Vinnan


Vinnan - 01.06.1943, Blaðsíða 5

Vinnan - 01.06.1943, Blaðsíða 5
GUÐGEIR JÓNSSON: Verum á verði Eflum samtökin Það er ekki ennþá liðið hálft annað ár síðan „gerð- ardómslögin“ svokölluðu voru gefin út. Með þeim átti að hindra allar raunverulegar kjarabætur verkalýðsins. Þessi tilraun þáverandi ríkisstjórnar og Alþingis mistókst, vegna eindreginnar en rólegrar andstöðu verkalýðsins, svo að stjórn og þing sáu sér ekki fært að burðast með lögin og voru þau því afnumin. Flestöll verkalýðsfélögin notuðu sér hið endurheimta samningafrelsi og gerðu nýja samninga við atvinnu- rekendur og fengu, með þessum samningum, töluverð- ar kjarabætur. Meðal þessara kjarabóta var. hjá flest- um félögunum, átta stunda vinnudagur, þar sem hann var ekki viðurkenndur áður. Höfurn við gert okkur ljóst, að átta stunda vinnu- dagur, við almenna vinnu, er í raun og veru þjóðfé- lagsumbót? Það er margt komið til vegs og viðurkenningar nú, sem í byrjun var talin firra ein og vitleysa. Það voru til bændur hér á landi, sem voru svo samgrónir þúf- unum í túnunum sínum, að þeir vildu ekki slétta þau af því að þeir töldu að túnin minnkuðu, ef þúfurnar væru teknar. Þessi skoðun er til grafar gengin fyrir löngu. Það var lengi siður til sveita, að standa við slátt og rakstur fram í myrkur og það jafnvel svo, að varla sáust handaskil. Þessi siður er líka kominn í gröf- ina. Bændur hafa komizt að raun um, að það borg- aði sig að slétta túnin og að það var beinn hagui fyrir þá sjálfa, að stilla vinnutíma verkafólksins í nokkurt hóf, jafnvel um hábjargræðistímann. Átta stunda vinnudagur hefur verið áratuga krafa verkalýðsins um allan heim og verkalýðurinn var víða búinn að fá þessari kröfu fullnægt löngu fyrir núver- andi styrjöld. Víðast hvar mun það hafa verið eins og hér á landi, að iðnaðarmennirnir höfðu forgönguna og aðrir komu í kjölfar þeirra. Ovíða mun þessari kröfu hafa fengizt fullnægt átaka- laust og sjálfsagt hafa víða verið reynd ýmis ráð, af hálfu atvinnurekenda, til þess að fá vinnudaginn lengd- an aftur. Það má búast við því, að það verði reynt hér einnig, enda hafa einstakar tilraunir verið gerðar hér til þess að fá vinnudaginn lengdan á ný, en ekki tekizt. — Það má einnig minnast þess, að þegar „gerð- ardómurinn“ svonefndi úrskurðaði kauplækkun hjá klæðskerum í janúar 1942, lengdi hann vinnutímann hjá þeim um leið. Höfðu þeir þó búið við lökust kjör um kaup og vinnutíma hliðstæðra iðnaðarmanna, um mörg undanfarin ár. Það mun mega gera ráð fyrir því, að „gerðardóms“- aðferðin verði ekki notuð, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn. Hitt er líklegra, að reynt verði að leita fyrir sér meðal verkalýðsins sjálfs, hvort þar finnist ekki ein- hverjir, er hægt verði að telja trú um, að þeir gætu haft fjórðungi hærri tekjur, ef þeir vildu lengja vinnudag- inn í 10 stundir aftur. Ef að slíkir verkamenn fyndust, mundi verða alið á þessum ímyndaða hagnaði af lengri vinnudegi. En ef lengingin tækist, mundi koma annað hljóð í strokinn, þá mundi verða þrástagast á því, að dagsverk væri dagsverk, hvort sem um 10 eða 8 stund- ir væri að ræða og að verkamanninum bæri því ekki hærri daglaun eftir en áður. Þetta yrði svo nýtt tilefni til óánægju og ófriðar milli verkamanna og atvinnu- rekenda og „ávinningurinn“ yrði raunverulegt tap fyrir háða aðila, tap fyrir þjóðarheildina. Við skulum hafa þýfðu túnin og þráastöðurnar á teignum til við- vörunar, hvorttveggja er úrelt fyrir löngu og 10 stunda vinnudagur við almenna vinnu er nútíma hliðstæða við þennan gamla og útdauða aldarhátt. Verum á verði um 8 stunda vinnudaginn og aðrar þjóðfélagsumbætur, sem verkalýðnum hefur tekizt að knýja fram á undanförnum tímum, og sem hann hlýt- ur að umbæta á komandi tímum. En okkur ber að gera betur en að vera á verði. Okkur ber að efla samtökin, okkur ber það fyrst og fremst hverju og einu innan okkar sérstöku starfsgreina og svo ber okkur að efla heildarsamtökin eftir mætti. Eins og getið er í síðasta hefti Vinnunnar, var sam- bandsstjórninni falið á Sambandsþinginu s.l. haust að gangast fyrir stofnun bandalags „með öllum öðrum samtökum alþýðunnar, hvort sem um er að ræða al- menn hagsmunasamtök, stjórnmálasamtök, verkalýðs- félög, menningarsamtök eða önnur.“ Sambandsstjórninni hefur ekki ennþá unnizt tími til að gera þessu verkefni veruleg skil, en hún mun nú snúa sér að því og boða til ráðstefna með fulltrúum frá þeim félögum og félagasamböndum, sem vilja taka þátt í slíkum viðræðum. Hér skal ekki rætt frekar um verkefni ráðstefnu þessarar, en því aðeins bætt við, að vonir standa til þess, að áhrif hennar verði til heilla fyrir íslenzka alþýðu — til heilla fyrir íslenzku þjóð- ina. VINNAN 77

x

Vinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vinnan
https://timarit.is/publication/1513

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.