotun í íslenska orðið yfir pítsu, f latböku, og hinn goðsagnakennda vegglistamann Flatus. „Þarna eru fjöldatakmarkanir og farið eftir sóttvarnareglum. Svo verður fólk bara að gera það upp við sjálft sig hvort það sé sniðugt að fara á tónleika eins og staðan er,“ segir hann og hlær. Gimmi segist oftast semja tónlist þegar hann er pirraður og að það liti mögulega textagerðina. „Ef ég er ekki í sérstaklega góðu skapi, þá fer ég og sem lag. Ég fatt- aði það um daginn að ég fíla sjálfur mjög hallærislega tónlist. Og ég held að mín tónlist sé þar af leiðandi frekar hallærisleg. Ég fíla helst ekki aðra tónlist nema að ég geti gripið í gítarinn eða farið á píanóið og pikkað hana upp. Samt þoli ég ekki trúbadora en þó er tónlistin mín í þeim anda,“ segir hann og bætir svo við: „Ég er bara svo lélegur á nútímann að ég kann ekkert á þetta rafdót. Annars myndi ég líklega nota það meira.“ Féll fljótt inn í hópinn Eitt af fyrstu lögunum sem Gimmi samdi f jallaði um dvöl hans í Kaupmannahöfn, en þar var hann búsettur í eitt ár. „Það lag heitir Íslendingur í Kaup- mannahöfn en ég hef ekki enn tekið það upp. Ég hef í raun bara tekið tvö lög upp sem voru spiluð í útvarpi. Það er allur minn tónlistarferill. Fékk samt tæpar 30 þúsund krónur í stefgjöld, mér fannst það bara nokkuð gott. Ég samdi náttúrulega lagið og textann einn, oftast deilist þetta á milli nokkurra, þannig að ég prísa mig bara sælan.“ Lagið Íslendingur í Kaupmanna- höfn er hárbeitt ádeila á Íslendinga- samfélagið í Kaupmannahöfn. „Ég sem sagt samdi lagið þegar ég bjó þar. Ég tók eftir því að stór hluti Íslendinga sem þar voru búsettir voru hálfgerðir aumingjar og mjög f ljótlega var maður farinn að falla inn í þeirra hóp. Ég f lutti þarna inn í einhverja kytru og kemst að því að það er vændishús á tveimur fyrstu hæðunum sama dag og ég f lyt inn. Þá tók víkingasveitin á móti mér og meinaði mér aðgang inn í húsið því yfir stóð gíslataka. Svona sögur eiga nú kannski ekki við um hinn dæmigerða Íslending í Kaupmannahöfn, þótt þær hafi nú vissulega átt við um mig,“ segir hann hlæjandi. Grímuskylda er á tónleikunum á Kex sem hefjast klukkan 20.00 í kvöld. Grímur og spritt í boði fyrir gesti. steingerdur@frettabladid.is Latasti tónlistarmaður landsins með tónleika Grímur lýsir sér sem lötum og metnaðarlausum tónlistarmanni. Fyrstu tónleikana spilaði hann fyrir átta þúsund manns á Austur- velli en hann segist helst semja lög þegar hann er í vondu skapi. KOMI ÞAÐ SVO ÓLÍKLEGA TIL AÐ MAÐUR MÆTI Í GLEÐSKAP ÞÁ ERU ÞAÐ BARA FIMM MANNA HEIMAPARTÍ. ÞAÐ ER FULL- KOMINN VETTVANGUR FYRIR MIG SEM LISTAMANN. 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.