Vinnan


Vinnan - 01.06.1943, Blaðsíða 3

Vinnan - 01.06.1943, Blaðsíða 3
4. tölublað 1. árgangur Reykjavík Júní 1943 VI N N A N ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS Ritstjóri: Friðrik Halldórsson Ritnefnd Sœmundur Olafsson Stefán Ögmundsson FRIÐRIK HALLDÓRSSON: „Hetjur hafsins“ Við minnisvarða óþekkta. hermanhsins eru túlkaðar, meðal hernaðarþjóðanna, þær tilfinn- ingar, sem tengdar eru, á yfirborðinu að minnsta kosti, við minningu þeirra manna, er fallið liafa í styrjöldum. Slíka bautasteina hefur íslenzka þjóðin ekki þurft að reisa sonum sínum á liðnum öldum. Blóðfórnir þœr, sem árlega falla á altari liern- aðarguðsins meðal erlendra stórþjóða, hafa til skamms tíma verið óþekktar rneð okkar þjóð. En mannfall okkar er þó, á öðrum sviðum, engu síð- ur tilfinnanlegt en lijá hinum, sem heyja styrj- aldir. Við sjóinn umjiverfis landið okkar eru tengdar þær auðlindir, sem lífsskilyrði þjóðar- innar byggjast að mestu leyti á og við öflun þeirra verðmœta, sem úir djúpunum eru dregin, er árlega krafizt mannfórna af hinni fámennu þjóð okkar, sem tilfinnanlegar eru, þegar miðað er við fólksfjölda. Á síðari tímum liefur breyting orðið á sér- stöðu okkar í þessum efnum. Hœtturnar, sem fyrir voru, hafa aukizt að mun, vegna aðgerða hernaðarþjóðanna. Árásir liafa verið gerðar á skip okkar hvað eftir annað af flugvélum og kaf- bátum, með þeim afleiðingum, sem kunnar eru og ekki þarf að lýsa. Af 332 íslenzkum sjómönn- um, sem farizt hafa síðan styrjöldin hófst og fram til ársloka 1942, létu 211 lífið af styrjaldaror- sökum. Mœtti það gjarna vera þeim íhugunar- efni, sem í ofstæki sínu brugðu sjómönnum okk- ar um þegnskaparbrot við þjóð sína, er þeir kröfðust þess, eftir stœrstu blóðtökuna árið 1941, að gerðar yrðu sérstakar öryggisráðstafanir á ís- lenzkum millilandaskipum, vegna siglinga þeirra á hernaðarsvœðum. Snjólikneskið mikla, sem rcist var i Reykjavik 11. marz 1925, vegna sjóslysanna, er orðið höfðu 7.-8. febr. sama ár, þegar togararnir „Leifur heppni“ og „Fieldmarshall Robertsson", á- samt vélbátnum „Solveigu“, fórust og 68 menn létu lifið. — Rikarður Jónsson listamaður sá um byggingu likneskisins. — Þetta er cini minnisvarðinn, sem reistur hefur verið islenzk- um sjómönnum — og hann bráðnaði á einni nóttu. VINNAN 75

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.